Morgunblaðið - 17.05.2009, Side 25
25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. MAÍ 2009
B
ein tóku að skjálfa í Ély-
sée-höll í París á dög-
unum þegar út spurðist
að gamall trún-
aðarvinur Cörlu Bruni-
Sarkozy forsetafrúar, Franck
Demules að nafni, væri að gefa út
endurminningar sínar undir yf-
irskriftinni Skreppitúr til heljar.
Demules þessi hefur víst setið inni
og stundað ótæpilegar efnarann-
sóknir á eigin líkama. Hann starf-
aði m.a. í áratug sem bílstjóri frú
Bruni-Sarkozy á fyrirsætuárum
hennar.
En hvað var a’tarna? Demules
hefur ekkert nema gott um for-
setahjónin að segja og staðhæfir
raunar að þau hafi bjargað sér frá
glötun. Eftir að sú auma skepna
þunglyndi knúði dyra hjá Demules
á liðnu ári sökkti hann sér á ný í
flöskuna. Bruni-Sarkozy skarst þá
í leikinn og bókaði rými fyrir hann
á meðferðarstofnun í París fyrir
orð vinkonu sinnar, konunnar með
leðurlungun, Marianne Faithfull.
Við brautskráninguna úr með-
ferðinni segir Demules Nicolas
Sarkozy Frakklandsforseta hafa
stappað í sig stálinu, hvatt sig til
að horfa fram veginn og hella sér
út í vinnu. Fyrir þau ráð er hann
ævinlega þakklátur.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
Bruni-Sarkozy kemur Demules til
bjargar. Eftir að eiginkona hans
lést af völdum alnæmis á síðasta
áratug, útvegaði hún honum vinnu
og húsnæði, auk þess að greiða
skólagjöld dóttur hans. Þá skar
hún upp herör gegn Bakkusi fyrir
hans hönd.
Inn á gafl hjá Sir Mick?
Annars er það af forsetahjón-
unum frönsku að frétta að þau eru
að leita sér að samastað í höf-
uðborginni. Sarkozy flutti inn til
spúsu sinnar eftir brúðkaup þeirra
í fyrra en hermt er að hann finni
sig illa þar enda svífi andi gamals
elskhuga Bruni og barnsföður,
Raphaëls Enthovens, yfir vötnum.
Á dögunum sást til hjónakorn-
anna skoða íbúð, sem áður var í
eigu tískufrömuðarins sáluga Yves
Saint Laurent á vinstribakka
Signu. Það væri svo sem ekki í
frásögur færandi nema fyrir þær
sakir að gamli rokkhundurinn Sir
Mick Jagger á íbúð í sama húsi.
Sem kunnugt er voru þau Carla
Bruni elskendur um árabil áður en
hún féll fyrir forsetanum.
Breska blaðið The Times hefur
eftir vini hjónanna að þeim hafi
einu sinni lent saman yfir kvöld-
verði vegna tengsla Bruni við Sir
Mick.
„Þegar gula pressan er annars
vegar ert þú algjör viðvaningur,“
á Bruni að hafa sagt við bónda
sinn. „Við Mick héldum sambandi
okkar leyndu í átta ár. Við heim-
sóttum allar helstu borgir heims
saman og það náðist ekki ein ein-
asta ljósmynd af okkur.“
Þá varð Sarkozy víst að orði:
„Hvernig gastu verið í átta ár með
manni sem hefur svona hlægilega
kálfa?“ orri@mbl.is
Reuters
Forsetahjón Carla Bruni-Sarkozy og Nicolas Sarkozy ræða málin.
Brunaliðið
til bjargar
Reuters
Ólseigur Gamla brýnið Mick Jagger.
* *