Morgunblaðið - 29.04.2009, Qupperneq 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 9. A P R Í L 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
114 . tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
«DAGLEGTLÍF
STEFNA Á AÐ FLYTJA ÚT
VISTVÆNAR LÍKKISTUR
«EVRÓVISJÓN
JÓHANNA GUÐRÚN
ER ALGJÖRT TROMP
FLUGFÉLÖG og ferðaskrifstofur aflýstu
ferðum til Mexíkó í gær þar sem flensan
hefur haldið áfram að breiða úr sér og
stöðugt tilkynna fleiri lönd um staðfest til-
felli. Enn hafa engin dauðsföll af völdum
flensunnar verið staðfest utan Mexíkó en
þar er talið að yfir 150 hafi látist.
Flensan hefur haft víðtæk áhrif
Tveir menn hafa leitað læknis á Íslandi
vegna veikinda sem líkjast einkennum
flensunnar en ekki hefur verið staðfest
að um svínaflensutilfelli sé að ræða,
mennirnir komu til landsins frá Banda-
ríkjunum. Svínaflensan hefur haft víð-
tæk áhrif um víða veröld og m.a. valdið
lækkun á hlutabréfavísitölum í helstu
kauphöllum heims. Þá er talið að hún
auki á svartsýni varðandi horfur í efna-
hagsmálum heims.
Viðbrögð yfirvalda eru misjöfn eftir
löndum en í Hong Kong, Rússlandi og á
Taívan er hafinn undirbúningur við að
setja ferðamenn í sóttkví leiki grunur á
smiti. Barack Obama, forseti Banda-
ríkjanna, hefur farið fram á 1,5 millj-
arða dollara fjárveitingu úr bandaríska
þinginu til að kljást við flensuna. |14-17
Svínaflensan veldur
usla um víða veröld
Reuters
Rannsóknir WHO segir að miðað við núverandi stöðu geti flensan orðið að
vægum faraldri en minnir á að þannig hafi spænska veikin einnig byrjað.
MJÖG vel hefur gengið að leggja Suðurstrandarveg í vetur og verktak-
inn, KNH ehf. frá Ísafirði, er langt á undan áætlun. Jafnvel er búist við
að vegarkaflinn verði tilbúinn í september í haust.
Samkvæmt útboði átti hluti vegarins að vera tilbúinn á næsta ári og
verkinu að fullu lokið 2011. Hugsanlegt er að síðasti kaflinn, frá Krýsu-
víkurvegi til Grindavíkur, verði boðinn út síðar á árinu.
Verkið felst í nýbyggingu Suðurstrandarvegar á 33,6 km löngum
kafla ásamt 2,3 km löngum tengingum við hann, smíði 12 m steyptrar
bitabrúar á Vogsós neðan Hlíðarvatns í Selvogi, auk ræsa, grjótvarn-
argarða, reiðstígs og girðinga, skv. upplýsingum Vegagerðarinnar.
Fögur er hlíðin þó að svört sé
Morgunblaðið/RAX
Framkvæmdir við Suðurstrandarveg eru langt á undan áætlun
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.is
TÆPLEGA 40 prósent af eignum
nýju bankanna þriggja voru flokkuð
sem slæm lán í minnisblaði ráðgjaf-
arfyrirtækisins Oliver Wyman frá
því í janúar. Lán fyrirtækja eru skil-
greind sem slæm ef þau hafa verið
lengur en 90 daga í vanskilum. Heim-
ildir Morgunblaðsins herma að stað-
an hafi versnað síðan.
Að mestu er um að ræða lán bank-
anna til rekstrarfyrirtækja þar sem
þorri lána til eignarhalds- og fjárfest-
ingarfélaga var skilinn eftir í gömlu
bönkunum. Einungis þriðjungur lán-
anna telst góður, skv. minnisblaðinu.
Oliver Wyman skilaði samhæfðu
endurmati á skuldum og eignum
Nýja Landsbanka (NBI), Nýja
Kaupþings og Íslandsbanka til Fjár-
málaeftirlitsins (FME) í síðustu viku.
Það hefur enn ekki verið gert op-
inbert.
Skæðasta kreppan í 80 ár
Í minnisblaði Wymans, sem Morg-
unblaðið hefur undir höndum, segir
orðrétt: „núverandi staða Íslands er
verri en nokkur kreppa sem einstök
þjóð hefur þolað síðan í kreppunni
miklu“. Því er það mat fyrirtækisins
að íslenska bankakreppan sé sú al-
varlegasta sem hafi hent þjóðríki í
tæp 80 ár.
Máli sínu til stuðnings ber Wyman
áætlað hlutfall slæmra lána í nýju ís-
lensku bönkunum saman við kreppur
í Taílandi (33 prósent), Kóreu (18
prósent), Svíþjóð (18 prósent) og
Noregi (níu prósent) sem öll gengu í
gegnum miklar bankakreppur á síð-
ustu tveimur áratugum.
Um 40 prósent lána slæm
Oliver Wyman segir íslensku
kreppuna þá mestu frá kreppunni miklu
Hæsta hlutfall slæmra |16
BETUR fór en á horfðist þegar sval-
ir á húsi í Ölveri skammt frá Borg-
arnesi hrundu undan um tuttugu
grunnskólabörnum í gærkvöldi.
Krakkarnir, sem voru þar í hópi
um fimmtíu barna úr 7. bekk grunn-
skóla á Akranesi, féllu um tvo og
hálfan metra niður er svalirnar gáfu
sig. Einhver barnanna urðu fyrir
meiðslum, en að sögn lögreglunnar í
Borgarnesi var þó ekki um nein al-
varleg meiðsl að ræða. Farið var
með börnin á sjúkrahúsið á Akra-
nesi.
Ölver er á sumarbústaðasvæði
undir Hafnarfjalli og er notað sem
sumarbúðir á sumrin.
Svalir
hrundu
undan 20
börnum
Börnin slösuðust
ekki alvarlega
„ÉG bið þær
konur og börn,
sem brotið hefur
verið á af hálfu
starfsmanna og
þjóna kirkjunnar
fyrirgefningar á
þeirri þjáningu
og sársauka sem
þau hafa liðið,“
sagði Karl Sig-
urbjörnsson bisk-
up í setningarræðu við upphaf
Prestastefnu Íslands í Kópavogs-
kirkju í gærkvöldi. Biskup sagði
siðareglur Prestafélags Íslands
geyma ákvæði um kynferðislega
áreitni og Kirkjuþing hefði sett
starfsreglur um meðferð kynferð-
isbrotamála í kirkjunni.
„Settar hafa verið siðareglur og
heilræði fyrir starfsfólk í barna- og
æskulýðsstarfi. Við verðum að taka
mark á þessu og fylgja eftir í starfi
kirkjunnar. Þessa dagana er verið
að ljúka gerð bæklings sem unninn
er af starfshópi á vegum þjóðkirkj-
unnar og annarra kristinna trú-
félaga sem vill leggja sitt af mörk-
um til að vinna gegn ofbeldi í hvaða
mynd sem er, s.s. kynferðisáreitni
og misnotkun,“ sagði Karl Sig-
urbjörnsson biskup.
Karl
Sigurbjörnsson
Bað um fyrirgefningu
Upplýsingagjöf til farþega
frá áhættusvæðum verður
efld. Lagt að þeim sem
finna fyrir einkennum að
leita til lækna sem verða
með aðstöðu í Leifsstöð.
Unnið að því að auka birgð-
ir af nauðsynjalyfjum og
ákveðnum hjúkrunarvör-
um. Matar- og olíubirgðir
kannaðar.
Varað við að fólk ferðist til
Mexíkó eða áhættusvæða að
þarflausu. Annars engar
ferðatakmarkanir settar.
Ástandið á Íslandi