Morgunblaðið - 23.08.2009, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 2009
ostur
Ríkur af mysupróteinum
Bra
gðg
óð
nýju
ng
9%
aðeins
Prófaðu nýja braðgóða Fjörostinn,
fituminnsta kostinn í ostaúrvali dagsins.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson
Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
„VIÐ íbúarnir kröfðumst þess að hinn
svokallaði athugasemdafrestur, vegna
breytingar á deiliskipulagi, yrði fram-
lengdur. Það sem öllu skiptir er að reyna
að vinna að málum í sátt við íbúa, og það
hefur því miður ekki verið gert til þessa
og ekki tekið mark á skoðunum þeirra.
Auk þess þarf að svara því almennilega
hvers vegna þessar breytingartillögur eru
að koma fram. Vond reynsla er af því að
kollvarpa upphaflegum skipulagshug-
myndum í miðbænum, eins og því miður
sést víða núna. Borgarfulltrúarnir eru
ekki hæfir til þess að taka ákvarðanir um
skipulagsmál í miðbænum,“ segir Kári
Halldór Þórsson, íbúi við Bergstaðastræti.
Íbúar í miðbæ Reykjavíkur, einkum við
Bergstaðastræti, Spítalastíg, Grundarstíg
og Bjargarstíg, hafa lengi beðið eftir því
að frágangi á húsum og lóðum á horni
Bergstaðastrætis og Spítalastígs ljúki.
Stefna í þeim málum tók breytingum
eftir að tillaga kom fram hjá borgaryfir-
völdum um að byggja þar um 40 smáíbúð-
ir, svokallaðar hótelíbúðir. Umsækjandinn
um breytinguna á deiliskipulaginu er
eignarfélagið Laug ehf. en arkitektastofan
Krads vann að útfærslu á reitnum.
Samkvæmt hugmyndunum mun ný-
bygging rísa á lóðinni við Spítalastíg 6B
og íbúðarhúsnæði á Bergstaðastræti 16 til
20 breytt í hótelíbúðir.
Íbúar í næsta nágrenni við það svæði
sem stendur til að nota undir hótelíbúðir
hafa mótmælt þessum áformum kröftug-
lega og sagt þær ólöglegar, þar sem þær
samræmist ekki aðalskipulagi.
Skipulagsyfirvöld Reykjavíkurborgar
hafa hins vegar svarað því til að notkunar-
breytingin á fyrrnefndu svæði samrýmist
landnotkun í aðalskipulagi, og því sé þetta
leyfilegt. Auk þess sé brýn þörf á því að
koma umræddum reit í gagnið.
Miðborgarbúar vilja skýringar
Breytingartillaga á deiliskipulagi vegna byggingar á íbúðahóteli við Bergstaðastræti fellur íbú-
um í miðbænum ekki í geð Þeir vilja að málið sé kynnt betur Vilja frekar hefðbundna byggð
Morgunblaðið/Kristinn
Skilti Íbúar settu í gær upp mótmælaskilti við reitinn þar sem hótelíbúðir eiga að rísa.
ÞEIR voru glaðbeittir hlaupararnir í Reykjavík-
urmaraþoni Íslandsbanka, sem fram fór í gær.
Hér sést einn þátttakenda veifa til ljósmyndara
Morgunblaðsins. Samtals voru 11.136 skráðir til
þátttöku í hlaupinu en það bættist nokkuð við í
Latabæjarhlaupið fram á síðustu stundu.
Morgunblaðið/Kristinn
GLEÐIN VAR RÍKJANDI Í MARAÞONINU
„VEGNA fréttar Morgunblaðsins í
dag [laugardag] vilja Hagar koma á
framfæri að rangt er að félagið sé í
gjörgæslu eins og slegið er upp á for-
síðu blaðsins. Þvert á móti hefur
rekstur Haga gengið vel. Ljóst er að
félagið getur staðið við allar sínar
skuldbindingar. Nýliðinn júlímánuð-
ur var einn sá besti í sögu félagsins.
Því er augljóst að stefna félagsins að
bjóða sama verð um land allt fellur
viðskiptavinum vel.
Hagar harma að Morgunblaðið
skuli vinna með þessum hætti, þar
sem augljóst er að markmið blaðsins
er að kasta rýrð á öflugt og traust
fyrirtæki, sem er í góðum rekstri.
Afstaða Morgunblaðsins gagnvart
félaginu og framsetning á umræddri
frétt er með ólíkindum, þar sem í
fréttinni kom skýrt fram hjá undir-
rituðum að verið er að framkvæma
árlegt virðisrýrnunarpróf vegna árs-
uppgjörs félagsins. Virðisrýrnunar-
próf er viðamikil úttekt á rekstri og
efnahag fyrirtækja og hluti af reikn-
ingsskilum. Virðisrýrnunarpróf er
ein af forsendum þess að endurskoð-
endur undirriti ársreikninga félags-
ins. Í ár er prófið framkvæmt af fyr-
irtækjaráðgjöf Nýja Kaupþings, en í
síðasta uppgjöri var prófið fram-
kvæmt af Capacent. Virðisrýrnunar-
prófið í ár staðfestir traustan rekst-
ur félagsins.
Með kveðju,
Finnur Árnason.“
Aths. ritstj.
Morgunblaðið byggir frétt sína á
áreiðanlegum heimildum og stendur
við hana í einu og öllu. Í henni er sagt
frá staðreyndum; engin afstaða til
fyrirtækisins kemur fram.
Athuga-
semd
frá Högum
„ÉG er mjög bjartsýnn á að við verð-
um búin að manna allar lausar stöð-
ur á frístundaheimilunum á allra
næstu dögum. Við höfum aldrei að
hausti staðið jafn vel og einmitt
núna,“ segir Kjartan Magnússon,
formaður fræðsluráðs Reykjavíkur.
Í vikulokin átti enn eftir að manna
70 til 80 stöður á frístundaheimilun-
um. „Talan lækkar allaf. Í byrjun
vikunnar vantaði okkur 150 manns
svo við nálgumst markið óðfluga,“
segir Kjartan.
Búið að innrita 2.800 börn
„Við byggjum starfsemina mikið á
vinnuframlagi framhalds- og há-
skólanema sem ganga ekki frá sínum
málum fyrr en þeir hafa til dæmis
fengið stundaskrá í hendur. Hvað við
þurfum svo nákvæmlega marga
starfsmenn ræðst talsvert af því í
hve miklu starfshlutfalli fólk er. Það
er afar mismunandi. Sumir vinna
einn dag í viku en aðrir fleiri daga.“
Starfsmenn frístundaheimilanna í
vetur verða á bilinu 350 til 400 og
innrituð hafa verið um 2.800 börn úr
grunnskólunum í Reykjavík, sem
hefja starfsemi sína á morgun,
mánudag.
Kjartan segir alþekkt að starfsemi
skóla sé ekki alltaf hnökralaus á
fyrsta degi, frekar en annarra stofn-
ana eða fyrirtækja. Þetta gildi einnig
um frístundaheimilin. „En þetta er
mál sem við einfaldlega leysum,“
segir Kjartan og bætir við að þess sé
sérstaklega gætt að þó enn vanti fólk
til starfa bitni sú mannekla ekki á
fötluðum börnum. sbs@mbl.is
Frístundaheimilin
nær fullmönnuð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í FRÉTT í blaðinu í gær, um deil-
urnar í Landakotsskóla, féll út eitt
orð í viðtali við Guðbjörgu Magnús-
dóttur, varatrúnaðarmann kennara,
sem breytti merkingunni algerlega.
Rétt er setningin, sem höfð var eftir
Guðbjörgu, þannig: „Hinir tíu kenn-
ararnir standa utan við deiluna,“
sagði Guðbjörg.
Fram kom í fréttinni að þessir 10
kennarar, af 14 alls, skrifuðu ekki
undir yfirlýsingu þar sem uppsögn
skólastjóra er hörmuð og hún sögð
setja skólastarf í upplausn.
Morgunblaðið biðst velvirðingar á
þessum mistökum.
LEIÐRÉTT
Orð féll út