Morgunblaðið - 20.02.2009, Page 15
Fréttir 15INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2009
Í Ráðhúsi Reykjavíkur verður kynning á námi frá Háskólanum á Akureyri, Háskólanum á
Bifröst, Háskólanum á Hólum, Háskólanum í Reykjavík, Landbúnaðarháskóla Íslands og
Listaháskóla Íslands. Á Háskólatorgi, Gimli og Odda verður kynning á námi við Háskóla
Íslands. Í Norræna húsinu verður kynning á framhaldsnámi í Danmörku og Svíþjóð.
Háskóladagurinn um allt land:
Ísafjörður: Kynning í MÍ 3. mars
Akureyri: Kynning í VMA 11. mars
Egilsstaðir: Kynning í ME 12. mars
Kynntu þér möguleika framtíðarinnar á www.haskoladagurinn.is
ÞETTA ER SNÚIÐ – ÞITT ER VALIÐ!
HÁSKÓLADAGURINN 21. FEBRÚAR KL. 11.00–16.00
HÁSKÓLA
DAGURINN
GRÍÐARLEGA mikilvægt er að aukning og efling sýnilegrar lög-
gæslu í hverfum borgarinnar verði höfð að leiðarljósi í þeim skipu-
lagsbreytingum sem eru í undirbúningi innan löggæslunnar, að mati
borgarráðs. Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu,
og Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn voru gestir á fundi ráðsins í
gær þar sem rætt var um hverfalöggæslu í Reykjavík.
Fagnaði ráðið því að við útfærsluna yrði tryggt að hverf-
islöggæsla yrði með fast aðsetur í þjónustumiðstöðvum borgarinnar
þannig að tryggt yrði að það samstarf sem þar hefði þróast yrði fest
í sessi.
Í tilkynningu frá Degi B. Eggertssyni segir að óvissa hafi verið um
framtíð hverfalöggæslu í borginni eftir að hugmyndir voru kynntar
um að sinna hverfum borgarinnar frá Kópavogi, Mosfellsbæ og Sel-
tjarnarnesi.
Vilja efla sýnilega
hverfislöggæslu
Morgunblaðið/G.Rúnar
Á vakt Óskað er eftir sýnilegri löggæslu.
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
dóm Héraðsdóms Norðurlands
eystra sem dæmdi karlmann í 10
mánaða fangelsi fyrir brot gegn
valdstjórninni, hótanir og skilorðs-
rof.
Hafði hann hótað og veist að
starfsmönnum félagsmálayfirvalda,
sem höfðu málefni fjölskyldu manns-
ins til meðferðar. Maðurinn var jafn-
framt sakfelldur fyrir að hafa hótað
barnsmóður sinni.
Hæstiréttur dæmir manninn hins
vegar til að greiða 800 þúsund krón-
ur í miskabætur í stað 400 þúsunda
króna, líkt og kveðið er á um í dómi
héraðsdóms, auk kostnaðar við
áfrýjun málsins, tæplega 400 þúsund
krónur.
Við ákvörðun refsingar var meðal
annars litið til eðlis brotanna og
fjölda þeirra og að með þeim rauf
hann skilorð eldra dóms, að því er
segir í dómi Hæstaréttar.
Tíu mánuðir fyrir brot
gegn valdstjórninni
Hafði í hótunum við barnsmóður sína
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
SKÓLASTJÓRAR í grunnskólum
Reykjavíkur komu saman til fundar í
vikunni þar sem m.a. var rætt um erf-
iðar ákvarðana-
tökur framundan.
Stjórnendur
skólanna sjá fram
á niðurskurð á
starfseminni og
hafa í allan vetur
þurft að beita
miklu aðhaldi í
rekstrinum. Hafa
þeir hist reglulega
á fundum í vetur
og borið saman
bækur sínar, oftar en áður. Hver nið-
urskurðurinn verður á næsta skólaári
liggur ekki fyrir en endurskoðuð fjár-
hagsáætlun Reykjavíkurborgar verð-
ur ekki kynnt fyrr en 17. mars nk.
Hreiðar Sigtryggsson, skólastjóri
Langholtsskóla, er formaður Skóla-
stjórafélags Reykjavíkur. Hann segir
skólana og starfsmenn þeirra finna
fyrir erfiðu efnahagsástandi eins og
aðrir í þjóðfélaginu. Taka hafi þurft
yfirvinnu í skólunum til endurskoðun-
ar, líkt og hjá öðrum starfsmönnum
borgarinnar, og velta við hverjum
steini í bókhaldinu. Strax í október
hafi ýmsir rekstrarliðir verið teknir
til endurskoðunar, fyrir utan það sem
snýr að námi og kennslu. Skólarnir,
eins og aðrar stofnanir borgarinnar,
vinni samkvæmt markmiðum sem
borgarstjórn hefur sett um að verja
grunnþjónustuna.
Verkefni, ekki vandamál
„Vissulega er órói og óvissa í sam-
félaginu öllu og það smitast líka út í
skólana. Skólinn þarf ávallt að vera
friðland þar sem haldið er utan um
nemendur, ekki síst í því ástandi sem
nú ríkir. Ég tel að okkur hafi tekist
vel upp í þeim efnum. Menn hafa litið
á þetta sem verkefni til að takast á við
frekar en óyfirstíganlegt vandamál.
Auðvitað fylgja þessu ný verkefni,
sem við höfum ekki þurft að takast á
við áður, en þá gildir að vera bjart-
sýnn og byggja upp von um betri
framtíð. Menn verða að finna þær
bestu leiðir sem til eru,“ segir Hreið-
ar.
Hann segist lítið hafa fundið fyrir
því að foreldrar og forráðamenn aft-
urkalli mataráskriftir, ekki síst eftir
að matargjaldið var samræmt í 250
krónur og systkinaafsláttur kom til.
Varla takist að útbúa miklu ódýrara
nesti að heiman.
Velta við
hverjum steini
í grunnskólum
Hreiðar
Sigtryggsson
Óvissan í þjóðfélaginu smitast inn í skólana
Skólastjórar funda reglulega um ástandið
Eftir Stefán Vilbergsson
Nemi í blaða- og fréttamennsku
„VIÐ stóðum í þeirri trú að það væri
bara formsatriði að klára þetta. Enda
uppfylltum við allar kröfur og gert er
ráð fyrir þessum rekstri á deiliskipu-
lagi,“ segir Hafsteinn Egilsson veit-
ingamaður en bæjarstjórn Seltjarn-
arness veitti umsókn Ljónsins ehf.
um nýtt veitingarleyfi á Eiðistorgi
neikvæða umsögn á fundi.
Mat bæjarstjórnar er að umfangs-
mikill áfengisveitingastaður sé til
þess fallinn að valda íbúum og ná-
grenninu ónæði, en í húsnæðinu eru
bæði verslanir og íbúðir. Í umsókn er
gert ráð fyrir að opið sé til kl. 01:00
alla virka daga og til kl. 03:00 aðfara-
nótt laugardags, sunnudags eða al-
menns frídags.
„Við erum mjög sátt við þann
rekstur og íbúðir sem nú eru á torg-
inu,“ segir Ásgerður Halldórsdóttir,
forseti bæjarstjórnar, sem greiddi at-
kvæði gegn umsókninni. „Eiðistorgið
er opið svæði og það er ekki sér-
inngangur inn á veitingastaðinn.
Bæjarstjórn barst auk þess bréf frá
rekstraraðilum sem geta ekki hugsað
sér lengri opnunartíma en til kl. 23.“
„Ég bý sjálfur úti á nesi og man
eftir Rauða ljóninu. Á þessu svæði
sem er vesturbærinn og nesið er
18.000 manna byggð og það er enginn
svona rekstur þarna lengur,“ segir
Hafsteinn. „Meiningin var að reka
huggulegan hverfisveitingastað þar
sem fólk gæti fengið að borða og
horfa á leiki. Ég vil reka þetta í sátt
og samlyndi við alla og er sannfærður
um að meirihluti íbúa á svæðinu vilji
þennan stað.“ Hafsteinn segir að fjór-
ir aðilar hafi skrifað undir áskorun til
bæjarstjórnar, en að í henni hafi ekki
verið lagst gegn sjálfum veit-
ingarekstrinum heldur væri þar mælt
með að opnunartíminn yrði þrengdur
miðað við umsókn.
Fimm bæjarfulltrúar höfnuðu til-
lögunni, einn greiddi atkvæði með
henni og einn sat hjá. Umsögn bæj-
arstjórnar verður send Lögreglu-
embættinu til afgreiðslu.
Ljónið út í kuldann
Bæjarstjórn Seltjarnarness hafnar til-
lögu um að veita Rauða ljóninu leyfi