Morgunn


Morgunn - 01.12.1992, Page 54

Morgunn - 01.12.1992, Page 54
Skýrsla forseta MORGUNN Auður Hafsteinsdóttir, Grétar Pálsson, Hafsteinn Guð- björnsson, Hilmar J. Magnús, Jón Yngvi Björnsson, Sigurgeir Ingimundarson og Þórhildur Árnadóttir. Einn huglækningamiðill mun vera í þjálfun núna, Hrefna Birgitta Bjarnadóttir. „Opin hús" voru yfirleitt einu sinni í mánuði, en þau hafa tekið við af félagsfundum. Þar var fjallað um ýmis- legt fróðlegt, m.a. stjörnuspekispjall sem Auöur Hafsteinsdóttir sá um. Úlfur Ragnarsson fjallaði um sál- farir o.fl. Ævar Jóhannesson hélt erindi um ofvirkni barna og mataræði því tengdu. Bergur Björnsson reikimeistari hélt erindi um reiki, einnig var spjall um drauma, o.fl. Tveir bænahringir, undir stjórn þeirra Þórhildar Árnadóttur og Margrétar Benónísdóttur voru settir af stað í vetur og eru þá fimm bænahringir í gangi á vegum félagsins. Stjórnarfundir voru yfirleitt einu sinni í mánuði. Ráðist var í endurbætur á skrifstofu í fyrra sumar. Þar eiga þeir Hilmar J. Magnús, Ingvar Björnsson og Hafsteinn Ágústsson þakkir skildar fyrir sína vinnu. Skrifstofan var opin fimm daga vikunnar, frá kl. 1-5, en þar störfuðu þær Auður Hafsteinsdóttir allan daginn en Kristín Sigbjörnsdóttir frá kl. 1-5. Stofnaður var sérstakur sjóður til minningar um Unni Guðjónsdóttur, sem starfaði um árabil við heilun hjá félaginu, en hún lést í febrúar 1990. Félaginu var færð að gjöf stór sjálfvirk kaffikanna og hefur hún komið sér vel. Á síðasta stjórnarfundi bárust okkur bréf frá starfs- stúlkum skrifstofu þar sem þær segja störfum sínum lausum frá 1. júní 1992. Ég vil að lokum þakka samstarfið í gegnum árin en það hefur verið mér góður skóli. Ég óska Sálarrannsókna- félaginu alls hins besta og bið því guðs blessunar. 52

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.