Árroði - 01.04.1935, Síða 7

Árroði - 01.04.1935, Síða 7
Á R R 0 Ð I um guðs þeirra, og andaðist með sæmd í iiárri elli, 110 ára. Pjóðin hvíldist svo í friði um nokkurt skeið hin síðust.u ár æfi hans. En eftir fráfall hans fór að koma sundrung þeirra á meðal með afguðadýrkun, og svo ófrið- ur við nærliggjandi þjóðir, frá þeim útreknar, er þeir sífelt áttu í höggi við, og urðu oft illa úti. En ætíð, þegar þeir iðruðust af- brota sinna og snerust fyrir al- vöru til Guðs síns, uppvakti hann ætíð einhvern öruggan fyrirliða meðal þeirra þeim til frelsis. Eftir alla baráttuna, mótstöðu Gyðinga, þrautirnar á leið yfir eyðimerkur, fjöll, vatn og firn- indi, og eftir að hafa barist við harðsnúnar, heiðnar þjóðir, er fyrir voru í landi þeirra, og sem þeir þurftu að ryðja úr vegi — sigruðu þeir dásamlega fyrir að- stoð Guðs þeirra og öruggleik fyrirliðanna, hinna guðinnblásnu spámanna. Tímabil það, er nú byrjaði, er nefnt Dómaratímabil. Einn af þeim og hinn síðasti þeirra, var mikilhæfur maður og réttlátur að nafni Samúel. Móðir hans hét Anna, og var mjög guðrækin kona, og eignaðist hún Samúel einan barna á sínum fullorðins- árum. Hún færði son sinn ungan í musteri Drottins, eins og siður var, og offraði í musterinu Guði til lofs og vegsemdar fyrir gjöf- ina, soninn unga. Henni fórust orð á þessa leið: Um þennan svein bað ég, og Drottinn veitti mér mína bæn, er ég bað hann um, og ég gef Drotni inínum hann, Samúel, alla hans Iífdaga. Og sveinninn dvaldi löngum í musterinu og ólst þar upp undir umsjón hinna æðstu presta og fékk þar guðlegar opin- beranir frá hinum alvalda Guði. Og þegar hann komst upp, varð hann, eins og áður er greint, dómari lýðsins, og varð gamall maður. Og þegar búist var við að dauði hans færi að nálgast, safnaðist lýðurinn saman til lians og sögðu til hans: Settu oss nú konung, er dæmi oss að sið allra þjóða. Pessi orð mislíkuðu Samúel. Samt bar hann bón þeirra fram fyrir Drottin, og Drottinn sagði til hans: Gegn þú rödd fólksins i öllu, sein þeir tala, því ekki hafa þeir útskúfað þér, heldur mér, að ég skuli ekki vera kon- ungur yfir þeim, og hann lét Samúel útvelja þeim konung, ungan og fríðan rnann af Benja- míns ættkvísl. Hann var hár maður vexti, höfði hærri en allir aðrir meðal þjóðarinnar. Pennan mann smurði Samúeltil konungs, og hann varð

x

Árroði

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árroði
https://timarit.is/publication/757

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.