Morgunblaðið - 20.02.2009, Síða 42
42 Menning
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2009
Munið háskóladaginn 21. febrúar!
Ávextir
íslenskra auðlinda
Landbúnaðarháskóli Íslands er vísindastofnun á sviði
hagnýtrar náttúrufræði, umhverfismótunar og skipulagsfræða.
Meginviðfangsefni LbhÍ er nýting og verndun náttúruauðlinda.
LbhÍ býður háskólamenntun til BS- og MS-gráða.
Kynntu þér spennandi framtíðarnám
á heimasíðu skólans: www.lbhi.is
w
w
w
.l
b
h
i.
is
P
L
Á
N
E
T
A
N
Aðeins sex sýningar:
05/02 08/02
15/02 22/02
01/03 08/03
Sýnt í Borgarleikhúsinu.
Miðasala í síma 568 8000
og á www.id.is.
Nýtt verk eftir Katrínu Hall, Peter
Anderson og Cameron Corbett.
Tónlist eftir Sigtrygg Baldursson,
Pétur Ben og Frank Hall.
Leikmynd eftir Aðalstein Stefánsson.
Traustur bakhjarl Íslenska dansflokksins
F
ít
o
n
/
S
ÍA
Íslenski dansflokkurinn býður atvinnulausum
ókeypis miða á sýninguna - nánar á www.id.is
ID
.IS
“fjörug, kraftmikil og
oft falleg (sýning) og
minnir okkur enn einu
sinni á hversu öflugur
og fjölhæfur Íslenski
dansflokkurinn er”
Martin Regal,
Morgunblaðið 8. feb.
UNDIRBÚNINGUR fyrir Óskars-
verðlaunahátíðina sem fram fer á
sunnudaginn er nú á lokametr-
unum. Á meðan starfsmenn Ko-
dak-hallarinnar í Los Angeles ryk-
suga rauða dregilinn, skipuleggja
sætaraðir og rogast þess á milli
með Óskars-styttur í yfirstærð,
hringsnúast stílistarnir um stjörn-
urnar í kjólabúðunum og ákveða
þann „eina rétta“. Hátíðin í ár er
sú 81. í röðinni og ekki er laust við
að aldurinn sé farinn að segja til
sín. Gagnrýnendur segja hátíðina
vera alltof formfasta sem hreki
unga fólkið frá skjánum en þar að
auki sé ástæðan fyrir dvínandi vin-
sældum hátíðarinnar sú að vinsæl-
ustu myndirnar (þ.e.a.s. þær tekju-
hæstu) eiga jafnan ekki upp á
pallborðið hjá Óskarsverðlauna-
akademíunni.
Ópólitísk verðlaunahátíð
Þá velta margir því fyrir sér
hvort þakkarræðurnar í ár muni
koma inn á þær efnahagslegu
þrengingar sem framundan eru í
Bandaríkjunum (og veröldinni
allri) og munu án efa hafa áhrif á
kvikmyndagerð í landinu. Hingað
til hafa pólitískar ræður verið litn-
ar hornauga á Óskarnum og minn-
ast margir í því sambandi ræðu
Berts Schneiders, framleiðanda
heimildarmyndarinnar Hearts &
Minds, sem árið 1975 las upp yf-
irlýsingu Víet-Kong-liða til frið-
arráðstefnunnar í París. Frank Si-
natra varð að sögn æfur af bræði
vegna uppátækis Schneiders og
áður en útsendingunni lauk las
hann upp yfirlýsingu sem hann
hafði samið ásamt Bob Hope þar
sem sagði að Óskars-akademían
bæri ekki ábyrgð á þeim pólitísku
ummælum sem fram komu á hátíð-
inni og að hún bæðist afsökunar á
atvikinu.
hoskuldur@mbl.is
Óskarinn á efri árum
Reuters
Skítadjobb? Starfsmenn Kodak-hallarinnar eru nú í óða önn við að dauð-
hreinsa rauða dregilinn áður en sólar stórstjarnanna skíta hann aftur út.
Gull sem glóir? Þeir eru eflaust margir lítrarnir af gull-
málningunni sem notaðir eru fyrir Óskarsverðlaunahátíðina.
Óskars-bíllinn Það eru einungis þeir allra merkilegustu
sem ferðast í smábílum, svo sem páfinn og Óskar gamli.
GAMLA Star Trek-kempan William
Shatner, betur þekktur sem Kirk
kafteinn eða Denny Crane í Boston
Legal, hefur lýst því yfir í bréfi til
aðdáanda að hann vilji verða for-
sætisráðherra Kanada. Hinn 77 ára
gamli leikari fær enn aðdáendabréf
og gefur sér tíma til að lesa þau og
svara sjái hann ástæðu til. Ákafur
aðdáandi hvatti Shatner til að bjóða
sig fram sem ríkisstjóri Kanada,
sem Englandsdrottning skipar, en í
svarbréfi sínu sagðist leikarinn
miklu frekar vilja vera forsætisráð-
herra því ríkisstjórastaðan væri
mestmegnis upp á punt. Shatner er
hins vegar sannfærður um að hann
hafi það sem til þarf til að stjórna
landinu. „Sem forsætisráðherra
gæti ég leitt Kanada yfir í hæstu
hæðir.“ Ekki virðist hann þó sækjast
eftir embættunum í bráð. „Ég þakka
kærlega traustið en verð því miður
að hafna þessari tillögu, ég myndi
hvort eð er ekki hafa tíma til að vera
ríkisstjóri.“
Vill verða for-
sætisráðherra
Reuters
Pólitískur? William Shatner.