Morgunn - 01.12.1992, Síða 48
Þjónusta englanna
MORGUNN
gera, er svo viðbjóðslegt, að ekki er hægt að lýsa því. Það
var hér um bil þremur mánuðum eftir að ég kom á spítal-
ann að ég rak mig fyrst á þessa ógeðslegu hlið á
hjúkrunarstarfinu. Þegar við mér blöstu þær hryllilegu
skemmdir eftir sjúkdóm, er orsakast hafði af spillingu og
löstum, þá fylltist ég andstyggð og mér fannst ég ætla að
selja upp. Eg sneri mér frá sjúklingnum með óbeit. „Ég vii
ekki, ég get ekki, saurgað sjálfa mig með því að snerta
þennan mann," sagði ég í huganum.
Þá kom yfir mig flóð af ljósi. Ég leit upp og sá mynd
frelsarans lúta yfir sjúklingnum. Hann vék viö höfðinu,
leit niður til mín, rétti út hendurnar yfir syndarann,
afskræmdan af sjúkdómnum, og sagði:
„Það sem þér geriö þessum mönnum það gerið þér mér.
Sjá þú mig í hverri mannskepnu, sem þér er trúað fyrir að
annast, og þá verður verkið auðvelt."
Sýnin hvarf, ef þetta var sýn. Ég sneri mér aftur að sjúk-
lingnum. Öll sú óbeit og andsyggð, sem ég hafði fundiö
til fáeinum augnablikum áður, var nú horfin.
Ýmsir álíka aumkunarverðir sjúklingar komust undir
mína umsjón, meðan ég var á spítalanum. Og ævinlega,
þegar það var mitt hlutskipti að hjúkra þessum
fórnardýrum synda þeirra sjálfra, þá komu mér í hug
orðin: „Það sem þér gerið þessum mönnum það gerið þér
mér," og verkið varð auðvelt.
Skyldur hjúkrunarkonunnar eru oft örðugar og harðar
viðfangs, en á öllum þeim árum, sem ég vann fyrir mér
sem hjúkrunarkona, var það nálega undantekningarlaust,
að hvenær sem ég var yfirbuguð af þreytu, hryggð eða
líkamlegum veikleika, þá tókst mér að fá endurnýjaðan
styrk, hugrekki og von með því að minnast þess, er ég sá
frelsarann og heyrði orðin, er komu af vörum hans.
Framhald í næsta blaði.
46