Morgunblaðið - 23.08.2009, Blaðsíða 51
Eftir Birgi Örn Steinarsson
biggi@mbl.is
NÚ eru liðin þrjátíu og fimm ár
frá því að Guðrún Helgadóttir gaf
út sína fyrstu bók en það var sú
fyrsta í röðinni um tvíburana Jón
Odd og Jón Bjarna. Tvær bækur
fylgdu svo í kjölfarið, Meira af
Jóni Oddi og Jóni Bjarna (1975)
og svo loks Enn af Jóni Oddi og
Jóni Bjarna (1980). Þráinn Bert-
elsson gerði svo sína fyrstu kvik-
mynd eftir bókunum og var hún
frumsýnd árið 1981.
Árið 2002 setti Þjóðleikhúsið
upp leikrit eftir bókunum við
miklar vinsældir. Nú er í vinnslu
að gera sjónvarpsþætti eftir bók-
unum þremur.
Í fyrstu bókinni eru eineggja
tvíburabræðurnir Jón Oddur og
Jón Bjarni sex ára. Þeir búa í
blokk í Reykjavík ásamt fjöl-
skyldu sinni. Það er sumar en um
haustið byrja þeir í grunnskóla.
Þeir eiga eina yngri alsystur og
aðra eldri hálfsystur sem búa báð-
ar með foreldrum sínum. Sú eldri,
Anna Jóna, er með unglingaveik-
ina en Magga litla er að læra að
nota koppinn. Á heimilinu er einn-
ig ráðskonan Soffía sem lítur eftir
börnunum á daginn á meðan for-
eldrarnir eru í vinnu. Önnur mik-
ilvæg sögupersóna er Amma
dreki, sem fær það nafn vegna
stöðu sinnar sem erindreki í út-
varpinu. Piltarnir eiga góða for-
eldra og heimilisaðstæður eru
nokkuð eðlilegar.
Lárus er besti vinur tvíburanna
en Selma systir hans kemur líka
töluvert við sögu en hún er með
Downsheilkenni. Bræðurnir eru
vel upplýstir og vita að auðvitað
getur Selma ekkert gert að því
hvernig hún er. Þeir eru duglegir
að passa hana en er mikið strítt
vegna þess af Jóa hrekkjusvíni.
Aðstæður á heimili Lárusar og
Selmu eru afar ólíkar því sem þeir
þekkja. Pabbi þeirra er sjómaður
og mamma þeirra því mikið ein
með börnin.
Jón Oddur og Jón Bjarni eru
uppátækjasamir, örlitlir prakkarar
en góðhjartaðir samt. Aðall sög-
unnar er hversu oft þeir koma sér
og öðrum í vandræði vegna barna-
legrar einlægni sinnar, eins og
þegar þeir blaðra því í sundi hvað
mamma þeirra sagði um kenn-
arann eða þegar þeir ákveða að
gefa ráðskonunni mýs að gjöf fyrir
dugnað sinn við að setja upp ferm-
ingarveislu hálfsystur þeirra.
Sögurnar taka bæði á léttum og
alvarlegum hlutum, svo sem dauð-
anum, einelti, heiðarleika og litrík-
um ættingjum. Atburðarás sagn-
anna er ávallt hröð og efnismikil.
Guðrúnu tekst listavel að lýsa
hugarheimi barna og hvernig þau
upplifa heim fullorðinna á annan
máta.
Bækurnar hafa verið þýddar á
fjölmörg tungumál og Guðrún
hlotið verðlaun og viðurkenningar
fyrir verk sín, þar á meðal Nor-
rænu barnabókaverðlaunin árið
1992 og Verðlaun Jónasar Hall-
grímssonar árið 2005.
Glósubók: Jón Oddur og Jón Bjarni
Lífið með augum Jóns
Odds og Jóns Bjarna
Morgunblaðið/Ásdís
Jón Oddur og Jón Bjarni Ærslabelgirnir Jón Oddur og Jón Bjarni í klóm Kormáks afa. Matthías Sigurbjörnsson,
Hjalti Rögnvaldsson og Andri Már Birgisson í hlutverkum sínum í sýningu Þjóðleikhússins.
Menning 51FÓLK
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 2009
ÁRIÐ 2002 setti Þjóðleikhúsið upp
leikrit eftir sögunum um Jón Odd
og Jón Bjarna. Leikstjóri var Þór-
hallur Sigurðsson en athygli vakti
að tvö strákapör fóru með hlut-
verk Jóns Odds og Jóns Bjarna.
Þeir Andri Már Birgisson og
Benedikt Clausen léku Jón Odd en
Sigurbjartur S. Atlason og Matt-
hías Sigurbjörnsson léku Jón
Bjarna.
Með önnur hlutverk fóru m.a.
Hjalti Rögnvaldsson, Guðmundur
Ingi Þorvaldsson, Linda Ásgeirs-
dóttir, Lilja Guðrún Þorvalds-
dóttir, Margrét Guðmundsdóttir
og Randver Þorláksson.
Einnig vakti athygli að köttur
var notaður í sýningunni.
Guðrún Helgadóttir sá sjálf um
leikgerðina en sýningin innihélt
atriði úr öllum bókunum þremur.
Völdum köflum úr bókinni var
raðað saman svo úr varð saga er
spannaði ár í lífi tvíburabræðr-
anna. Nokkrum atriðum úr mynd-
inni var sleppt, kannski vegna þess
að þeim voru gerð góð skil þar.
Leikritið fékk afbragðsdóma
hér í Morgunblaðinu hinn 5. mars
árið 2002. Þar segir m.a.: „Þór-
hallur Sigurðsson hefur unnið frá-
bært verk, ekki bara að takast það
sem ætla mætti ógerlegt, að þjálfa
upp hóp barna í burðarhlut-
verkum og takast það frábærlega,
heldur að gera marga hinna full-
orðnu í verkinu að þrívíðum per-
sónum. Hér er á ferðinni skemmti-
legt barnaleikrit en sýningin nær
einnig langt út fyrir þessa skil-
greiningu.“
Leikritið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jón Oddur og Jón Bjarni Þórhallur Sigurðsson leikstjóri ásamt tveimur pörum af Jóni Oddi og Jóni Bjarna. Frá
vinstri eru Andri Már Birgisson og Benedikt Clausen, sem leika Jón Odd, og Sigurbjartur S. Atlason og Matthías
Sigurbjörnsson, sem leika Jón Bjarna. Þórhallur þótti takast vel upp við að þjálfa upp barnahóp fyrir sviðið.
Guðrún Helgadóttir fæddist í Hafn-
arfirði árið 1935. Hún sat á Alþingi Ís-
lendinga fyrir Alþýðubandalagið frá
1979-1995. Eftir að Alþýðubandalagið
sameinaðist öðrum flokkum til að
mynda Samfylkinguna sat Guðrún
áfram á þingi sem óháður þingmaður.
Hún var ritari Alþýðubandalagsins á ár-
unum 1977-1983. Hún var einnig fyrst
kvenna kjörin forseti Alþingis árið
1988.
Auk þess sat Guðrún í stjórn BSRB í
sex ár frá árinu 1972, var borgarfulltrúi
í Reykjavík á árunum 1978-1982 og
fulltrúi Íslands í Norðurlandaráði á ár-
unum 1983-1988 svo eitthvað sé nefnt.
Guðrún
HelgadóttirSÍÐUSTU mánuði hafa Ari Eldjárn, Ottó
Geir Borg og Gunnar B. Guðmundsson unn-
ið að handriti fyrir sex þátta sjónvarpsseríu
upp úr bókunum um Jón Odd og Jón
Bjarna.
Zik Zak framleiðir þættina en handrits-
skrif eru á lokastigi.
Samkvæmt heimildum blaðsins er hand-
ritið skrifað upp eftir bókunum þremur og
er hugsað sem létt skemmtun fyrir alla fjöl-
skylduna. Guðrún Helgadóttir hefur ekki
komið að þessari nýju leikgerð ennþá þó
svo að hún hafi lagt blessun sína yfir fram-
kvæmdina. Búist er við því að hún líti yfir
handritið áður en tökur hefjast.
Í þáttunum verða sögurnar um Jón Odd
og Jón Bjarna færðar yfir í nútímann. Ekki
hefur verið ráðið í nein hlutverk og ekki er
búið að ákveða hvenær tökur hefjast.
Sjónvarpsþættirnir