Morgunblaðið - 20.02.2009, Qupperneq 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2009
Á heimasíðu dómstólanna á mið-vikudag var birtur dómur yfir
fíkniefnasala. Í dóminum kom fram
að hann hafði fjórum sinnum talað
við Björn Jörund Friðbjörnsson tón-
listarmann í síma í apríl og maí á
síðasta ári og hefur Björn Jörundur
sjálfur viðurkennt að símtölin hafi
snúist um fíkniefnaviðskipti.
Svo hvarf dóm-urinn af
heimasíðunni, en
birtist aftur og þá
án nafns Björns
Jörundar. Það
var auðvitað um
seinan, enda ekki
hægt að taka til
baka það sem
einu sinni hefur
verið sett á netið.
Dómstólarnir þurfa því augljóslega
að skerpa á reglum sínum um hvað
eigi að fella úr dómum og hvers
vegna.
Hið athyglisverðasta í þessu málieru viðbrögð Björns Jörundar. Í
Fréttablaðinu í gær var hann spurð-
ur hvort hann hefði hugleitt að
hætta við að dæma ungmenni í þátt-
um Stöðvar 2, Idol-Stjörnuleit. „Nei,
ég held að það myndi orka mjög tví-
mælis ef maður segði sig frá öllum
störfum og vinnu þegar það kemst í
hámæli hvernig maður hefur hegð-
að sér í fortíðinni. Ég vissi alveg
hver ég var þegar ég réði mig til
starfsins. Það hefur engin áhrif á
mín störf í dag, það breytist ekkert
né hefur áhrif á hvernig ég ætla að
sinna mínum störfum þó aðrir viti
það hvernig ég hef hagað mér í for-
tíðinni.“
Björn Jörundur er ekki fyrstimaðurinn til að færa rök af
þessu tagi hér á landi. Fortíðin, þ.e.
atburðir fyrir tíu mánuðum, má
ekki þvælast fyrir mönnum í nútíð-
inni. Þar skiptir engu hvort menn
eru fyrirmyndir æskunnar og telja
sig þess umkomna að dæma frammi-
stöðu annarra, eða hvort þeir eru
valdir til annarra ábyrgðarstarfa.
Gamlar syndir eru marklausar.
Björn Jörundur
Friðbjörnsson
Hinar fornu og leiðu syndir
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
!
"##
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
!
"##
$%%&
#
$
%%
'%
'
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
' '
'
'
!' !' ' '!
'!
!'
'
'!
'!
'
'
*$BC
!" " #
$%&'() *
#
+ (
'" #
*!
$$B *!
() *%
%)%
+
<2
<! <2
<! <2
(* &%,
#
-%.&/
C8-D
B
"2
"
* )
#
*
,'
-
- %#/
)
&
-
- %#0 '.
!
1
" /
$()
& +
#2
&*'' - '&
#
0"&& %%11
&%%2
%,
#
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur
gag@mbl.is
NÝR viðskiptaráðherra, Gylfi Magnússon, ætlar
ekki að endurskoða ákvörðun forvera síns, Björg-
vins G. Sigurðssonar um að afhenda Morgun-
blaðinu ekki gögn um samsetningu innlána Icesave-
reikninga Landsbanka.
Morgunblaðið óskaði eftir því í janúar að við-
skiptaráðuneytið upplýsti samsetningu innlánanna,
það er hversu hátt hlutfall væri frá einstaklingum,
fyrirtækjum og stofnunum, og gæfi blaðinu afrit af
þeim gögnum sem nefnd á vegum þess hefði farið
með á samningsfund um lausn á Icesave-deilunni.
Þurfti ekki að tryggja allt
Blaðinu var synjað skriflega hinn 26. janúar á
grundvelli þess að gögnin geymdu upplýsingar um
samskipti við önnur ríki. Vísaði ráðuneytið í lið sem
hamlar upplýsingagjöf þegar almannahagsmunir
eru í húfi. Morgunblaðið hefur áfrýjað ákvörðuninni
til Úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Nefndin
býst við að allt að áttatíu dagar geti liðið þar til mál-
inu lýkur með úrskurði.
Ástæða þess að Morgunblaðið vill upplýsingarn-
ar er að í viðauka með tilskipun Evrópuþingsins og
-ráðsins frá 30. maí 1994 um innlánstryggingakerfi
eru tíundaðar þær stofnanir og fyrirtæki sem hægt
var að undanskilja að ríkið bæri ábyrgð á. Meðal
þeirra eru innlán tryggingafyrirtækja, ríkisins,
bæjar- og sveitarfélaga, fjárfestingarfélaga, sem og
lífeyris- og eftirlaunasjóða. Eins og Morgunblaðið
hefur upplýst var það ekki gert.
Morgunblaðið vill vita hversu háa upphæð ríkið
þarf nú að ábyrgjast en þyrfti ekki hefði það tekið
mið af viðaukanum.
Viðskiptaráðherra lúrir á upplýsingum
Beiðni um samsetningu innlána Icesave-reikninga Landsbanka var hafnað
SUNNUDAGINN næstkomandi, á
konudaginn, verður haldin sann-
kölluð kvennamessa í Vídalíns-
kirkju. „Þetta er í fjórða sinn sem
við gerum sérstaklega mikið úr
þessum degi hér í kirkjunni,“ segir
Jóna Hrönn Bolladóttir, sóknar-
prestur í Vídalínskirkju. „Þetta er
hugsað til þess að auka félagsauð í
bæjarfélaginu og í rauninni þjappa
konum saman.“
Í messunni munu aðeins konur
gegna hlutverkum presta, djákna,
organista og kirkjuvarðar auk þess
sem gospelkór, samansettur ein-
ungis af stúlkum, og kvennakór
munu syngja. „Eini karlmaðurinn
sem þjónar í messunni er undirleik-
ari gospelkórsins,“ segir Jóna
Hrönn en að messu lokinni munu
karlar bera fram súpu og brauð.
Kór Kvennakór Garðabæjar syngur undir stjórn Ingibjargar Guðjónsdóttur.
Sannkölluð kvenna-
messa á konudag
Í HNOTSKURN
»Dr. Arnfríður Guðmunds-dóttir, fyrsti kvenprófess-
orinn við guðfræðideild HÍ,
mun predika í messunni.
»Að messu lokinni verðurlist- og handverksmark-
aður í safnaðarheimilinu.