Morgunn - 01.12.1992, Page 37
morgunn
Á andlegu ferðalagi
þjálfaðir, fundið þar sjúkdóma sem ókomnir eru og geta
því unnið forvarnarstörf með því að lækna þá áður en
þeir komast lengra, eða gert viðkomandi viðvart um þá
svo að þeir geti sjálfir hjálpað til við að losna undan þeim,
t.d. með breyttu mataræði eða öðru líferni.
Það sem hér að framan segir um áruna er auðvitað
mikil einföldun á stóru efni, en ætti samt að nægja til þess
dð hennar sé vel gætt og að hún sé vel vernduð. Ég held
að við getum sem best nefnt áruna fjöregg okkar og við
vitum að þeir sem brjóta fjöregg sín eru illa staddir.
Hvernig verndum við svo þessa áru?
Fyrst og fremst hugsum við okkur blátt ljós er við
vefjum að okkur, silfurstjörnu er við setjum á höfuð okkar
og bláan hjúp, eða blátt egg er við göngum inn í og
læsum á eftir okkur.
Þar sem vera má að þetta sé nokkuð flókið langar mig
til að geta hér minnar aðferðar, mér finnst það einfalda
málið.
I beinu framhaldi af lokun orkustöðva minna, sem hér
aö framan er lýst, segi ég:
/,Eg geng inn í bláa litinn minn, vef honum um mig og
að mér. Ég set silfurstjörnuna mína á höfuð mér svo að
Þún megi senda sína silfruöu geisla yfir mig. Ég geng inn
1 bláa eggið mitt, loka á eftir mér og læsi og set síðan
silfurstjörnuna mína yfir læsinguna."
Þessi aðferð hefur reynst mér mikil vernd, en auðvitað
má orða þetta öðruvísi, en ég hygg að það sé best að láta
þetta halda sér svona, efnislega. Blár litur er mjög vernd-
ar>di, sama er að segja um silfurstjörnu og silfurgeisla.
Hvaða orö sem við notum þá megum við ekki gleyma
því að öllum orðum okkar verður að fylgja einlægni og
auðmýkt, annaö dugir ekki.
Þar sem ég minnist hér á liti, vil ég geta þess að litir eru
afar misjafnir að styrk og þeir geta haft bæði já- og
35