Morgunblaðið - 29.04.2009, Qupperneq 21
21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 2009
ÁRIÐ 1979 kom út bók, „Sjálf-
stæðisstefnan“, í samantekt Hann-
esar H. Gissurarsonar. Voru þar úr-
valsgreinar og ræður eftir fyrrum
formenn flokksins og tvo hagfræð-
inga sem lengi önnuðust leiðsögn
fyrir flokkinn í efnahagsmálum.
Annar þeirra er Ólafur Björnsson
prófessor. Grein hans birtist í tíma-
ritinu Þjóðmál árið 1959 og nefndist
„Stefna Sjálfstæðisflokksins í efna-
hagsmálum“. Þar rekur hann yf-
irburði markaðsbúskapar: „Frjáls
markaður er það tæki sem best
tryggir að óskir og þarfir ein-
staklinga séu uppfylltar, eins og þær
koma fram í eftirspurninni á mark-
aðnum, sem aftur stjórnar fram-
leiðslunni. Ekki er þó unnt að
treysta á hinn frjálsa markað til
lausnar á öllum verkefnum, þau
verkefni verður hið opinbera að ann-
ast: Dómsmál og löggæslu, skóla-
mál, stjórn peningamála og margt
fleira.“ Um peningamál segir hann:
„Gera þarf sérfræðilega athugun á
því á hverju ári hve mikil heildar-
útlán bankanna megi vera hverju
sinni, þannig að ekki leiði til verð-
bólguþróunar, en síðan verður rík-
isstjórnin ásamt Seðlabankanum að
sjá um það, að útlánum bankanna sé
hagað í samræmi við það.“ Grein
Ólafs er 50 ára á þessu ári og stend-
ur hvert orð sem þar er ritað enn
óhaggað.
Dýrar tilraunir gerðar
Hinn hagfræðingurinn er Jónas
H. Haralz og er greinin útdráttur úr
ræðu á landsfundi 1973, „Frjáls-
hyggjan er forsenda valddreif-
ingar“. Hann fjallar eins og Ólafur
um yfirburði frjáls vals á markaði,
sem leiði í senn til sem mestrar upp-
fyllingar þarfa fólks og hagkvæm-
ustu framleiðslu þjóð-
félagsins. Síðan
undirstrikar hann að
„svar frjálshyggj-
unnar er ekki ein-
göngu fólgið í frjálsu
markaðskerfi. Starf-
semi einstaklinga og
fyrirtækja verður að
vera innan sérstaks
ramma sem rík-
isvaldið er ábyrgt fyr-
ir. Þessi grundvöllur
felur í sér löggjöf og
þjónustu í mörgum
greinum. Umfram allt felur það í sér
að fylgt sé samræmdri stefnu í efna-
hagsmálum, í fjármálum og peninga-
málum fyrst og fremst. Annars verð-
ur ekki komist hjá hagsveiflum,
verðbólgu eða kreppum og atvinnu-
leysi“. Jónas heldur áfram: „Það
myndi ekki koma mér á óvart að fyr-
ir komandi kynslóð lægi að koma
auga á yfirburði frjálshyggjunnar í
miklu ríkari mæli en hún virðist gera
sem stendur. En áður en það verður
getur verið að dýrar tilraunir hafi
verið gerðar, alvarlegir
árekstrar orðið og mikil
verðmæti farið í súginn,
af því að ekki var hirt
um að kynna sér
reynslu fyrri tímabila
né nægileg rækt lögð
við að túlka ný viðhorf í
ljósi þeirrar reynslu.“
Þessi 36 ára gömlu orð
Jónasar eru athygl-
isverð í ljósi nýlegra at-
burða.
Blandað hagkerfi
Hagstjórn okkar verður að miðast
við „blandað hagkerfi“. Það eru fleiri
en sjálfstæðismenn sem hafa komið
að þessari „blöndu“. Við búum t.d.
enn við „sovétskipulag“ í heilbrigð-
ismálum, þar sem markaðskerfinu
er kippt úr sambandi og þessi mik-
ilvægi rekstur gerður að bagga á
ríkissjóði. Þó „moðið á miðjunni“ sé
leiðinlegt verðum við að sætta okkur
við staðreyndir. Hugmyndafræði má
ekki rugla hagstjórn. Ríkið á að
tryggja að ákveðnir hlutir séu gerðir
og stunda eftirlit. Að menn virði t.d.
lög og rétt og ógni ekki almanna-
heill.
Skeið vaxtar og velgengni
Mesta hagvaxtarskeið í sögu
landsins endaði með ósköpum.
Frjálsræðið reyndist sumum ofviða.
Erlendir bankar sýndu mikið
ábyrgðarleysi. Stjórnvöld gættu
ekki að aðhaldi og aga í peninga- og
ríkisfjármálum. Frelsi er samt án
vafa besta leiðin í atvinnulífinu, en
frelsi kallar jafnframt á aga og
ábyrgð. Frelsi sem ábyrgð fylgir
þarf að leysa oftrú á afskiptaleysi af
hólmi. Hagsveiflur eiga ekki að vera
stóráföll, aðeins úrlausnarefni. Til að
komist verði hjá kröppum hag-
sveiflum þarf stjórn peninga- og
fjármála ríkisins að vera styrk. Á
meðan helstu gjaldmiðlar stóðu á
„gullfæti“ var verðlag stöðugt. Líta
má til ca. 150-200 ára fyrir Krepp-
una miklu í þeim efnum. Hagsveiflan
var á þessum tíma tekin út í atvinnu-
stiginu og velferð ekki hátt skrifuð.
Ef lítið hagkerfi tekur upp stóran
gjaldmiðil er þar komið á slíku
ástandi. Sumum finnst það heil-
brigðara en verðbólga, en það er
a.m.k. harðneskjulegri hagstjórn en
við eigum að venjast. Við setjum
frekar hugmyndir um ábyrgð, vel-
ferð og farsæld í öndvegi í hagstjórn.
Frelsi sem ábyrgð fylgir
Ég hygg að Ólafur hefði skrifað
upp á textann og Jónas var á lands-
fundinum, þar sem ályktað var: „Allt
frelsi kallar á aga og ábyrgð. Starf-
semi einstaklinga og fyrirtækja
verður þannig að vera innan marka
sem ríkisvaldið er ábyrgt fyrir. Þessi
mörk fela í sér lög, reglur og eftirlit,
en umfram allt fela þau í sér að fylgt
sé samræmdri stefnu í efnahags-
málum, einkum í fjármálum ríkisins
og peningamálum. Standa verður
vörð um viðskiptafrelsi. Ríkisvaldið
á að tryggja að menn virði lög og
reglur og ógni ekki almannaheill.
Við verðum að læra af reynslu fyrri
tímabila og túlka ný viðhorf á hverj-
um tíma í ljósi þeirrar reynslu. Sjálf-
stæðisflokkurinn mun áfram vinna
að hugsjónum um frelsi sem ábyrgð
fylgir og setja hugmyndir um
ábyrgð og farsæld í öndvegi, þar á
meðal í hagstjórn.“ Skerpt hefur
verið á stefnunni. Ekki er líklegt að
þær áherslur gleymist á næstunni.
Eftir Ragnar Önundarson »Ríkið á að tryggja að
ákveðnir hlutir séu
gerðir og stunda eftirlit.
Að menn virði t.d. lög og
rétt og ógni ekki al-
mannaheill.
Ragnar Önundarson
Höfundur er viðskiptafræðingur,
bankamaður og áhugamaður um
hagstjórn.
Orð Ólafs og Jónasar standa óhögguð
Prestar hjálpa prestum Kári sá til þess að hempufaldar lyftust og kragar aflöguðust við upphaf prestastefnu í gær. Þá var gott að eiga góða vini að; svona
til að hjálpa upp á að allt liti rétt út. Á prestastefnu verður rætt um stöðu samfélags og kirkju út frá umræðu í þjóðfélaginu og nýja framtíðarsýn.
Kristinn
Jón Agnar Ólason | 28. apríl 2009
Eins gott – því þú
skuldar!
Það er alveg stórbrotið að
David Lynch skuli vera að
predika innhverfa íhugun
og í framhaldinu andlegt
jafnvægi... það er svona
álíka rökrétt samhengi
eins og Steingrímur Joð að predika
frjálshyggju og anarkistískan kapital-
isma. Í bland við kosti ESB! Ekki mis-
skilja mig, ég held alveg hrikalega upp á
David Lynch; mér þykja flestar mynd-
irnar hans mergjuð upplifun og hef sér
þær aftur og aftur. ... En verk hr. Lynch
skilja ekki beint við mann í andlegu jafn-
vægi og melló fíling. Maður er jafnan á
hliðinni yfir öllu sálræna áreitinu, ósvör-
uðu spurningunum og óræða myndmál-
inu. Eigum við að ræða Lost Highway?
Eða Mulholland Drive? Þetta er nátt-
úrulega geggjun – hrein vitskerðing.
Kannski hefur hann séð merki þess
hversu margir eru í andlegu ójafnvægi í
kjölfar þess að hafa horft á myndir hans
og sjónvarpsefni, og vill í framhaldinu
rétta sök sína af með því að taka mann-
skapinn í smá innhverfa íhugun. Hann
skuldar fjölda manns sálarró og geð-
heilsu.
Meira: jamesblond.blog.is
Ómar Valdimarsson | 28. apríl 2009
Heiðurslaun
Mér finnst ég mega til að
taka upp hanskann fyrir
Þráin Bertelsson. ... . ...Í
fljótu bragði man ég eftir
Matthíasi Johannessen
sem er í heiðurs-
launaflokki og var jafnframt ritstjóri
Morgunblaðsins áratugum saman. Ég
man ekki betur en að hann hafi litið á
þetta svipuðum augum og Þráinn: að
það væri verið að heiðra hann og að það
kæmi daglegu brauði ekkert við. Engum
dettur í hug að taka gullverðlaunapening
af íþróttamanni fyrir það eitt að hann
skiptir um íþróttafélag.
Meira: umbiroy.blog.is
„JÁ SVO er það kærleikurinn. Varaðu þig á því
að þeir blessaðir sem þýddu Biblíuna misskildu kær-
leikann og hlutverk hans.“ Gömul kona á fyrri hluta
síðustu aldar bendir ungri sonardóttur með band-
prjóni á orð Biblíunnar og skýrir út orð um leið og
undur þess að verða að verkfæri til að skynja og
skilja hefur tekið sér bólfestu í vitund telpunnar.
Svo kemur áréttingin: „Kærleikurinn umber ekki
allt – hann umlykur allt. Kærleikurinn breiðir ekki
yfir allt. Hann breiðir sig yfir allt.“ Og gamla konan
hvíslar: „En blaðraðu ekki um þetta, taktu bara eft-
ir hve auðvelt er að fara eftir þýðingunni. Fróðir
menn utan úr stóru veröldinni hafa skrifað lærðum
frænda mínum þetta.“
Þessu skaut upp í vitundina er hlustað var á
merkasta útvarpsefni RÚV um páskana er þeir
Hilmar allsherjargoði og séra Hjörtur Magni Frí-
kirkjuprestur í Reykjavík mættust á miðpunkti Ís-
lands og litu til allra átta – sameinuðust í ást á móð-
ur náttúru sem birtist þeim í óendanleikanum.
Jenna Jensdóttir
Misskilinn kærleikur?
Höfundur er rithöfundur.
BLOG.IS