Morgunblaðið - 20.02.2009, Page 2
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
VÍSINDAMENN á Hafrann-
sóknastofnuninni unnu fram á nótt
í samvinnu við skipverja á loðnu-
skipinu Berki NK við að mæla og
meta loðnugöngu sem fannst sunn-
an við landið í gær. Ekki hafði í
gærkvöldi tekist að mæla næga
loðnu til að unnt væri að mæla
með útgáfu veiðikvóta.
Loðnuskipin Börkur NK og Ás-
grímur Halldórsson SF voru við
loðnuleit í gær á því svæði sunn-
an við land þar sem líklegast er
talið að einhver loðna finnist.
Börkur fann um hádegisbilið
göngur utan við Dyrhólaey og
voru þær mældar samkvæmt ósk-
um sérfræðinga Hafró. Skipið er
búið mælitækjum sem skilar
gögnum til Hafrannsóknastofn-
unarinnar um gervihnött, með
sama hætti og rannsóknarskip
stofnunarinnar.
Brælan eykur óvissu
Þorsteinn Sigurðsson, sviðs-
stjóri nytjastofnasviðs Hafró,
sagði í gærkvöldi að ekki væri
vitað hversu mikið magn þetta
væri. Þá hefði ekki verið hægt að
taka sýni vegna veðurs og það yki
á óvissuna.
Þorsteinn vekur jafnframt at-
hygli á því að mikið þurfi að mæl-
ast til að unnt verði að mæla með
útgáfu loðnukvóta því enn sé ekki
kominn nema hluti af þeim 380
þúsund tonnum sem mæld voru
norðaustur af landinu í síðasta
mánuði. Hafró muni ekki mæla
með veiðum nema það takist að
finna vel yfir 400 þúsund tonn.
Hægir á göngunum
Vegna brælu hefur þeim loðnu-
skipum sem fengið hafa smárann-
sóknarkvóta ekki tekist að kasta á
loðnu síðustu daga. Því er ekki vit-
að um hrognafyllingu. Þó er talið
að fremstu torfurnar séu að nálg-
ast hrygningu.
Verulega hefur hægt á göngum
eftir því sem vestar hefur dregið.
Þótt ekki hafi tekist að staðfesta
það er talið að fremstu göngurnar
séu komnar fyrir Reykjanesið.
Mæla og meta loðnugöngu
Leitarskip fundu loðnugöngu við Dyr-
hólaey Loðnan komin að hrygningu
Morgunblaðið/Kristinn
Loðna Sífellt minnka líkur á ein-
hverri loðnuvertíð að gagni.
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt-
ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
„ÞAÐ er annaðhvort núna eða
strax, eins og sagt er, annars miss-
um við af þessu,“ sagði Sigurður
Ægir Birgisson, skipstjóri á Ás-
grími Halldórssyni SF-250 frá
Hornafirði, þegar hann var spurð-
ur að því hvort menn væru að
missa af lestinni með loðnuvertíð í
ár.
Ásgrímur Halldórsson var ásamt
Berki NK við loðnuleit í samstarfs-
verkefni útgerða og Hafrann-
sóknastofnunarinnar. Ásgrímur er
ekki með mælitæki sem Hafró get-
ur nýtt til rannsókna. Var skipið að
leita í dýpri köntunum en Sigurður
Ægir sagði að ekkert hefði sést
þar. Einhver loðna væri nær landi
sem skipverjar á Berki athuguðu.
Sigurður Ægir var ekki alveg
tilbúinn að gefast upp, þótt mögu-
leikarnir á loðnuvertíð minnkuðu
með hverjum deginum. Loðnan
færi að leggjast í hrygningu. „En
við vonum það besta,“ sagði hann.
„Annaðhvort
núna eða strax“
VERÐI lög um
persónukosn-
ingar samþykkt
ætti áður að huga
að því að setja inn
í þau ákvæði um
að jafnræði
kynjanna á þingi
verði tryggt.
Þetta segir Ásta
Ragnheiður Jó-
hannesdóttir fé-
lagsmálaráðherra sem hvatt hefur
formenn stjórnmálaflokkanna til
þess að tryggja jafnræði kynjanna
fyrir komandi alþingiskosningar.
„Það er ástæða til þess að hafa
áhyggjur nema slíkt ákvæði verði
sett inn í lögin. Þetta er nokkuð sem
þarf að skoða í sambandi við laga-
setninguna. Það þarf að setja slíkan
varnagla eins og oft er gert í próf-
kjörum,“ segir félagsmálaráðherra
sem bætir því við að auðvitað væri
eðlilegast að þurfa ekki að hafa
áhyggjur af þessu.
„En sú er ekki raunin,“ tekur hún
fram. ingibjorg@mbl.is
Jafnræði
kynja verði
tryggt í per-
sónukjöri
Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir
TVEIR unglingspiltar á Selfossi
réðust á 16 ára pilt með kúbeini fyr-
ir tæpu ári. Sjónvarpið sagði í
kvöldfréttum að gerendurnir í því
máli væru þeir sömu og réðust á
skólafélaga sinn í FSu fyrir fjórum
vikum.
Þorgrímur Óli Sigurðsson, að-
stoðaryfirlögregluþjónn á Selfossi,
vill ekki staðfesta að um sömu ger-
endur sé að ræða. „Það átti sér stað
líkamsárás fyrir tæpu ári þar sem
ráðist var á unglingspilt utan skóla-
tíma. Við höfum lokið rannsókn og
málið er komið í ákæru.“
Að hans sögn var fórnarlambið
16 ára og árásarmennirnir 17 og 18
ára þegar atvikið átti sér stað.
„Þetta var flokkað sem minniháttar
áverkar þar sem ekki voru beinbrot
eða slíkt. Hins vegar beittu gerend-
urnir kúbeini og er málið því talið
alvarlegra en ella.“ ben@mbl.is
Beittu kúbeini
í árás í fyrra
GRASAGARÐURINN í Laugardal hefur löngum
verið vinsæll útivistarstaður í Reykjavík og
þangað sækja jafnt ungir sem aldnir.
Þessi vel útbúnu mæðgin létu ekki kulda og
næðing aftra sér frá því að skoða þar gæsir og
aðra fugla í vikunni, enda fátt notalegra en að
sitja vel dúðaður í vagni við slíka iðju. Nú styttist
óðum í vorið en þá verður meira um dýrðir í
garðinum er þær rúmlega 4.000 tegundir ís-
lenskra og erlendra plantna sem þar eru vakna
af vetrardvalanum. Mikill meirihluti plantnanna
í Grasagarðinum er til kominn vegna al-
þjóðlegra fræskipta en áhersla hefur verið lögð
á að finna plöntur sem þykja eftirsóknarverðar
til ræktunar hérlendis og eru líklegar til að þola
íslenskt veðurfar. Slíkir garðar eru starfræktir
um víða veröld og er m.a. ætlað að varðveita
plöntur í útrýmingarhættu. jmv@mbl.is
Útivist þrátt fyrir kulda og næðing
Morgunblaðið/Ómar
Vel útbúin til fuglaskoðunar
Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur
sia@mbl.is
RÁÐIST var á 16 ára gamlan pilt í
Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi
sl. miðvikudag og hann laminn marg-
sinnis með grjóti í höfuðið. Hann hefur
fengið áverkavottorð og kært málið til
lögreglu.
Sigríður Júlía Wíum, móðir piltsins,
segir hann hafa farið í skólann í gær,
en þar sem hann hafði miklar höfuð-
kvalir ákvað hún að fara með hann aft-
ur til læknis að loknum skóladegi.
Hún lýsir atvikum svo: „Þetta byrj-
aði með því að þeir rákust á, bara eins
og gengur og gerist, litu hvor á annan
og það féllu blótsyrði á báða bóga. Svo
fóru þeir hvor í sína áttina og málið
virtist vera búið,“ segir hún. Svo var
þó ekki því hinn strákurinn gekk út
fyrir og náði sér, að því er virðist, í
grjót sem hann beitti orðalaust á höf-
uð sonar Sigríðar þar sem hann sat í
sófa ásamt vinum sínum á fyrstu hæð-
inni. „Strákurinn minn reyndi að
beygja sig undan þessu, þetta voru
töluvert mörg högg,“ segir hún. Mörg
vitni urðu að árásinni og eitt þeirra
sagði við son Sigríðar að lokinni árás-
inni „… ég hélt bara að hann ætlaði að
drepa þig“. Hún er ekki sátt við að
skólayfirvöld kölluðu hvorki til lækni
né lögreglu eftir atvikið þrátt fyrir að
það hafi gerst innan veggja skólans
og sonur hennar sé aðeins 16 ára
gamall.
Piltarnir voru báðir kallaðir til
skólameistara eftir atburðinn. Sigríð-
ur frétti í gær að skólayfirvöld hefðu
fært piltinn til lögreglu þar sem hann
játaði verknaðinn og var í kjölfarið
vísað úr skólanum.
Sagt var frá hópárás unglinga á pilt
í FSu, sem gerð var fyrir fjórum vik-
um, í Morgunblaðinu sl. miðvikudag
og er það mál til skoðunar í mennta-
málaráðuneytinu.
Ráðist með grjóti á 16
ára pilt í FSu á Selfossi
Annað alvarlega árásarmálið í skólanum á örfáum vikum
„ÉG mat það svo
að það væri æski-
legast fyrir flokk-
inn að ég byði
mig fram í
Reykjavík, því að
hér er mikið end-
urnýjunar- og
uppbygging-
arferli í gangi,“
segir Sigmundur
Davíð Gunn-
laugsson, formaður Framsókn-
arflokksins. Sigmundur hefur
ákveðið að gefa kost á sér í Reykja-
víkurkjördæmi norður fyrir kom-
andi alþingiskosningar. Sigmundur
segir að þrýstingur hafi komið úr
grasrótinni um að hann byði sig
fram á landsbyggðinni en hann talið
þennan kost betri að þessu sinni.
Í síðustu þingkosningum náðu
framsóknarmenn ekki manni inn á
þing úr Reykjavíkurkjördæmi. Þá
var Jón Sigurðsson, þáverandi for-
maður flokksins, efstur á lista í
Reykjavík norður en Jónína Bjart-
marz efst á lista í Reykjavík suður.
Fer fram í
Reykjavík
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson