Morgunblaðið - 23.08.2009, Blaðsíða 36
36 Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 2009
Starfstengt diplómanám
TB
W
A
\R
EY
KJ
A
VÍ
K
\
SÍ
A
09
49
32
fyrir fólk með þroskahömlun
Umsóknarfrestur er til 7. september
Nánari upplýsingar veitir Ágústa R. Björnsdóttir verkefnisstjóri
námsins, sími 698 7901, netfang: agusbjo@hi.is
Ábyrgðarmenn tilraunaverkefnisins eru Guðrún V. Stefánsdóttir og
Vilborg Jóhannsdóttir, lektorar á Menntavísindasviði Háskóla Íslands.
Menntavísindasvið Háskóla Íslands auglýsir starfstengt diplómanám á þroska-
þjálfabraut, innan Íþrótta-, tómstunda- og þroskaþjálfadeildar. Um er að ræða
afmarkað tilraunaverkefni til tveggja ára, hliðstætt því sem lauk vorið 2009.
Námið er skipulagt í samræmi við yfirlýsta alþjóðlega stefnu hagsmunasamtaka
fólks með þroskahömlun, mannréttindasáttmála og stefnu Háskóla Íslands.
Tilgangur þess er að veita fólki með þroskahömlun möguleika á að stunda
heildstætt starfsnám að loknum framhaldsskóla.
Meginmarkmið námsins er að undirbúa nemendur til afmarkaðra starfa á starfs-
vettvangi þroskaþjálfa, svo sem í skólum, leikskólum, félagsmiðstöðvum og víðar
þar sem fatlað fólk sækir þjónustu.
Nemendur taka þátt í almennum námskeiðum á Menntavísindasviði. Í náminu,
sem er einstaklingsmiðað, fá nemendur stuðning í bóklegu námi og á vettvangi.
Lögð er áhersla á að tengja saman fræðilegt nám og starfsnám.
Námið hefst 1. október 2009 og dreifist á tvö skólaár, sjá nánari lýsingu
í Kennsluskrá Háskóla Íslands (www.hi.is).
Inntökuskilyrði eru annars vegar fjögurra ára nám á starfsbrautum framhalds-
skóla eða sambærileg menntun og starfsreynsla og hins vegar að nemendur hafi
áhuga á að öðlast menntun á þeim starfsvettvangi sem námið nær til. Tekin verða
viðtöl við umsækjendur ef þurfa þykir. Miðað er við að hópurinn verði 20 manns.
Umsóknum skal skilað á þar til gerðum eyðublöðum sem er að finna á
www.mennta.hi.is.
Skrásetningargjald við Háskóla Íslands fyrir skólaárið 2009–2010 er 45.000 kr.
MENNTAVÍSINDASVIÐ
ÞAÐ ER athygli
vert hvernig ríkis-
stjórnarflokkarnir og
þeirra starfsmenn
hagræða allri upplýs-
ingaþjónustu til al-
mennings. Það er gert
einvörðungu í því
augnamiði að láta eins
og þessir aðilar séu að
vinna að þjóðarheill,
en þegar nánar er að
gætt eru þeir allir að
vinna að falli lýðveld-
isins. Evrópusam-
bandið vinnur ná-
kvæmlega eins og gert
er ráð fyrir í hinum
upprunalega Róm-
arsáttmála, en þar
stendur í 108 gr.:
„Gagnkvæmur stuðn-
ingur aðildarríkjanna
verður einkum þessi; a)
samræmdar aðgerðir
með tilliti til annarra alþjóðlegra
stofnana, sem aðildarríkin eiga að-
gang að; b) ráðstafanir, nauðsyn-
legar til að forða röskun á farveg-
um viðskipta, þegar ríki í
greiðsluvandræðum hefur sett höft
á viðskipti við lönd utan bandalags-
ins; c) lán frá öðrum aðildarríkjum.
Hvað segir þessi grein okkur Ís-
lendingum um það af hverju lokað
er fyrir öll lán til landsins? Evrópu-
sambandið stendur og verður að
standa sameinað skv. 108 gr. A í
Rómarsáttmálanum, gegn því að
við fáum lán frá nokkurri þjóð, eða
alþjólegri stofnun, þar með talið
Norðurlöndunum, þar til við höfum
samið við Englendinga og Hollend-
inga um greiðslur til allra þeirra
sem áttu peninga á Icesave-
reikningum LÍ. Þessi krafa er rétt-
lætt með því að ríkisstjórn Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur og
Geirs Haarde settu neyðarlög sem
kveða á um að íslenskur verkalýður
skuli greiða íslenskum fjármagns-
eigendum alla þá peninga til baka
sem þeir áttu í bönkum og spari-
sjóðum, þegar fjármálakerfi lands-
ins hrundi – en hver heimilaði þetta
rán frá almenningi? Rétt er að taka
fram að enginn þeirra þingmanna
sem þá voru á Alþingi Íslendinga
mótmælti þessu ráni stjórnvalda frá
hinni vinnandi stétt þessa lands.
Þegar núverandi ríkisstjórn
komst til valda þá neyddi forsætis-
ráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir,
því sem næst alla stjórnarþing-
menn VG til þess að greiða atkvæði
gegn sannfæringu sinni, og brjóta
þannig stjórnarskrárlög landsins.
Íslendingar skulu, samkvæmt skoð-
unum samfylkingarmanna, kyssa á
vönd Evrópusambandsins, sækja
um aðild og greiða allar skuldir LÍ
í Evrópusambands-löndunum þrátt
fyrir að í tilskipun bandalagsins 94/
19/EB frá 31 maí 1994 eru skýr
ákvæði um það að aðildarríki eða
lögbær yfirvöld bera ekki ábyrgð á
innistæðum gagnvart innistæðu-
eigendum. Aðildarríkin bera aðeins
ábyrgð á því að stofnaðir verði inni-
stæðu-tryggingasjóðir, sem inn-
lánastofnanir bera ábyrgð á að
greitt sé í samkvæmt lögunum.
Hins vegar er hægt að krefjast
þess að öll aðildarlönd Efnahags-
sambandsins njóti sömu greiðslu
þegar banki verður gjaldþrota, og
þar koma vandræði okkar Íslend-
inga; það er rán ríkisstjórnar Sam-
fylkingar og Sjálfstæðisflokks sem
veldur því að við erum að slást við
Englendinga og Hollendinga. Ef
ríkisstjórn Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur og Geirs Haarde hefði
ekki ákveðið að verkalýður landsins
ætti að endurgreiða fjármagnseig-
endum alla þá fjárhæð sem þeir
áttu í bönkunum, þá hefði þjóðin
aldrei lent í stríði við Hollendinga,
þetta rán er upphafið að stórum
hluta þessara vandræða, og í stað
þess að endurskoða þessi lög og
stöðva ránið, þá hefur núverandi
ríkisstjórn ákveðið að halda áfram
að þvinga og neyða hinn almenna
borgara til þess að borga af þessu
ráni í allt að 50 til 100 ár, en því
ættu alþingismenn landsins að taka
tillit til almennings núna? Þeir hafa
gert og krafist þess sem þeim sýn-
ist af almenningi alla tíð frá stofnun
lýðveldisins. Fyrir utan það sem áð-
ur er getið þá er ótrúlegt að enn
skuli rætt um samning við Eng-
lendinga, sem settu hryðjuverkalög
á Ísland og Íslendinga með tilheyr-
andi tjóni fyrir land og lýð. Þessi
löggjöf hefur þegar valdið Íslend-
ingum ómælanlegu tjóni, þess
vegna á ekki að semja við England
um greiðslur til þegna þeirra, það á
að krefjast skaðabóta fyrir hryðju-
verkalögin sem þeir settu á frið-
sama þjóð, sem varð fyrir þessu
tjóni sem við urðum fyrir vegna
þess að hér voru tekin upp lög Evr-
ópusambandsins um frjálsa fjár-
magnsflutninga og frelsi allra
þegna EES til að setja upp fyr-
irtæki, hvar sem er á Efnahags-
svæðinu. Þessi ríkisstjórn hefur því
miður brugðist almennum borg-
urum þessa lands og vinnur gegn
hagsmunum þjóðarinnar bæði með
umsókn að Evrópusambandinu og
að eyða milljörðum króna í aðild-
arumsókn, þegar ekki er hægt að
reka þjónustustofnanir landsins á
sómasamlegan máta.
Í kosningu þar sem alþingismenn
Vinstri grænna upplýstu þjóðina
um hvernig þeir brutu lagagreinar
stjórnarskrárinnar og greiddu at-
kvæði gegn eigin samvisku og þing-
menn Framsóknar, Sif Friðleifs-
dóttir, Birkir Jón Jónsson og
Guðmundur Steingrímsson, gengu
gegn samþykktum eigin flokks.
Þetta fólk á allt að yfirgefa Alþingi
og biðja kjósendur sína afsökunar.
Þingmenn Vinstri grænna vegna
brota á stjórnarskrá og svika við
kjósendur sína. Framsókn-
arþingmennirnir vegna þess að þeir
sviku kjósendur sína og samþykktir
flokksþings, sem þeir voru aðilar að
ásamt öðrum fulltrúum. Er ekki
kominn tími til að komið verði á
nýrri stjórnmálastefnu í landinu,
stjórnmálum sem byggjast á jafn-
rétti þegnanna, í stað flokksræðis-
græðgi?
Evrópusambandið
og Icesave
Eftir Pétur
Valdimarsson
Pétur Valdimarsson
» Fyrir utan það sem
áður er getið þá er
ótrúlegt að enn skuli
rætt um samning við
Englendinga, sem settu
hryðjuverkalög á Ísland
og Íslendinga með til-
heyrandi tjóni fyrir land
og lýð.
Höfundur er tæknifræðingur og var
einn af stofnendum Samtaka um jafn-
rétti milli landshluta 1982, var for-
maður þeirra þar til hann tók við
formensku Þjóðarflokksins 1987.