Morgunblaðið - 29.04.2009, Page 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 2009
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur
annaei@mbl.is
„ÞARNA urðu leiðinleg mistök sem
ég ber ábyrgð á,“ segir Örnólfur
Thorsson orðu- og forsetaritari um
ástæðu þess að Carol van Voorst, frá-
farandi sendiherra Bandaríkjanna,
var sent bréf þess efnis að forseti Ís-
lands hygðist sæma hana hinni ís-
lensku fálkaorðu.
Samkvæmt því sem að fram kom í
Kastljósi Ríkissjónvarpsins í gær var
það ekki fyrr en á leið út á Bessastaði
að hitta forsetahjónin sl. föstudag
sem Voorst barst símtal þess efnis að
ekki stæði til að sæma hana orðunni.
Enginn nánari skýring fylgdi, en
sagt að þau hjónin væru velkomin á
Bessastaði.
Barst aldrei orðunefnd
Carol van Voorst lýkur fljótlega
störfum hér á landi og hafði óskaði
eftir kveðjufundi með Ólafi Ragnari
Grímssyni, forseta Íslands, eins og
hefð er fyrir. Vou sendiherrahjónin á
leið á þann kveðjufund með forseta
er símtalið barst.
Örnólfur baðst undan viðtali, en í
skýringargrein frá skrifstofu forseta
kemur fram að fyrir mistök hafi er-
indi verið sent prótókollstjóra utan-
ríkisráðuneytisins þess efnis að
ákveðið hefði verið að sæma Voorst
fálkaorðunni án þess að formlega
hefði verið gengið frá ákvörðuninni.
Utanríkisráðuneytið var í kjölfarið
beðið að fela sendiráði Íslands í
Washington að afla heimildar stjórn-
valda í Bandaríkjunum fyrir veitingu
orðunnar.
Skrifstofa forseta Íslands tekur
fram í yfirlýsingu sinni að um orðu-
veitingar til sendiherra gildir föst
venja gagnvart Norðurlöndum og fá-
einum öðrum ríkjum, sem feli í sér að
sendiherrarnir hljóta orðu fyrir störf
sín frá ríkinu sem þeir störfuðu í.
„Þessi regla gildir hins vegar ekki
um samskipti margra landa, meðal
annars ekki um samskipti Íslands og
Bandaríkjanna, enda hafa margir af
sendiherrum Bandaríkjanna á Ís-
landi ekki fengið fálkaorðuna.
Á síðustu áratugum hafa þannig
aðeins þrír sendiherrar Bandaríkj-
anna hlotið fálkaorðuna, Nicholas
Ruwe, Marshall Brement og Charles
Cobb,“ segir í yfirlýsingunni.
Forseti Íslands hafi beðið Voorst
afsökunar á þessum mistökum á
kveðjufundi sem hann átti með sendi-
herranum 24. apríl sl.
Ekki borist formleg afsökun
Að því er fram kom í Kastljósi var
sendiherrann hins vegar ósáttur við
hið óvænta símtal. Þá mun Voorst
hafa túlkað orð forseta Íslands kvöld-
ið á Bessastöðum þannig að orðuna
fengju aðeins „þeir sem hennar væru
verðir“.
Bandaríska sendiráðið mun ekki
senda frá sér formlega yfirlýsingu
vegna málsins, að sögn Kathleen
Eagan, talsmanns sendiráðsins.
„Þetta er búið og gert,“ segir hún.
„Við fengum tilkynninguna um orð-
uveitinguna og áttum von á að hún
[Voorst] fengi fálkaorðuna og það
eina sem hægt er að segja er að það
er á valdi forsetaskrifstofunnar og
ríkisstjórnar Íslands hverjir hljóta
orðuna.“ Spurð hvort formleg afsök-
unarbeiðni hafi borist sendiráðinu
segir hún svo ekki vera.
„Þetta er búið og gert“
Sendiherra Bandaríkjanna sagt að forseti Íslands vilji sæma hann fálkaorðunni
Sagt síðar að ekki yrði af veitingu orðunnar Forsetaritari segist bera ábyrgðina
Í HNOTSKURN
»Alls hafa 12 einstaklingar,þar af einn útlendingur,
hlotið fálkaorðuna það sem af
er þessu ári. Í fyrra var fálka-
orðan veitt 40 einstaklingum,
þar af einum erlendum rík-
isborgara.
»Carol van Voorst hefurgegnt starfi sendiherra
Bandaríkjanna á Íslandi frá
því í janúar 2006.
Ólafur Ragnar
Grímsson
Carol
van Voorst
ÞÆR þökkuðu væntanlega sínum sæla fyrir að vera inni í hlýjunni í stað
þess að berjast við rigningu og rok, stúlkurnar sem hér sitja í söluskála í
Sandgerði.
Áhrif regnsins eru engu að síður mögnuð og gefa portretti ljósmynd-
arans áferð sem ekki er laust við að minni á olíumálverk sem komið er til
ára sinna.
Morgunblaðið/RAX
Þegar regnið bylur á rúðunni
VÖRUFLUTNINGABÍLL með
tengivagn valt á Vesturlandsvegi
við Hafnará um klukkan hálffimm í
gær. Vesturlandsvegur var lokaður
með hléum fram á kvöld á meðan
verið var að losa tengivagninn og
fjarlægja hann, að sögn lögregl-
unnar í Borgarnesi.
Var umferð hleypt í gegn með
reglulegu millibili, að sögn lög-
reglu.
Vörubíllinn var meðal annars að
flytja fisk í frystigámi. Mestur tími
fór í að losa tengivagninn og fjar-
lægja hann, að sögn lögreglunnar í
Borgarnesi.
Valt með
tengi-
vagn við
Hafnará
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Á vettvangi Björgunarsveitin Brák í Borgarnesi var kölluð út.
BÓKAÚTSALA!
Hafin er í Bóksölu stúdenta, Háskólatorgi,
Sæmundargötu 4, útsala á fjölda bóka
Háskólaútgáfunnar á fádæma lágu verði.
Líttu við og gerðu góð kaup
á öndvegisbókum!
SAMKOMULAG náðist í gær milli
yfirstjórnar lögreglu höfuðborgar-
svæðisins og Lögreglufélags
Reykjavíkur um að gefa sér góðan
tíma til að vinna að lausn á deilu um
nýtt vaktakerfi.
„Við erum að vinna þetta í sam-
vinnu við Lögreglufélagið,“ sagði
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á
höfuðborgarsvæðinu. Breytingar á
vaktafyrirkomulaginu munu þó taka
gildi hvað varðar nýju lögreglu-
stöðvarnar á höfuðborgarsvæðinu.
Auka valfrelsi um vinnutíma
Unnið verður að drögum að sam-
komulagi sem lagt verður fram til
kynningar fyrir 1. júní. Arinbjörn
Snorrason, formaður Lögreglu-
félags Reykjavíkur, sagði að þar
væri verið að horfa til aukins val-
frelsis í vinnutíma. Með því er átt við
að lögreglumenn geti lagað vinnu-
tímann að sínum óskum, t.d. með því
að óska eftir að taka frí sín á til-
teknum dögum. Vinnuskipulag
þeirra lögreglumanna sem verið
hafa á vöktum í almennu deildinni
verður óbreytt í sumar.
Stefán sagði að yfirstjórn lögregl-
unnar og Lögreglufélagið ætluðu að
gefa sér maímánuð til að ræða
vinnuskipulagið og ná sem bestri
sátt um málið. Horft yrði til þess að
nýtt fyrirkomulag gæti tekið gildi í
september nk.
Gefa sér
góðan tíma
Samkomulag Lögregla fundar.
LÆKNAR hafa
spurt mikið um
flensulyfið Tami-
flu í apótekum
Lyfju í dag og
seldust þeir tveir
skammtar sem til
voru mjög fljótt.
Ekki er von á
fleiri skömmtum
af Tamiflu í Lyfju á næstunni, en
flensulyfið Relenza á að rata í apó-
tekin á morgun. Töluvert fleiri
fyrirspurnir um Tamiflu hafa þá
borist innflytjanda lyfsins frá apó-
tekum sl. tvo daga. Gert er ráð fyrir
að ný sending af Tamiflu komi til
landsins í síðasta lagi á fimmtudag.
annaei@mbl.is
Mikið spurt
um tamiflu