Morgunblaðið - 29.04.2009, Side 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 2009
VEGAGERÐIN og Reykjavík-
urborg hafa endurnýjað samning
sinn um viðhald og rekstur þjóðvega
innan borgarmarkanna.
Í samningnum felst að fram-
kvæmda- og eignasvið borgarinnar
mun annast yfirlagnir malbiks, fræs-
un gatna, vetrarþjónustu, gatna-
merkingar, umferðarljós, umferð-
armerki, gatnahreinsun, gatna-
lýsingu, skiltabrýr og fleiri þætti er
tengjast þjóðvegum í Reykjavík.
Verkefnin eru nú þegar á vegum
Reykjavíkurborgar.
Með samstarfinu næst, að því er
segir í fréttatilkynningu frá fram-
kvæmda- og eignasviði Reykjavík-
urborgar, meiri hagkvæmni og
markvissari þjónusta á gatnakerfinu
innan borgarmarkanna. Sambæri-
legir samningar eru þá í gangi við
önnur sveitarfélög í nágrenni höf-
uðborgarinnar.
Samningur Vegagerðarinnar og
Reykjavíkurborgar hljóðar upp á
390 milljónir króna. En við gerð
hans var byggt á kostnaðarútreikn-
ingum Vegagerðarinnar og skrán-
ingu í verkbókhaldi framkvæmda-
og eignasviðs. Er heildarlengd gatna
samkvæmt fréttatilkynningunni
sambærileg við 95 km af hefðbund-
inni akbraut með eina akrein í hvora
áttina.
Borgin sjái áfram
um malbikun
390 milljóna samningur um viðhald
og rekstur þjóðvega í Reykjavík
ÞAÐ hefur reynst
Birgi Ármanns-
syni alþing-
ismanni happa-
drjúgt í þrennum
síðustu alþing-
iskosningum, að
vera í kjöri fyrir
Sjálfstæðisflokk-
inn í Reykjavík-
urkjördæmi suð-
ur.
Í kosningunum á laugardaginn
náði Birgir kjöri til Alþingis en Sig-
urður Kári Kristjánsson komst ekki
á þing, þótt Birgir hafi orðið einu
sæti neðar en Sigurður Kári í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins. Sigurður
Kári lenti í 5. sæti í prófkjörinu en
Birgir í því 6. Birgir raðaðist í 3. sæti
í Reykjavíkurkjördæmi suður, þar
sem flokkurinn fékk þrjá menn
kjörna. Sigurður Kári raðaðist í 3.
sæti í Reykjavíkurkjördæmi norður,
þar sem flokkurinn fékk aðeins tvo
menn kjörna.
Það sama gerðist í kosningunum
árið 2003. Þá lenti Ásta Möller í 9.
sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
en Birgir Ármannsson í 10. sæti.
Ásta raðaðist í 5. sæti í Reykjavík
norður og komst ekki á þing en
Birgir í 5. sæti í Reykjavík suður og
náði kjöri.
Ásta lýsti yfir vonbrigðum með að
ná ekki inn á þing og það hefði verið
salt í sárin að hún hefði náð betri ár-
angri en Birgir í prófkjörinu. Mar-
geir Pétursson, þáverandi formaður
fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík, sagði aðspurður, að ekki
hefði verið vilji til þess að halda
prófkjör í hvoru Reykjavík-
urkjördæmanna fyrir sig.
Í kosningunum 2007 var Birgir
aftur í 5. sæti D-lista í Reykjavík suð-
ur og náði kjöri en Sigríður Á. And-
ersen, sem var í 5. sæti í Reykjavík
norður, náði ekki kjöri.
sisi@mbl.is
Suðrið hefur
reynst Birgi
happadrjúgt
Birgir
Ármannsson
GUÐLAUGUR
Þór Þórðarson,
alþingismaður og
fyrrverandi heil-
brigðisráðherra,
segist mjög
ánægður með þá
niðurstöðu Innra
eftirlits Reykja-
víkurborgar að
ekki sé tilefni til
úttektar á störf-
um hans fyrir Orkuveitu Reykjavík-
ur á þeim tíma er hann var stjórn-
arformaður fyrirtækisins.
„Þetta er mjög ánægjuleg nið-
urstaða sem ekki kemur mér á
óvart,“ segir hann. „Þetta er sú
besta niðurstaða sem ég gat vonast
eftir.“
Innri endurskoðandi Reykjavíkur
segir m.a. í bréfi til Guðlaugs Þórs,
að fjallað hafi verið um málefni
Orkuveitu Reykjavíkur og Reykja-
vík Energy Invest á vettvangi stýri-
hóps borgarráðs Reykjavíkur um
málefni REI, af umboðsmanni Al-
þingis og auk þess hafi þrír lyk-
ilgerendur skrifað greinargerð um
atburðarás í aðdraganda samein-
ingar REI og Geysis Green Energy.
Þá hafi innri endurskoðun gert
stjórnsýsluúttekt á Orkuveitunni,
þar sem farið var yfir stjórn-
skipulag og ábyrgð verkefna og
lagt mat á ábyrgð og hlutverk
stjórnar OR á tímabilinu frá 1. jan-
úar 2005 til 1. febrúar 2008. Guð-
laugur Þór óskaði sjálfur eftir út-
tekt á störfum sínum eftir að
umræða fór af stað um aðild hans að
öflun tveggja stórra styrkja fyrir
Sjálfstæðisflokkinn árið 2006 frá
FL Group og Landsbankanum.
Mjög ánægð-
ur með nið-
urstöðuna
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur
gag@mbl.is
FRJÁLSI fjárfestingarbankinn
neitar viðskiptavinum sínum um að
setja fyrirvara við undirskriftir um
skilmálabreytingu lána, þar sem
stendur: „Með fyrirvara um betri
rétt neytenda.“ Hagsmunasamtök
heimilanna hafa hvatt fólk til að
setja slíkan fyrirvara til að fyr-
irbyggja að það fyrirgeri hugs-
anlegum skaðabótarétti sínum:
Annars vegar vegna forsendubrests
innlendu lánanna. Hins vegar þar
sem erlendu lánin séu ólögleg þar
sem þau séu krónulán tengd við
dagsgengi erlendra gjaldmiðla.
Rétt rúmlega fertugur maður
fékk slíka neitun í fyrradag: „Bank-
inn bauð mér að krota yfir fyr-
irvarann og setja stafina mína und-
ir eða þeir tækju ekki við
skuldbreytingarpappírunum.“
Ingólfur Friðjónsson, for-
stöðumaður lögfræðisviðs bankans,
segir tilvik sem þessi þrjú til fjögur
frá áramótum. „Höfnunin byggist
einfaldlega á því að ef menn myndu
leyfa að settur yrði hvaða fyrirvari
sem er inn á svona skjöl, skulda-
bréf eða skilmálabreytingar myndi
það skapa mikla [réttar]óvissu. Ég
get ekki ímyndað mér að nein lána-
stofnun samþykki að lána með ein-
hverjum fyrirvörum.“ Þá segir Ing-
ólfur að hann sjái ekki að þó menn
settu slíkan fyrirvara inn á skil-
málabreytingu lána, þar sem slíkur
fyrirvari hafi ekki verið í upphaf-
legum skilmálum, geti breytt rétt-
arstöðu þeirra.
Réttindin burt eða heimilið
Lántakandinn er í vanda: „Nú er
staðan sú að ég stend ekki undir að
borga af lánunum eins og þau eru.
Það er á hreinu. Ég þarf að velja á
milli þess að afsala mér öllum rétt-
indum og kyngja þessu eða standa
ekki undir láninu.“ Hann er með
innlent íbúðalán til fimmtán ára en
vill breyta því í fjörutíu ár. Hann
ætlar að leita til Hagsmuna-
samtaka heimilanna eftir leiðbein-
ingum áður en hann tekur ákvörð-
unina, því hann vill halda því opnu
að geta farið í málaferli við bank-
ann sannist að forsendurnar fyrir
láninu séu brostnar. Hann sagðist
ekki hafa fengið útskýringar á
höfnun fyrirvar-
ans frá bank-
anum. „Mér var
aðeins sagt að
bankinn tæki
skjölin ekki
svona,“ segir
hann. „Maður
spyr sig hvað
bankinn hræð-
ist.“
Vésteinn Gauti
Hauksson, varaformaður hags-
munasamtakanna, segir að í hvert
skipti sem fólk skrifi undir nýtt
plagg við lánastofnun samþykki
það þann höfuðstól sem standi á
því. „Íslenskir dómstólar gera þá
kröfu til fólks að það viti hvað það
er að samþykkja og gleyma að fólk
er nauðbeygt til að samþykkja nýja
skilmála þar sem það stendur ann-
ars frammi fyrir því að missa heim-
ili sín.“ Því sé fyrirvarinn nauðsyn-
legur.
Samtökin hvetja því þá sem fá
ekki að gera fyrirvara við skuld-
breytingu lána að senda viðkom-
andi bankastofnun tölvupóst og það
á fleiri en eitt netfang sem og afrit
af póstinum á netfangið: fyrirvari-
@heimilin.is. „Það er ekki verið að
breyta greiðsluupphæð lánanna
heldur aðeins að koma í veg fyrir
að menn tapi rétti sínum á bótum
sem þeir hugsanlega eiga,“ segir
Vésteinn. „Ef bankastofnunin er
svo sannfærð um að hún hafi brotið
á rétti almennings er eðlilegt að
hún haldi áfram að reyna að koma í
veg fyrir að fólk haldi í fyrirvar-
ann. En ef bankastofnunin heldur
að hún hafi verið að gera eitthvað
löglegt hefur hún enga ástæðu til
að setja sig upp á móti þessu. Þetta
er því samviskuspurning fyrir
bankastofnunina.“
Björn Þorri Viktorsson, lögmað-
ur hjá Lögmönnum Laugardal, sem
undirbýr málaferli gegn banka-
stofnunum vegna þróunar lánanna,
telur nægilegt að senda tölvupóst
en mælir heldur með því að menn
sendi símskeyti til að tryggja mót-
tökustimpil. „Þetta snýst um að
koma fyrirvaranum á framfæri með
nógu sannanlegum hætti.“ Hann
telji að setja megi fyrirvarann eftir
á sé bankinn mótfallinn honum á
skjölunum. „Með fyrirvaranum er
fólk ekki að biðja um aukinn rétt
heldur aðeins að vekja athygli á
þessu sérstaka ástandi sem uppi er
núna og áskilja sér allan rétt til að
halda til haga þeim rétti sem það
hugsanlega á í dag. Ef að banka-
stofnanir finna sig í því að koma í
veg fyrir það að viðskiptamenn
haldi þeim rétti sem þeir hugs-
anlega eiga í dag eru þær algerlega
að sýna sitt rétta andlit og ekki að
vinna með fólki í landinu.“
Þrjú hundruð hafa þegar leitað
til Björns Þorra og stefna á mála-
ferli vegna brostinna lána-
forsendna.
Hafna fyrirvara við lánin
„Ég þarf að velja á milli þess að afsala mér öllum réttindum og kyngja því eða
standa ekki undir láninu“ Telur fyrirvarann ekki breyta réttarstöðunni
Morgunblaðið/Kristinn
Metur stöðuna Bankastofnun tekur ekki við þessum skjölum um skuldbreytingu lána nema lántakandinn striki yfir
fyrirvarann sem hann setti eftir hvatningu frá Hagsmunasamtökum heimilanna.
Vésteinn Gauti Hauksson, varafor-
maður Hagsmunasamtaka heim-
ilanna, segir marga leita til sam-
takanna vegna vandkvæða
viðskiptavina í samskiptum við
bankana sína. „Hér liggur póstur á
hverjum einasta degi þar sem fólk
er í öngum sínum eftir samskipti
við bankana. Það leitar ráða og
spyr hvað það eigi að gera í stöð-
unni.“ Alls hafi 35 skráð sig í sam-
tökin í gær og félagsmenn séu nú
orðnir um 2.000 frá því að þau
voru stofnuð 15. janúar. „Fólk finn-
ur fyrir því að enginn annar sinnir
svona málum.“
Hagsmunasamtök heimilanna
eru frjáls og óháð og voru stofnuð
til varnar og hagsbóta fyrir heim-
ilin í landinu.
Fjöldi leitar til Hagsmunasamtaka heimilanna
Björn Þorri
Viktorsson
SVEFNSÓFA
20 - 30% AFSLÁTTUR!
H E I L S U R Ú MRekkjan ehf ≤≥ Suðurlandsbraut 48 (Bláu húsin í Faxafeni) ≥≥ 108 Reykjavík
588 1955 ≥≥ www.rekkjan.iS ≥≥ Opið virka d. 10–18 og lau 11–16
EITT MESTA ÚRVAL LANDSINS
AF SVEFNSÓFUM! Verð frá 37.840 kr.