Morgunn - 01.12.1992, Side 55
AÐ HAFA HUND SEM
GÆLUDÝR MINNKAR
STREITU
Að hafa hund hjá sér kann að vera eitthvert besta ráð
sem til er gegn streitu. Rannsóknir varðandi félagsskap af
dýrum hafa sýnt fram á að fólk sem á gæludýr nær sér
betur af hjartauppskurðum. Að hafa gæludýr hjá sér
lækkar blóðþrýstinginn. Að tala, jafnvel bara það að lesa
upphátt, hækkar blóðþrýstinginn, sérstaklega þegar
annað fólk er viðstatt, en það að tala við gæludýr lækkar
blóðþrýstinginn hinsvegar. Nýleg könnun bendir til að
það sé í rauninni alveg rétt að hundurinn sé besti vinur
mannsins og að hann sé jafnvel betri sem slíkur en mann-
leg vera.
Tilraunin varð til upp úr athugun sem gerð var til þess
að reyna að afla skilnings á því hvernig staðið er að
félagslegri aðstoð eöa hvernig nálægð annarra hefur áhrif
é viðbrögð okkar gegn streitu.
Streituverkefnið fólst í því að telja upphátt. Það sem olli
streitunni var sú kvöð að verða aö telja afturábak frá 3,
síðan 7, 13 og síðast 17, en þetta krafðist verulegrar ein-
beitingar.
A meðan viðkomandi var að telja þá voru skekkjurnar,
sem hann gerði, skráðar niður og tímalengd talningarinn-
ar mæld.
Lífeðlisfræðileg tæki tengd líkama viðkomandi aöila
mældu hjartslátt, blóöþrýsting og svita, sem er streitu-
rnerki.
53