Morgunblaðið - 23.08.2009, Blaðsíða 19
um. En það er enn mikilvægara að
hafa lifibrauð.
– Hélstu sambandi við vini þína í
Tékklandi, svo sem Menzel og Havel?
„Já, núna hittumst við þegar ég
heimsæki Tékkland. En áður fylgdist
ég aðeins með því frá Bandaríkjunum
hvað gerðist þar. Ég var ekki í miklu
sambandi við þá – vildi ekki valda
þeim vandræðum. En eftir fall járn-
tjaldsins árið 1989 var hægt að
ferðast þangað og þá var eins ég hefði
kvatt í gær.“
– Ferðu oft til Tékklands?
„Já, og reyndar setti ég þar upp
djassóperu fyrir þremur árum, sem
nefndist Gönguferð, ómaksins verð.“
Fólk verður að trúa
– Eftir að þú fluttir til Bandaríkj-
anna fjölluðu myndir þínar oft um
hálfgerða útlaga á jaðri samfélagsins,
svo sem í Gaukshreiðrinu, Ákæru-
valdinu gegn Larry Flynt og Manni á
tunglinu?
„Það finnast byltingarmenn í
hverju þjóðfélagi. Ég hef búið við
bæði nasisma og kommúnisma og hef
því meiri reynslu en flestir af harð-
stjórn og einræði. Þetta er glíman
sem fylgir þróun mannkynsins – bar-
átta einstaklingsins gegn stofnunum.
Við þurfum stofnanir. Við setjum þær
á laggirnar til þess að auðvelda okkur
lífið. Þeim er ætlað að þjóna okkur og
við borgum þeim. En smám saman
byrja allar stofnanir að hegða sér eins
og þær borgi okkur til að þjóna sér.
Þetta er ævagömul togstreita.“
– Af hverju líður svona langur tími
milli kvikmynda sem þú leikstýrir?
Það líða jafnvel sjö ár!
„Já,“ segir Forman hugsi. „Ég get
ekki unnið að tveimur verkefnum á
sama tíma. Ég verð að falla í stafi yfir
verkefninu, undirbúa það og hrinda
því í framkvæmd. Síðan tekur tíma að
slaka á aftur. Ég er ekki að halda því
fram að þetta sé neitt betra eða verra.
Ég dáist að fólki sem gerir tvær
myndir á ári. En svo kemur fyrir að
ég undirbý kvikmynd í eitt eða tvö ár
og svo fellur hún niður. Það er tap-
aður tími.“
– Hvernig velurðu efnivið?
„Sagan verður að hreyfa við mér
tilfinningalega og vitsmunalega –
mikilvægast er að hún sé áhugaverð
og sögupersónurnar líka.“
– Það er freistandi að draga þá
ályktun að stundum felist pólitísk
yfirlýsing í vali þínu á viðfangsefni,
svo sem ádeila á ritskoðun í myndinni
um Larry Flynt.
„Ég er meðvitaður um það ef sagan
hefur pólitískan undirtón, en það
skiptir ekki sköpum fyrir mig. Per-
sónurnar og sagan er mikilvægari.“
– Ég veit þú leggur gífurlega vinnu
í að raða saman leikhópnum.
„Ég vil trúa þeim. Leikarar eru
mikilvægastir fyrir kvikmyndina, því
þeir eru fólkið sem áhorfendur sjá að
lokum. Handritið getur verið dásam-
legt og leikstjórinn fyrirtak, en ef
fólkið trúir því ekki sem það sér á
hvíta tjaldinu, þá er allt unnið fyrir
gýg. Það er því afar mikilvægt að
ráða leikarann sem hæfir best hlut-
verkinu, hvort sem hann er óþekktur
eða stórstjarna. Auðvitað tala ég við
mjög marga leikara áður en ég geri
endanlega upp hug minn. Svo er mik-
ilvægt að raða saman leikurum eftir
atgervi – það er áhugavert að púsla
saman andlitum og látbragði leikar-
anna.“
Tjáningarfrelsi mikilvægast
– Ég tók viðtal við þig á kvik-
myndahátíðinni í Cannes þegar þú
kynntir Maður á tunglinu. Þá talaðir
þú um að jafnvel í frjálsum sam-
félögum yrði alltaf til staðar fólk sem
vildi stjórna lífi annarra og það ynni
sigra á hverjum degi. Hvernig finnst
þér Vesturlandabúar höndla frelsið?
„Nokkuð vel. Það tekst aldrei óað-
finnanlega. En ég er þeirrar skoð-
unar að tjáningarfrelsi sé mikilvæg-
asta frelsið í samfélaginu. Það fyrsta
sem nasistar og kommúnistar gerðu
þegar þeir komust til valda var að
hindra frjálsan fréttaflutning. Ég er
sannfærður um að ef Hitler hefði ekki
tekist að múlbinda fjölmiðlana strax í
upphafi, þá hefði fólk um allan heim
frétt um ódæðisverkin í Þýskalandi
og seinni heimsstyrjöldin hefði aldrei
þurft að brjótast út. Frjálsir fjöl-
miðlar og tjáningarfrelsi er mikil-
vægasta uppfinning lýðræðisins.“
– Nú er frjáls markaðsbúskapur
harðlega gagnrýndur vegna krepp-
unnar – og sumir halda því fram að
Marx hafi haft rétt fyrir sér.
„Sjáðu til, þetta er eins og pendúll.
Hann sveiflast frá hægri til vinstri og
frá vinstri til hægri. Undanfarin ár
hefur hann sveiflast til hægri og þess
vegna er þrýstingur til baka núna. En
ef hann sveiflast of langt til vinstri,
eins og í Rússlandi, þá mun fólk á
endanum ýta honum aftur á miðjuna
og síðan áfram til hægri. Pendúllinn
má aldrei stöðvast í miðjunni, því það
er dauði. Hægri, vinstri, hægri,
vinstri, hægri, vinstri, hægri, vinstri.“
Berjumst gegn glópskunni
– Þú nefndir áðan að þú hefðir búið
við harðstjórn og einræði komm-
únismans og nasismans, foreldrar
þínir teknir af lífi í útrýmingarbúðum
nasista í seinna stríði. Það hlýtur að
vera óbærileg tilhugsun.
„Ég skil ekki enn þann dag í dag,
hversu mikla grimmd ein manneskja
getur sýnt annarri manneskju. Þetta
er algjör ráðgáta fyrir mér. Ég bara
skil það ekki. Jafnvel dýrin eru ekki
jafngrimm við hvert annað og við.
Þau drepa vegna sjálfsbjargarvið-
leitni, en við stýrumst af græðgi og
öðrum hvötum, sem koma sjálfsbjörg
ekkert við.“
– Þegar þú hugleiðir örlög foreldra
þinna, kemstu þá aldrei nálægt því að
missa alla von eða trú á mannkyninu,
eins og Stefan Zweig forðum?
„Höfum við eitthvað að vinna eða
tapa? Við fæðumst bara inn í þennan
heim. Og hver er tilgangur lífsins?
Hann er að lifa því og tala um það. Og
það gerum við. Auðvitað vonum við að
lífið verði sífellt betra, en við verðum
samt að vera raunsæ og það gengur
ekki endilega eftir.
Ég hef rekið mig á að lífið er alltaf
að endurtaka sig. Það má til dæmis
ráða af nýjustu mynd minni, Draug-
um Goya, þar sem dregin er upp
mynd af spænska rannsóknarrétt-
inum. Hann var í engu frábrugðinn
Stalínréttarhöldunum, þó að hann
væri við lýði nokkrum öldum fyrr.
Eftir fyrra stríð hrópuðu líka allir
stjórnmálamenn: „Aldrei aftur! Svo
endurtók það sig tuttugu árum síðar.
En maður má aldrei missa vonina. Og
maður verður að berjast gegn glópsk-
unni. Það vinnst aldrei fullnaðarsigur,
en ef við hættum að berjast, þá hefur
glópskan betur. Eina leiðin til að
berjast gegn henni eru frjálsir fjöl-
miðlar og tjáningarfrelsi. Svo lengi
sem við höfum tjáningarfrelsið held
ég að við séum hólpin.“
missa vonina
‘‘„ÉG SKIL EKKI ENN ÞANNDAG Í DAG, HVERSUMIKLA GRIMMD EINMANNESKJA GETUR
SÝNT ANNARRI MANN-
ESKJU. ÞETTA ER ALGJÖR
RÁÐGÁTA FYRIR MÉR.“
Gaukshreiðrið
Ákæruvaldið
gegn
Larry Flynt
hlaðið merkingu, en ég man að þetta
var skelfilega hversdagslegt. Við sát-
um fimm hæðum neðanjarðar, því Ges-
tapo var með höfuðstöðvar í fyrrver-
andi banka í Prag og notaði peninga-
geymslur undir yfirheyrslur og jafnvel
pyntingar. Það var blóð á veggjunum
og við sátum þarna, ég, bróðir minn og
frændi minn, þegar hurðin opnaðist
skyndilega og móðir mín gekk inn. Það
eina sem hún talaði um var hvort frú
Prohaska hefði það gott, því hún hafði
verið svo slæm í hnénu, hvernig
plómuuppskeran hefði verið og að það
væri best að fá sultuuppskrift hjá
þessum eða hinum. Allt samtalið var í
þeim dúr.“
– Gerði hún sér þá ekki grein fyrir
aðstæðum?
„Jú, annað var ómögulegt, en það
var ekki hægt að spyrja beint út hvort
hún hefði verið pyntuð. Hún hefði ekki
svarað því og þar að auki var þýskur
vörður í dyragættinni allan tímann. Ég
var bara krakki svo þau gátu ekki talað
um neitt sem legði það fólk í hættu
sem væri enn frjálst.“
– Þetta hlýtur að hafa haft róttæk
áhrif á líf þitt.
„Maður gerði sér samt ekki grein
fyrir alvarleika málsins; lífið heldur
bara áfram. Ég man afar vel eftir því
þegar ég kom heim úr skólanum einn
daginn, ég bjó hjá vinum foreldra
minna í annarri borg, að bróðir minn
var í heimsókn og það var einkennileg
þögn. Mér var sagt að mamma væri
dáin. „Og?“ spurði ég. „Má ég fara
núna?“ Ég átti nefnilega að spila í
fótboltaleik. Það breyttist ekkert,
mamma lést en hún var þegar búin að
vera í burtu í þrjú ár.“
– Er húmorinn ekki góð leið til að
takast á við svona lagað?
„Ég veit það ekki. Ég held að ég
hafi svo sem ekki fengið húmorinn við
þessa upplifun; ég vissi að færi ég að
hlæja yrði ég sendur til sálfræðings,“
segir hann og hlær. „Ekki það að ég
hafi viljað hlæja. Það væru ýkjur. En
húmorinn á sér aðra uppsprettu.“
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 2009
• Þjónustufyrirtæki sem selur um 600 fyrirtækjum þjónustu sína. Ársvelta 100 mkr.
• Vinsælt veitingahús. Ársvelta 230 mkr.
• Framkvæmdastjóri-meðeigandi óskast að þjónustu- og innflutningsfyrirtæki.
Ársvelta áætluð um 200 mkr. Ágætur hagnaður.
• Heildverslun með byggingavörur. Ársvelta 170 mkr. Mjög skuldsett.
• Meðeigandi óskast að nýju framleiðslufyrirtæki. Reiknað er með 30-35%
árlegri ávöxtun eigin fjár næstu árin.
• Sérverslun með fatnað á góðum stað. Ársvelta 150 mkr. Góð framlegð.
• Iðnfyrirtæki í matvælaframleiðslu með mikinn og vaxandi útflutning. Ársvelta
240 mkr.
• Rótgróið iðnfyrirtæki. Ársvelta 450 mkr.
• Innflutnings- og framleiðslufyrirtæki í byggingariðnaði. Ársvelta 400 mkr.
Hagstæðar skuldir.
• Rótgróið innflutnings- og framleiðslufyrirtæki. Ársvelta 130 mkr.
• Þekkt innflutningsfyrirtæki með eigin verslanir. Ársvelta 240 mkr. EBITDA 35
mkr. Hagstæðar skuldir.
• Þjónustufyrirtæki sem selur fyrirtækjum lögbundna þjónustu með föstum
samningum. Ársvelta 170mkr.
• Sérhæft hugbúnaðarfyrirtæki með langtímasamninga. Hentugt til sameiningar.
• Trésmiðja til sölu eða leigu. Sérhæfð framleiðsla og góð tæki. Lítið skuldsett
og vel staðsett í 600 fermetra ódýru húsnæði.