Morgunblaðið - 29.04.2009, Qupperneq 11
Fréttir 11INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 2009
ALMAR Guð-
mundsson hefur
verið ráðinn
framkvæmda-
stjóri FÍS. Almar
lauk prófi í hag-
fræði frá Há-
skóla Íslands ár-
ið 1997 og
MBA-prófi frá
London Business
Schoool árið
2005. Hann hefur víðtæka reynslu
úr fjármálageiranum og starfaði í
rúm 11 ár hjá Íslandsbanka í ýms-
um deildum bankans. Hann hefur
einnig sinnt kennslu við HR.
Almar nýr fram-
kvæmdastjóri FÍS
Almar
Guðmundsson
VIÐSKIPTAVINIR Nýja Kaup-
þings sem eru með netbanka fá nú
öll yfirlit hjá bankanum send raf-
rænt til sín. Þetta sparar þúsundir
króna í sendingarkostnað árlega.
Þá getur fólk sparað sér sending-
arkostnað með því að afpanta papp-
írsyfirlit fyrir VISA, Mastercard,
lífeyri og greiðsluseðla.
Rafrænt yfirlit
Hafnarfjarðarbær hvetur Hafnfirð-
inga til að hreinsa lóðir sínar og
garða í árlegri hreinsunarviku bæj-
arins. Starfsmenn þjónustumið-
stöðvar Hafnarfjarðar fara um bæ-
inn á meðan á hreinsunardögum
stendur og fjarlægja garðaúrgang
sem settur er út fyrir lóðamörk.
Að hreinsunarvikunni lokinni
þurfa bæjarbúar sjálfir að sjá um
að koma garðaúrgangi til endur-
vinnslustöðva Sorpu og Gámaþjón-
ustunnar.
Morgunblaðið/Golli
Taka garðaúrgang
í hreinsunarviku
SJÁVARÚTVEGS- og landbún-
aðarráðherra hefur ákveðið að
Matís ohf. flytji starfsemi sína í nýtt
húsnæði um næstu áramót.
Matís starfar nú á þremur stöð-
um víðs vegar um borgina. Ákveðið
hefur verið að semja við bygging-
arfélagið Mótás sem boðið hafði
fram leigu á 3.800 fermetra hús-
næði á Vínlandsleið 12 í Reykjavík.
Húsnæðið sem nú er fokhelt er á
þremur hæðum ásamt kjallara og
mun leigusali innrétta húsnæðið og
skila því fullfrágengnu. Leigusali
hefur áætlað að mannaflaþörf,
þ.m.t. afleidd störf við að fullgera
húsnæðið, séu um 200 ársverk.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Matís í nýtt húsnæði
ALLIR landsmenn 30-85 ára munu
fá sendan rafrænan happdrætt-
ismiða frá Blindrafélaginu og munu
þeir birtast sem valkrafa í heima-
bönkum þeirra.
Alls eru 207 vinningar í boði,
tveir bílavinningar, 130 ferðavinn-
ingar og 75 gistivinningar frá Foss-
hótelum. Allir sem taka þátt munu
auk þess fá ókeypis sjóntryggingu
sem gildir til áramóta.
Blindrahappdrætti
ÁRATUGUR er á föstudaginn síðan
Flugsafn Íslands var stofnað; það
var 1. maí 1999 og hét þá reyndar
Flugsafnið á Akureyri en nafninu
var breytt fyrir nokkrum árum.
Safnið var formlega opnað 24. júní
árið 2000 þegar haldin var fyrsta
sinni svokölluð flughelgi safnsins í
samvinnu við Flugmálafélag Íslands,
sem síðan er árlegur viðburður.
Aðalhvatamaður að stofnun safns-
ins var Svanbjörn Sigurðsson og hef-
ur hann verið safnstjóri frá upphafi.
Með Svanbirni unnu ýmsir áhuga-
menn um íslenska flugsögu og varð-
veislu gamalla flugvéla og margir
góðir gripir hafa bæst í safnið síðan
það var stofnað.
Safnið er opið alla daga vikunnar
yfir sumarið. Í tilefni tímamótanna
verður opið á afmælisdaginn, 1. maí,
kl. 13 til 17 og á laugardaginn verður
opið kl. 10 til 17 í tilefni af Eyfirska
safnadeginum.
Tíu ára afmæli
Flugsafns Íslands
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Glæstir gripir Stjórnklefi Gullfaxa, fyrstu þotu Íslendinga, bættist við safn-
kostinn í vetur. Bjartur Geir Gunnarsson, átta ára, skoðaði þá klefann.
Opið hús í safninu á Akureyri á föstudag
Nýir svefnsófar
– íslensk framleiðsla
20% kynningarafsláttur