Morgunblaðið - 20.02.2009, Qupperneq 18
18 Daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2009
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
Þ
að getur skipt sköpum fyrir heim-
ilisbudduna hvar matvara er keypt
inn til heimilisins. Þetta sýnir ný
verðkönnun ASÍ svo um munar.
Allt að 348,1% verðmunur reynd-
ist vera á pasta í verðkönnuninni sem fór fram
í ellefu verslunum á höfuðborgarsvæðinu á
þriðjudag. Munurinn á hæsta og lægsta verði
reyndist alltaf vera mikill en minnstur var
hann á AB-mjólk þar sem hann var 30,8 pró-
sent.
Kannað var verð á 40 vörutegundum og
reyndist Bónus oftast með lægsta verðið eða í
28 skipti. Verslunin 10-11 í Glæsibæ var hins
vegar oftast með hæsta verðið eða í 16 til-
fellum. Raunar sýnir könnunin skýrt að svo-
kallaðar klukkubúðir eru með hæstu verðlagn-
inguna því í öðrum 15 tilfellum var verslunin
11-11 við Laugaveg með hæsta verðið.
Mestur verðmunur í könnuninni var á pasta
þar sem kílóverðið var 578 krónur í 10-11 en
129 krónur í Kaskó. Verðmunurinn er 348% en
miðað var við lægsta kílóverð af pasta í versl-
ununum. Minnsti verðmunurinn reyndist hins
vegar vera á vörum sem eru forverðmerktar af
framleiðendum, líkt og ostum, viðbiti, mjólk-
urvörum og áleggi.
Formerking í raun verðsamráð
ASÍ bendir á að iðulega sé aðeins krónu
verðmunur á vörutegundum milli Bónuss ann-
ars vegar og þeirrar lágverðsverslunar sem er
næstódýrust, en undir lágverðsverslanir falla
auk Bónuss Krónan, Nettó og Kaskó. Sé ein-
göngu litið til þessara verslana reyndist mesti
verðmunurinn vera á pasta, brauðmeti, kexi,
morgunkorni, kjöti og áleggi. Þannig var pasta
dýrast í Krónunni þar sem kílóverðið var 398
krónur en ódýrast í Kaskó þar sem það var 129
krónur. Mismunurinn er 209%.
Að sögn Esterar Sveinbjarnardóttur, verk-
efnastjóra verðlagseftirlits ASÍ, er svipað verð
í lágverðsverslununum, sé litið til þeirra sér-
staklega, enda virðist samkeppnin mest þeirra
á milli. Meiri verðmunur sé í svokölluðum
þjónustuverslunum, sem í könnuninni eru
Fjarðarkaup, Hagkaup, Nóatún og Samkaup-
Úrval, sem allar hafa nokkuð breitt vöruúrval.
Af þessum verslunum var Fjarðarkaup oftast
með lægsta verðið, eða í 26 skipti af 40. Í þess-
um verslunum var minnsti verðmunur á osti,
viðbiti og mjólkurvörum en mestur verðmunur
á ávöxtum, grænmeti, dósamat og þurrvöru.
Ef litið er á klukkuverslanirnar einar sér,
þ.e. 11-11, 10-11 og Samkaup-Strax, þá reynd-
ust þær dýrastar og sömuleiðis með meiri
verðmun sín á milli en verslanirnar í hinum
flokkunum tveimur. Af þeim var Samkaup-
Strax ódýrust, eða í 25 skipti af 40, og 10-11
dýrust í 20 skipti af 40. Mestur verðmunur
reyndist vera á ávöxtum, dósamat og þurrvöru
í þessum verslunum.
Ester segir það vekja athygli hversu lítill
verðmunur er á vörum sem eru forverðmerkt-
ar, s.s. ostum og áleggi. „Þar er verðið eig-
inlega það sama, óháð því hvar er verslað,“
segir hún. „Í raun er ólöglegt að formerkja
vörur því í því felst ákveðið verðsamráð enda
kemur í ljós að nánast engin samkeppni er í
verði þeirra. Þessu ætti neytendastofa að taka
á.“ Frávik frá formerktu verði kemur oftast
fram í afslætti á kassa sem Ester bendir á að
geri erfitt um vik að vita nákvæmlega hvað
borga eigi fyrir vöruna. Þá séu pakkastærðir
mjög mismunandi milli verslana þótt um sömu
vöru sé að ræða, sem geri allan verðsam-
anburð erfiðari hjá neytendum. „Við þurfum
t.d. að reikna út lægsta kílóverðið til að geta
borið þetta saman,“ segir hún.
Hilluverðið gildir
Könnunin fór þannig fram að skráð var nið-
ur hilluverð vörunnar eða það verð sem neyt-
andinn hefur upplýsingar um inni í búðinni.
Bendir Ester á að samkvæmt lögum gildi það
verð og stemmi verðið á kassanum ekki við það
verð eigi neytandinn kröfu á því að lægra verð-
ið verði látið gilda. Þegar skýrt var gefið til
kynna að veittur væri afsláttur af merktu verði
við kassa var skráð afsláttarverð. Reiknað var
út kílóverð varanna í því skyni að auðvelda
verðsamanburð þar sem pakkastærðir eru
sem fyrr segir ákaflega ólíkar milli verslana.
Könnunin var gerð í Bónus Spönginni,
Krónunni Fiskislóð, Nettó Mjódd, Kaskó Vest-
urbergi, Hagkaupum Holtagörðum, Fjarð-
arkaupum Hólshrauni, Nóatúni Þjóðhild-
arstíg, Samkaupum-Úrvali Miðvangi,
Samkaupum Strax Suðurveri, 11-11 Lauga-
vegi og 10-11 Glæsibæ. Tekið er fram að að-
eins sé um beinan verðsamanburð að ræða, en
ekki lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.
,! ($$ 3 / 1'((
% 2..
:
+3.
J
+
&!+
4'!#
3..
)
<
'<5
!
7(/& $'& 3 /3 ("'3"
!
KL
M#
3! KL
4 KL
C8
#
%KL
4
N4
% KL
?
&
"
+.!
!
8 (3 9&
4 !
!
7!
9KL
G
!!/<+-1+!
(
"+!
?
+!
:1!/ (3 2((
N
,++7
*
9
M
!
KL
' @
!
!
@
&
<
6
!
KL
800$ &3 ''1/
6
*F
!
3..
GO
A!
GHO!!
!
KL
;& $3 #"/& $
+!KL
'
+!KL
&
+!KL
(
4
% +!KL
8
+!KL
KL
O
KL
&
!!"*<7 !"
OO
9KL
:6'' (!# $"$3 !"''
'
<
<
:
O
O
-
P #
!
KL
%&$"# $!(
M
<&
# ## 6
*;<+/!#!!
<#(=01(
4
Q!
#KL
M KL
?
R!! R!! !
!
"
#
%
&
!
!
"#
!
$
&'
%
#
()
*
+)
'(
$
#
*,
%
&'
&
!
)
&
)
-
$)
.
*
+.
L?
!
Mikill munur á matarverði
Allt að 348% verðmunur á pasta Klukkubúðirnar eru dýrastar Minnstur verðmunur reyndist
á forverðmerktum vörum Mismunandi pakkastærðir gera verðsamanburð erfiðan fyrir neytendur