Morgunn


Morgunn - 01.12.1992, Side 41

Morgunn - 01.12.1992, Side 41
MORGUNN Þjónusta englanna mér ljósasta grein fyrir návist hins ósýnilega ráðgjafa. Mér fannst þá sem einhver væri að reyna að búa mig undir einhverja harða raun, sem ekki yrði undan komist. En faðir minn virtist vera við sömu heilsu og áður og jafn léttlyndur og hann átti að sér að vera. Ekkert var sjáan- legt, sem réttlætti ótta minn um hann. Eitthvað þremur eða fjórum vikum eftir að ég fékk fyrst þetta hræöilega hugboð, sat ég eitt kvöld við opinn gluggann á svefnherberginu mínu, andaöi að mér hinu svala, hressandi lofti októbermánaðarins og naut hinnar kyrrlátu hátignar kveldsins. Allt í einu heyrði ég rödd föður míns kalla á mig með jafni og segja mér að koma til sín. Þá missti ég alla meðvitund um umhverfi mitt og ég sá sýn. Eg sá föður minn liggja í blómagaröinum, al- klæddan, og mér sýndist hann vera sofandi. Nú virtist vera albjart af degi. Eftir veginum komu tveir vinir okkar, heimilislæknirinn okkar og broðir hans. Þeir voru vanir að líta inn til okkar við og við. Eg sá þá koma inn um garöshliðið. Þá virtust þeir koma auga á föður minn og þeir hlupu til hans. Annar þeirra lyfti upp höfðinu á honum og hinn, læknirinn, losaði um kraga hans og hálsbindi og stakk hendinni inn á brjóstið á honum. „Hann er dáinn," heyrði ég að læknirinn sagði. „Hann hlýtur að hafa dáið án þess að hafa haft þrautir nokkurt augnablik. En hver vill segja dóttur hans þetta? Eg get það ekki!" Þá hvarf sýnin og ég varð þess vör að ég sat enn við °pinn gluggann. Eg kveikti á lampa og fór að svefnher- bergi föður míns, lauk huröinni upp hægt og hlustaöi. Eg heyrði þennan djúpa, reglulega andardrátt, sem bendir á ýæran svefn. Ég fór inn í herbergið og læddist að rúminu. Eg kraup þar niður og bað þess innilega, að ég þyrfti ekki að missa föður minn. En mér var jafnþungt, þegar ég fór 39

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.