Morgunn - 01.12.1992, Blaðsíða 30
Dagskrá vetrarins
MORGUNN
Huglækningamiðlar
Huglækningamiðlar félagsins, þeir Hafsteinn
Guðbjörnsson og Grétar Pálsson, starfa á mánudögum og
miðvikudögum. Bókanir í tíma hjá þeim fara fram á skrif-
stofu félagsins, sömuleiðis beiðnir um fyrirbænir.
Fréttabréf
Sérstakt fréttabréf er ekki sent út til félagsmanna þetta
starfsár en öll starfsemi er auglýst í smáauglýsingadálki
Morgunblaðsins. Er þetta gert í tilraunaskyni þetta starfs-
árið, þar sem fréttabréf virðist ekki alltaf hafa skilað
tilætluðum árangri. Jafnvel er talið að spara megi nokkuð
fé með þessum hætti.
Erlendir miðlar
Erlendir miðlar verða hjá félaginu í hverjum mánuði
fram til vors, þ.e.a.s. í janúar, febrúar, mars, apríl og maí.
Væntanlegir miðlar eru m.a. Ma Stjernlieden (sænsk), og
Zena Davies (Wales). Um aðra miðla verður auglýst síðar.
Allir miðlar sem starfa á vegum félagsins verða með
einn eða tvo fjöldafundi með skyggnilýsingum og eru
þeir fundir öllum opnir, jafnt félagsfólki sem utanfélags-
fólki. Hægt er að bóka fundarsetur símleiðis en þá þarf að
sækja miða fyrir ákveðinn tíma.
Námskeið
Þrjú til fjögur námskeið verða haldin seinni hluta starfs-
ársins ef næg þátttaka fæst. Verða þau auglýst sérstak-
lega. Zena Davies verður með sín byrjenda- og fram-
haldsnámskeið í maí. Einnig er fyrirhugað að hafa lita- og
hugleiðslunámskeið í umsjá Helgu Sigurðardóttur,
myndlistarkonu frá Egilsstöðum og verður tímasetning
þess auglýst nánar síðar.
28