Morgunblaðið - 20.02.2009, Síða 11
Fréttir 11INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2009
120 ára vígsluafmæli Lágafells-
kirkju í Mosfellsbæ verður fagnað
með sérstakri hátíðardagskrá frá
22. febrúar til 1. mars nk. Á dag-
skránni er m.a. hátíðarguðsþjón-
usta í kirkjunni á sunnudag nk. kl.
11, auk kvöldtónleika sama dag
með Diddú og Agli Ólafssyni. Þá
verður einnig haldin vegleg Gospel-
gleði í Lágafellsskóla hinn 1. mars
nk.
Morgunblaðið/ÞÖK
120 ára vígsluafmæli
UNNAR Stef-
ánsson hefur ver-
ið kosinn nýr for-
maður Félags
eldri borgara í
Reykjavík. Hann
tekur við af Mar-
gréti Margeirs-
dóttur sem hefur
sinnt embættinu
frá 2005. Unnar
er stúdent frá Menntaskólanum að
Laugarvatni og viðskiptafræðingur
frá HÍ. Hann sat öðru hverju á Al-
þingi á árunum 1960-1970 sem
varaþingmaður fyrir Alþýðuflokk-
inn. Aðalstarf Unnars hefur verið á
sviði sveitarstjórnarmála.
Nýr formaður Fé-
lags eldri borgara
Unnar Stefánsson
RÁÐHERRA vatnsmála í Malaví
telur að íslenska vatns- og hreinlæt-
isverkefnið í Mangochi-héraði geti
rutt brautina fyrir áþekk verkefni á
öðrum svæðum í framtíðinni. Svo
segir í frétt frá Þróunarsamvinnu-
stofnun (ÞSSÍ). Ráðherrann hefur
nú kynnt sér áhrif verkefnisins á
daglegt líf íbúa.
Verkefnið miðar að því að veita
íbúum aðgengi að neysluhæfu vatni
og bæta heilsu þeirra.
Brautin rudd
STJÓRN Kvenréttindafélags Ís-
lands tekur heilshugar undir hug-
myndir Ástu R. Jóhannesdóttur, fé-
lagsmálaráðherra, um að
stjórnmálaflokkarnir setji sér regl-
ur er varða kynjaskiptingu á fram-
boðslistum, þannig að skipting
kvenna og karla verði sem jöfnust. Í
síðustu alþingiskosningum fækkaði
alþingiskonum miðað við næstsíð-
ustu kosningar á árinu 2003.
Jafnt hlutfall
HAUSTIÐ 2008 var slegið met í að-
sókn að framhalds- og háskólanámi.
Á milli áranna 2007 og 2008 fjölgaði
nemendum um 2,6%. Er aukið fram-
boð fjarnáms helsta skýring aukn-
ingarinnar á báðum skólastigum
sem og að grunnskólanemendur
sækja í auknum mæli í nám á fram-
haldsskólastigi en þeir eru 5%
skráðra nemenda þar. Þetta kemur
fram í samantekt Hagstofunnar.
Samkvæmt samantektinni eru
konur 6.888 fleiri en karlar í fram-
halds- og háskólanámi.
Á framhaldsskólastigi eru 31,7%
nemenda skráð í einhvers konar
starfsnám en á háskólastigi eru ein-
ungis 2,5% nema í starfsmiðuðu
námi og eru kynjahlutföllin nokkuð
jöfn. Í háskólum landsins eru flestir
nemar skráðir á viðskiptasvið en
næstfjölmennast er lögfræðisvið.
Met í aðsókn að
framhaldsnámi
STUTT
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
EGILL Jóhannsson, forstjóri Brimborgar, telur
að Reykjavíkurborg sé að mismuna fyrirtækjum í
borginni þegar hún neiti fyrirtækinu að skila at-
vinnulóð á Kjalarnesi á sama tíma og Eimskip sé
leyft að skila lóð í Sundahöfn og fá öll lóðagjöld
endurgreidd. Egill segir það engu skipta þótt lóðin
í Sundahöfn teljist formlega vera eign Faxaflóa-
hafna sf., því Reykjavíkurborg eigi 75% í fyrirtæk-
inu og hafi þar tögl og hagldir.
Egill skrifaði borgaryfirvöldum bréf í gær-
morgun, í kjölfar þess að hann hafði lesið frétt
Morgunblaðsins um lóðaskil Eimskips. „Það er því
áhugavert að skoða stjórn Faxaflóahafna sf. og
bera þá einstaklinga saman við þá sem sitja í borg-
arráði Reykjavíkurborgar. Þá
kemur í ljós að sex manneskjur
sem sitja í stjórn Faxaflóa-
hafna sf. sitja einnig í borgar-
ráði. Sama fólkið ber því
ábyrgð á endurgreiðslu til
Eimskips og höfnun endur-
greiðslu til Brimborgar,“ segir
Egill m.a. í bréfinu. Hann segir
einnig að rétt sé að halda því til
haga í þessu samhengi að
Brimborg sé ekki að óska eftir sérmeðferð heldur
krefjist þess að vera meðhöndlað eins og önnur
fyrirtæki sem hafa skilað lóðum í borginni und-
anfarna áratugi.
Egill segir að rökin fyrir skilum Eimskips á lóð-
inni séu nánast orðrétt þau sömu sem Brimborg
notaði nokkrum dögum áður, þ.e. „vegna breyttra
aðstæðna í atvinnulífinu í kjölfar bankahrunsins“.
Rökum Brimborgar hafi verið hafnað en rök Eim-
skips augljóslega tekin góð og gild.
„Að ofansögðu er ljóst að með því að hunsa lög
og reglur og mismuna fyrirtækjum í borginni gefa
þessir kjörnu fulltrúar um 200 manna samhentum
hóp starfsmanna Brimborgar langt nef, bera enga
virðingu fyrir 45 ára starfi Brimborgar í borginni
og að auki bera ekki nokkra virðingu fyrir þeim
tekjum sem fyrirtækið útvegar borginni t.d. í
formi fasteignagjalda á hverju ári af eignum fé-
lagsins,“ segir Egill í bréfinu.
Brimborg hefur vísað málinu til umboðsmanns
Alþingis. Fram hefur komið í fréttum að átta önn-
ur fyrirtæki hafa óskað eftir að skila atvinnulóðum
í borginni en fengið neitun.
Borgin mismuni fyrirtækjum
Egill Jóhannsson