Morgunn - 01.12.1992, Síða 34
Á andlegu ferflalagi
MORGUNN
Hér má segja að við séum farin að nálgast efnið, lokun
og vernd, en undir þann lið falla orkustöðvar, árur og litir
og við þessu mun ég nú leitast við að finna svör.
Orkustöðvarnar okkar eru sjö. Sú fyrsta, mænurótar-
stöðin er neðst á mænunni. Hér drögum við inn efnis-
kennda orku sem m.a. nýtist mænunni. Hún er rauð að
lit.
Nr. tvö er miltisstöðin, hún er eins konar tilfinningasía,
hún nýtist t.d. við sálfarir. Hún er appelsínugul að lit.
Nr. þrjú er magastöðin. Þetta er stöð tilfinninga. Ef eitt-
hvað hittir okkur illa, þá lendir það hér. Hver kannast
ekki við orðtakið „þetta hitti mig svo illa, að það var sem
ég fengi högg á magann." Hún er gul að lit.
Athugið að þessar þrjár stöðvar tilheyra efnis-
heiminum, efnisorkunni, þær eru mjög samtengdar og
vegna nálægðar sinnar hverrar við aðra er nokkuö á reiki
um röð þeirra hjá ýmsum skýrendum. Eg hefi heyrt að
áður fyrr hafi röðin verið nr. 1 mænurótarstöð, nr. 2
magastöð og nr. 3 miltisstöð, en að í dag sé röðin sú er ég
nota hér talin hin rétta.
Nr. fjögur er hjartastöðin. Hún er m.a. stöö sterkra til-
finninga, svo sem ástar og haturs. Stöðin er græn að lit.
Nr. fimm er hálsstöðin, einnig nefnd hljóðstöðin. Hún
stjórnar rödd m.a. tali og heyrn í miðilsskap. Hún er blá
að lit.
Nr. sex, er ennisstöðin, öðru nafni þriðja augað. Hún er
í miðju enni. Þessi stöð er mjög virk hjá ýmsum miðlum.
Litur dimmblár, indigóblár.
Nr. sjö er höfuðstöðin. Hún er staðsett efst á höfði og er
hún aðalsambandsstöðin upp á við. Hún er fjólublá og fer
út í hvítan lit.
Hér hefi ég lokið upptalningu orkustöðvanna, helstu
eiginleikum þeirra og litum. Það sakar ekki að geta þess
að allir litir regnbogans eiga að koma fram í
32