Morgunblaðið - 23.08.2009, Qupperneq 25
því að vera dæmigerð stríðsmynd
að hætti Hollywood eftir miðja
síðustu öld. Hér fáum við t.d. glæ-
nýja útgáfu af endalokum Hitlers.
IB segir tvær samhliða sögur
þar sem Shosanna Dreyfuss (Mél-
anie Laurent), eitilhörð gyð-
ingastúlka sem hefur misst fjöl-
skyldu sína í böðulshendur
nasistaforingja, er þungamiðja
annarrar. Hún kemur sér fyrir í
kvikmyndahúsi í Parísarborg og
bíður hefnda. Hin segir af banda-
rískri herdeild skipaðri gyðingum,
sem hefur það að markmiði að
knésetja Þriðja ríkið. Fyrir
flokknum fer liðsforinginn Aldo
Raine (Brad Pitt), ættaður úr
Ozark-fjöllum í miðríkjum Banda-
ríkjanna. Raine og menn hans
ganga til liðs við Bridget Von
Hammersmark (Diane Kruger),
leikkonu og foringja í þýsku neð-
anjarðarhreyfingunni sem stefnir
að sama marki og Bandaríkja-
mennirnir.
IB er dæmigerð fyrir vinnu-
brögð Tarantinos; kaflaskipt með
löngum samtölum sem færa okkur
á nýjar og óvæntar slóðir, þar sem
nánast enginn einstaklingur er all-
ur þar sem hann er séður en lúrir
á sínum leyndardómum og áætl-
unum. Fjölþjóðleg tungu-
málanotkun setur sterkan svip á
myndina og eru málin notuð á ný-
stárlegan hátt.
Var áratug í smíðum
Tarantino hóf að skrifa handrit
IB árið 1998, með mikið til sömu
persónum og í lokaútgáfunni, en
söguþráðurinn hefur tekið sífelld-
um breytingum. Upphaflega áttu
„bastarðarnir“ að slást í för með
dæmdum lituðum hermönnum og
flokkarnir síðan að ráðast í sam-
einingu á óvininn. Efnið var of yf-
irgripsmikið og Tarantino lagði
það til hliðar í mörg ár í von um
að hann gæti komið á það skikk
síðar meir. Það gekk eftir, í fyll-
ingu tímans datt leikstjórinn og
handritshöfundurinn niður á glæ-
nýja útgáfu sem hann var fyllilega
sáttur við. Þar kemur við sögu
kvikmyndagerð og heilmikil frum-
sýning í hjarta Þriðja ríkisins,
nokkuð sem hefur ekki verið gert
áður í stríðsmynd.
Tarantino hafði engan áhuga á
að setja hlutverk Foringjans í
hendurnar á þekktum leikara sem
kæmi áhorfendum kunnuglega fyr-
ir sjónir. Að lokum datt hann nið-
ur á Martin Wuttke, þýskan sviðs-
og kvikmyndaleikara, en hann
hafði túlkað Hitler á sviði ein-
hvern tímann í fyrndinni í leikriti
eftir Brecht. Margir eru þeirrar
skoðunar að hann hafi sjaldan eða
aldrei verið betur leikinn á sviði.
Wuttke hafði samt sem áður eng-
an áhuga á að túlka þrjótinn á
tjaldinu og sagði Tarantino að
frekar vildi hann leika vínarsnitsel
en Adolf Hitler!
Tíminn leið, Tarantino fann eng-
an færan í Hitlershlutverkið og
um síðir lét Wuttke tilleiðast og
tók það upp á arma sína, leikstjór-
anum til ómældrar ánægju. Hann
hefur sagt að Wuttke hafi jafnan
gætt sín á að ofleika ekki skrímsl-
ið, en hreinlega umbreyst í For-
ingjann, beint úr kassanum, á
fyrstu æfingu.
Tarantino hefur þá venju að
kalla leikarana ekki sínum réttu
nöfnum meðan á tökum stendur,
heldur nöfnum persónanna sem
þeir túlka. Kallaði Brad Pitt jafn-
an Aldo, ekki Brad. Og það var
engin leið að kalla Wuttke gamla
annað en „mein Führer“.
Litríkur mannskapur
í aukahlutverkum
Brad Pitt er aðalskrautfjöðrin í
leikhópnum og fer með stærsta
hlutverkið, liðsforingjann. Fær
einnig tækifæri til að spreyta sig í
mállýsku Ozark-fjallabúa, en leik-
arinn er snillingur í málhreimum,
eins og þeir muna sem sáu Snatch.
Valið í aukahlutverkin er ekki
síður forvitnilegt. Eli Roth, leik-
stjóri og handritshöfundur Hostel
og Cabin Fever (hugmyndinni að
þeirri síðarnefndu laust niður í
koll hans austur á Selfossi af öll-
um stöðum), kemur við sögu sem
liðþjálfinn Donny Donowitz, einn
„bastarðanna“. Hans eftirlæt-
isvopn er hafnaboltakylfa þar sem
félagar hans hafa ritað nöfn ást-
vina sinna í Evrópu sem lent hafa
í útrýmingarbúðum Foringjans.
Roth leikur m.a. í ofbeldisfullu
lykilatriði sem gerist í brennandi
kvikmyndahúsi og verður ekki lýst
hér nánar. Aftur á móti fór eldhaf-
ið úr böndunum og sluppu Roth og
fleiri úr hópnum naumlega við að
verða því að bráð. Það leynir sér
hins vegar ekki að blóðhrollshöf-
undurinn er greinilega í essinu
sínu með þetta fræga ofbeldistól í
höndunum og leikstíllinn minnir á
kollega hans og velgjörðarmann,
Tarantino, sem hefur m.a. komið
fram í myndum Robertos Rodrigu-
ez.
Diane Kruger, sem fer m.a. með
aðalhlutverkið í Inhale, nýjustu
mynd Baltasars Kormáks, leikur
þýsku andófs- og aðalskonuna Von
Hammersmark. Mike Myers túlk-
ar Ed Fenech hershöfðingja og
nokkur fleiri óvænt nöfn krydda
myndina. Hér stingur t.d. upp
kollinum Rod Taylor (sem Win-
ston Churchill), sú fáséða fyrrver-
andi stórstjarna, sem lék m.a. að-
alhlutverkið í Hitchcock-myndinni
The Birds (’63). Hann er vafalaust
í náðinni hjá Tarantino.
Hópurinn er ekki síðri sem ann-
ast störfin bak við tökuvélarnar.
Þar er að finna kvikmyndatöku-
stjórann Robert Richardson (The
Aviator, Natural Born Killers o.fl.
myndir e. Scorsese og Stone; auk
Kill Bill I. & II.). Klipparinn Sally
Menke hefur unnið með Tarantino
allt frá Reservoir Dogs, líkt og út-
litshönnuðurinn David Wasco.
Það er hins vegar nýjast fregna
af þeim umdeilda snillingi Tarant-
ino að hann hefur ekki í hyggju að
hætta endurgerðum á ólíklegustu
slóðum og hyggst næst leita fanga
í ljósblárri B-myndasmiðju Russ
Meyers. Verður forvitnilegt að sjá
hvernig honum tekst upp við að
sníða Faster, Pussycat! Kill! Kill!
(’65) að þörfum samtímans, en
frummyndin var með þeim slök-
ustu sem sýndar voru í Hafnarbíói
sáluga.
mar að þýskum
Reuters
Gleði Quentin Tarantino er aug-
ljóslega ánægður með nýjustu mynd
sína, „Inglourious Basterds“.
Leiðtoginn Liðsforinginn Aldo Raine (Brad Pitt) leggur áherslu á mál sitt við undirmenn.
25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 2009
Heyrnartækni hefur um áraraðir boðið upp á vönduð heyrnartæki
í mörgum verðflokkum frá Oticon. Heyrnartækin frá Oticon eru með
þeim fullkomnustu sem völ er á og hönnun þeirra er svo nett að þau
eru nánast því ósýnileg bak við eyra.
Það skiptir miklu máli að vanda valið þegar það kemur að heyrninni.
Hafðu samband eða komdu í heimsókn og fáðu nánari upplýsingar um
hvað við getum gert fyrir þig.
G l æ s i b æ | Á l f h e i m u m 7 4 | 1 0 4 Re y k j a v í k | w w w. h e y r n a r t a e k n i . i s
Nánari upplýsingar og tímapantanir
í síma 568 6880 eða á www.heyrnartækni.is
Nánast því ósýnileg
heyrnartæki