Morgunn - 01.12.1992, Page 49
Guðjón Baldvinsson:
TREYSTUM GRUNNINN
Þegar fólk ætlar að byggja sér hús þá byrjar það á
grunninum. Og vel skal vanda það sem lengi á að standa.
Mér eru minnisstæð orð eins ágæts húsasmiðs, sem lengi
hafði fengist við það að smíða hús, og sem hann viðhafði
eitt sinn þegar hann var að vinna í grunni steinsteypts
húss sem verið var að hefja byggingu á. Hann var að
vinna að einhverju smáatriði sem ekki skipti verulegu
máli í frágangi grunnsins en hann sagði bæði í gríni og
alvöru: „bað er eins gott að vanda þetta vel, það er svona
skemmtilegra ef húsið skyldi einhvern tíma verða rifið og
þetta kæmi í ljós aftur."
bó að þessi orð hafi á sínum tíma ef til vill verið sögð
meira í gamni en alvöru þá finnst mér þau eiga afskap-
lega vel við í andlegum málum, séu þau heimfærð upp á
gildi þeirra.
Hin andlega „yfirbygging" hlýtur að fara afskaplega
mikið eftir þeim grunni sem lagður hefur verið í upphafi.
Og þar skipta smáatriðin ekki minnsta málinu.
Þó að segja megi að þetta eigi yfirleitt við um alla þætti
h'fsins þá er ég hér fyrst og fremst að hugsa um það skref
þegar fólk hefur þjálfun andlegra hæfileika sinna og þá til
hvers sem vera skal.
bað þýöir ekki, eins og gjarnan er sagt, að reyna að
hlaupa áður en maöur lærir að ganga.
Andlegir fræðarar segja okkur aö enginn geti orðið
47