Morgunblaðið - 23.05.2009, Síða 52

Morgunblaðið - 23.05.2009, Síða 52
LAUGARDAGUR 23. MAÍ 143. DAGUR ÁRSINS 2009 »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Grunaðir um auðgunarbrot  Gerð var húsleit á tólf stöðum í gær í tengslum við rannsókn emb- ættis sérstaks saksóknara á kaup- um eignarhaldsfélagsins Q Iceland Finance á um fimm prósenta hlut í Kaupþingi í september síðast- liðnum. Grunur leikur á að við- skiptin hafi verið til þess fallin að veita rangar og villandi upplýs- ingar um stöðu Kaupþings. »1 Allt undir í Karphúsi  Stöðug fundahöld eru nú í húsi ríkissáttasemjara þar sem reynt verður að ná víðtæku samkomulagi um launabreytingar. Stefnt er að því að samkomulag liggi fyrir 29. maí og sáttmálapakki 9. júní. »6 Sex vilja reka löggubíla  Sex fyrirtæki hafa lagt inn átta tilboð í rekstur bílamiðstöðvar lög- reglunnar. »2 SKOÐANIR» Staksteinar: Græna litnum stolið Forystugreinar: Obama vill vernda hvali | Upplýsingar og áhætta Pistill: Konan sem kvað Völuspá Ljósvaki: Bjargvætturinn UMRÆÐAN» Þjóðþrifamál að auka framleiðslu … Sýklalyfjagjöf – Tökum ábyrgð … Sendill Samfylkingar treður sér fram Íslenski (karla)boltinn Börn: Átti alls ekki von á sigri Refurinn og hrafninn Lesbók: Uppreisnarseggirnir ólíklegu Tónlistin mun gera yður frjálsa BÖRN | LESBÓK »                        !    " # $ %  %  " &' ("' "  ) *+,-./ +00-12 **+-0/ +3-/+* *2-4*. *,-414 **,-*. *-3..+ *21-*+ */,-,3 5 675 ++#  8 +002 *+,-// +0*-04 **+-.0 +3-/20 *2-4/+ *,-20/ **,-., *-3.4* *21-/0 *//-*+ ++2-+13, &  9: *+/-0/ +0*-1/ **+-/3 +3-412 *2-230 *,-21, **,-/4 *-31+0 *2,-+4 *//-,* Heitast 14°C | Kaldast 7°C  Rigning sunnan til. Þykknar upp með vætu fyrir norðan þeg- ar líður á daginn. Læg- ir f. sunnan síðdegis. »10 Það er ákveðin al- vara í Fúlar á móti, en allt gert af létt- leika, segir leikstjóri verks sem hefur slegið í gegn. »42 LEIKLIST» Líf miðaldra kvenna TÓNLIST» Eiga tónleikagestir von á norsku ævintýri? »46 Listakonurnar Ólöf Arnalds og Ásdís Sif Gunnarsdóttir fóru inn í ævintýraheim við gerð myndverks fyrir nýja plötu. »45 MYND- OG TÓNLIST» Sjónrænn díalógur FÓLK» Hómer Simpson á leið í hæfileikakeppni. »51 KVIKMYNDIR» Mynd Gilliams – ást- arbréf Ledgers. »48 Menning VEÐUR» 1. Lést í vélhjólaslysi 2. Húsleit gerð á 10 stöðum 3. Týndi bróðirinn bjó í næsta húsi 4. Leitað á heimili Ólafs  Íslenska krónan veiktist um 0,5% »MEST LESIÐ Á mbl.is Morgunblaðið/Heiddi Hæfileikarík María Lind Sigurðardóttir hefur svo sannarlega mörg járn í eldinum. Hún er afbragðs námsmaður, varð Íslandsmeistari í körfubolta með Haukum fyrr í vor og stefnir á burtfararpróf í píanóleik með haustinu. Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is „ÉG hef mikinn áhuga á náminu og metnað. Ég reyni þannig alltaf að gera mitt allra besta,“ segir María Lind Sigurðardóttir, sem útskrif- aðist með hæstu einkunn á stúdents- prófi frá Kvennaskólanum í Reykja- vík í ár. Hún útskrifaðist af náttúrufræðibraut með einkunnina 9,61. Þess má raunar geta að María var með meðaleinkunnina 10 á bekkjarprófum á fjórða og síðasta ári skólans. „Á þessu síðasta ári valdi ég þau fög sem ég hef mestan áhuga á, þ.e. stærðfræði, efnafræði og eðlisfræði, þannig að það útskýrir sennilega af hverju ég fékk tíu í öll- um prófum,“ segir María og tekur fram að vissulega sé hún líka sam- viskusöm og eyði dágóðum tíma í heimalærdóminn. Æfir körfubolta og spilar á píanó í frítímanum En það er samt ekki svo að María eyði öllum frítíma sínum í heima- námið því hún æfir körfubolta fimm sinnum í viku og er auk þess í píanó- námi í Tónlistarskólanum í Hafn- arfirði en hún stefnir að því að ljúka burtfararprófi frá skólanum næsta vetur. Skömmu áður en vorprófin hófust varð María auk þess Íslands- meistari í körfubolta með Haukum. „Það var mjög gaman. Það var svo góður andi í liðinu og við skemmtum okkur vel þannig að það fleytti okk- ur áfram í vetur.“ Aðspurð segir María agann og skipulagið sem einkenni bæði körfu- boltann og píanónámið hafa gagnast sér vel í öllu skólastarfi. „Ég byrjaði að spila á píanó þegar ég var 10 ára og hóf að leika körfubolta 11 ára, þannig að ég hef alltaf haft mikið að gera,“ segir María og bætir því við að það sé alltaf gott að stefna að ein- hverju auk þess sem stuðningurinn heima fyrir skipti miklu máli. „Fjöl- skyldan hefur alltaf verið dugleg að mæta á alla leiki og tónleika.“ María stefnir á háskólanám með haustinu og ætlar að innrita sig í Há- skóla Íslands. Hún segist hins vegar ekki enn vera búin að gera upp við sig hvaða nám verði fyrir valinu. „Læknisfræðin kemur sterklega til greina en hins vegar finnst mér líka spennandi að fara í efnafræði eða líf- efnafræði,“ segir María og tekur fram að ljóst megi vera að drauma- starfið feli í sér að vinna að einhvers konar rannsóknum. „Reyni að gera mitt besta“ Dúx frá Kvenna- skólanum með ein- kunnina 9,61 HIN danska Charlotte Munck er leikari. Sjónvarpsáhorfendur eru farnir að þekkja karakter Önnu Pihl, sem hún leikur í samnefndri þáttaröð sem sýnd er í Ríkissjón- varpinu, en Munck er nú komin hingað til lands sem hljóðfæraleik- ari. Hún er stödd hér ásamt hljóm- sveit sinni, Hess is More, sem held- ur tónleika í Norræna húsinu í kvöld. „Það var strax um borð í flugvél- inni sem manneskja kom til mín og sagðist hafa verið að horfa á mig í sjónvarpinu á sunnudaginn,“ sagði Munck í gær. Hún segist finna vel fyrir því að landsmenn fylgist margir með þáttunum. Munck segist hafa verið viðloð- andi tónlist allt sitt líf. „Lengi vel stefndi ég að því að starfa eingöngu við hana. Það var áður en ég komst að því að leiklistin var líka val- möguleiki,“ sagði hún. | 44 Morgunblaðið/Eggert Charlotte Munck Leikur Önnu Pihl í samnefndum sjónvarpsþáttum. Leikur Pihl í sjónvarpinu og á hljóðfæri í kvöld ÓLAFUR Þórðarson þjálfari Ár- bæjarliðsins Fylkis í Pepsi-deild karla í fótbolta er ánægður með byrjunina hjá liðinu á Íslandsmótinu. Fylkir hefur enn ekki fengið á sig mark og segir þjálfarinn að hver ein- asti leikur hjá Fylki sé lagður upp sem úrslitaleikur. „Það hlýtur að gleðja stuðningsmenn Fylkis að við keyrum liðið áfram nær eingöngu á Fylksmönnum,“ segir Ólafur í viðtali við Morgunblaðið | Íþróttir Ánægja í Árbænum Líkt og þrjú síðustu sumur mun María Lind Sigurðardóttir í sum- ar vinna í sumarbúðum fyrir fatlaða í Reykjadal sem Styrkt- arfélag lamaðra og fatlaðra rek- ur. Í samtali við Morgunblaðið segir María þetta draumasum- arstarfið. „Þetta er það skemmtilegasta sem ég geri. Maður fær að vera úti að leika sér og fíflast allt sumarið,“ segir María og tekur fram að það spilli ekki hvað bæði samstarfsfólkið og gest- irnir sem koma í sumarbúðirnar séu skemmtilegir krakkar. „Auk þess felst í starfinu mik- il áskorun, því þetta er ekki allt- af auðvelt,“ segir María. Að- spurð segist hún byrja að vinna strax á mánudaginn kemur og vinna fram í miðjan ágústmán- uð, en þá taki við stutt frí áður en háskólinn byrji. Skemmtilegasta sumarstarfið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.