Árroði - 01.04.1935, Page 46
46
ÁRROÐI
hans, og hinn sanni skoðari
hjarta hans og heyrandi tungu
hans.
Pví að andi Drottins fyllir
heimsbygðina, og hann, sem
heldur öllu saman, veit alt, sem
talað er.
Fyrir því getur enginn dulist,
sem ranglæti talar, og refsandi
réttlætið mun ekki ganga frám
hjá honum.
Því Guð hefir manninn skapað
til óforgengileika og gjört hann
•ftir mynd sinnar eigin veru.
En fyrir öfund djöfulsins kom
dauðinn inn í heiminn. Á hon-
um fá fteir að kenna, sem eru
hans hlutskifti.
En sálir réttlátra eru í hendi
Guðs og engin kvöl fær snort-
ið |>ær.
í augum heimskingjanna sýn-
ast f>eir vera dauðir, og burtför
þeirra talin aö vera ógæfa, og
viðskilnaður þeirra við oss tor-
tíming.
En þeir eru heilir á húfi. Því
að (>ótt þeim fyrir manna sjón-
um væri refsað, þá voru þeir
samt vongóðir um ódauðleika.
Og eftir litla hirting munu þeir
öðlast mikla sælu.
Því að Guð hefir prófað þá
og reynt, að þeir voru sér mak-
legir.
Hann hefir reynt þá sem gull
f deiglu, og tekið við þeim með
þóknun sem alfórnargjöf, og af
þeim mun Ijóma á vitjunartíma
þeirra.
Eu þótt réttlátur maður deyi
fyrir tímann, kemst hann til
hvíldar. Því að virðulega ellin
er ekki sú, sem flest á misserin,
né heldur er hún metin eftir
árafjölda.
En spekin er mönnunum hin-
ar sönnu hærur, og ílekklaust
líferni hinn rétti ellialdur.
Af því hann var orðinn Guði
þekkur, var hann elskaður af
honum. Og af því hann lifði
meðal syndara, var hann í burt
numinn.
Hann var hrifinn burt til þess,
að ilskan skyldi eigi breyta
hugarfari hans, né hrekkvísin
tæla sál hans.
Því að töfrar vonskunnar
varpa skugga á hið góða, og
víma fýsnanna umhverfa hrekk-
lausum hug.
Fullnumina á stuttum tíma
lauk hann við löngu skeiðin.
Því að sál hans var Drottni
þekk. Fyrir því flýtti hann för
hennar burt úr þessum vonda
heimi.
En fólkið sá það og skildi
það ekki og lagði ekki slíkt á
hjarta, að náð og miskunn veit-
ist hans útvöldu og umbun hans
guðræknu.