Morgunblaðið - 23.05.2009, Page 25
SAMSTÖÐUFUNDUR
HAGSMUNASAMTAKA
HEIMILANNA
Í ljósi þess neyðarástands sem ríkir á Íslandi boða Hagsmunasamtök heimilanna til
samstöðufundar á Austurvelli laugardaginn 23.5.2009 kl. 15.00
Við teljum að þær aðgerðir sem stjórnvöld hafa ákveðið að grípa til séu því miður hvergi nærri
fullnægjandi. Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins munu 28.500 fjölskyldur á
Íslandi (um 30%), skulda meira en þær eiga í árslok 2009. Árið 2007 var um að ræða 7.500
fjölskyldur. Þetta er 380% aukning.
Umrædd neikvæð eiginfjárstaða er fyrst og fremst til komin vegna höfuðstólshækkana
gengis- og verðtryggðra lána. Lánin hafa rokið upp úr öllu valdi í kjölfar verðbólguskotsins sem
orsakaðist af gengishruni krónunnar. Við höfnum því alfarið að almenningur verði látinn sæta
ábyrgð á efnahagshruninu með þessum hætti.
Hagsmunasamtök heimilanna vilja:
• Að gengis- og verðtryggð lán verði leiðrétt með almennum aðgerðum
• Að áhætta milli lánveitenda og lántakenda verði jöfnuð
• Afnema verðtryggingu
• Að veð takmarkist við þá eign sem sett er að veði
• Samfélagslega ábyrgð lánveitenda
Ræðumenn:
Bjarki Steingrímsson, varaformaður V.R.
Guðrún Dadda Ásmundardóttir, í stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna
Ólafur Garðarsson, í stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna
Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarstjórnarfulltrúi
Hljómsveitin EGÓ kemur fram
TÖKUM STÖÐU MEÐ HEIMILUNUM
www.heimilin.is