Morgunblaðið - 23.08.2009, Page 27
27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 2009
lega hafa margir framleiðendur
farið út í framleiðslu á svokölluðum
Retro-vekjaraklukkum – það eru
klukkur sem eru nýjar en líta út
fyrir að vera gamlar, gjarnan
hlaðnar nýjustu tækni í kaupbæti.
Þá er nýjasta æðið að framleiða
vekjaraklukkur sem eru sérhann-
aðar til að koma svefndrukknu fólki
á lappir. Slíkar vekjaraklukkur
geta verið ótrúlega frumlegar og
eru út af fyrir sig ágætis tæki fyrir
þá sem eru haldnir nettri tækja-
dellu.
Pirrandi vekjaraklukkur
Nokkrar frumlegar vekjara-
klukkur eru pottþéttar fyrir þá sem
sofa þyngst. Þar má t.d. nefna
Puzzle Alarm-klukkuna sem skýtur
fjórum púsluspilsbútum út í loftið
þegar hún hringir og fórnarlambið
verður að finna þá og púsla þeim
saman svo vekjaraklukkan þagni.
Rocket-Launcher-vekjarinn er
svipuð hugmynd. Þar er lítilli rak-
ettu skotið af stað og hana þarf svo
að finna. Laser Target-vekjarinn er
þannig að þar þarf að grípa geisla-
byssu og hitta skotmark áður en
hringingin hættir og ein sú frum-
legasta biður þig um að „dansa“
með fingrunum í ákveðið mynstur á
vekjaraklukkunni til að þagga nið-
ur í henni. Allar eru þessar klukkur
fremur pirrandi fyrir þá sem eiga
ekki í erfiðleikum með að vakna.
Stílhrein hönnun
Þeir sem ekki þurfa að beita
brögðum á sjálfa sig til að drattast
fram úr á morgnana geta hins veg-
ar leitað í góða hönnun í staðinn.
Bang & Olufsen eru þar líklega
einna fremstir en ný vekjaraklukka
er væntanleg frá þeim sem minnir
helst á þverflautu. Það er einnig
hægt að stýra B&O-hljómflutnings-
tækjum með vekjaraklukkunni og
hún er með innbyggðan snerti-
skynjara og sitthvað fleira – enda
engin furða að hún skuli kosta 375
dollara (rúmar 48 þús. kr.), nokkuð
sem sennilega myndi halda vöku
fyrir fólki hér á landi.
Matrix Cube Clock eru þrír
kubbar með klukkutíma-, mínútu-
og sekúndumerkingum og hægt er
að raða þeim upp á þann máta sem
manni líkar best. Hönnunin er
frískleg og skemmtileg en talsvert
er til af vekjaraklukkum í þessum
dúr. Hið sama má segja um Novel
Red Led-vekjaraklukkuna.
Einna best er úrvalið þó af
vekjaraklukkum sem ætlað er að
vekja mann með glensi og gríni.
Þar er úrvalið ótrúlega mikið;
Star Wars-vekjaraklukkur eins og
R2D2 sem varpar tímanum með
geisla á vegg, Svarthöfði sjálfur
sem vekur þig með sinni föðurlegu
röddu, japönsk vélmenni, sprengi-
hleðsla og brunabjöllur svo eitt-
hvað sé nefnt.
Það er að minnsta kosti ástæðu-
laust að hafa eitthvað púkalegt á
náttborðinu þegar úrvalið er svona
gott og ættu allir að geta fundið
eitthvað við sitt hæfi, hvort sem
þeir vilja vakna við tónlist, píp, suð,
bjölluhljóm, Svarthöfða eða skopp-
andi púsluspil – eða jafnvel akandi
vekjaraklukku sem stingur af þeg-
ar hún hringir.
Svo virðist því sem blundurinn
sjálfur, þessi síðasti áður en maður
verður að fara á lappir, sé orðinn
markaðstækifæri í sjálfu sér …
blundurinn er orðinn blæti.
Vekjaraklukkur sem
springa í nokkra hluta
eða aka niður af nátt-
borðinu og um gólf
þegar þær hringja eru
dæmi um útsjónarsemi
hönnuða og svar við
þörfum þeirra sem eru
sérlega morgunsvæfir.
Frank Michelsen úrsmiður segir að viðskiptavinir hans vilji ná-kvæmar vekjaraklukkur, með ljósi, hljóðlátu gangverki og
gjarnan vekjaraklukkur sem byrja lágt og auka svo við styrkinn
þangað til fólk vaknar. „Fólk vill vakna en ekki hrökkva upp,“ seg-
ir Frank. „Nú eru vekjaraklukkur til alveg niður í þúsund krónur
en í gamla daga voru þær mun vandaðri og vöktu menn með
miklum óhljóðum. Menn sem voru pirraðir þegar trekktu klukk-
urnar byrjuðu að hringja virðast hafa þeytt þeim í veggina því
það var ósjaldan að menn komu hingað með vekjaraklukkur með
brotnu gleri sem þurfti að laga. Menn sem áttu erfitt með að
vakna tóku jafnvel upp á því að láta klukkurnar standa í emiler-
uðum vaskafötum til að magna upp hávaðann.
Svo get ég sagt þér eina sögu sem pabbi sagði mér af miklum
veiðimanni. Hann var kvæntur þekktri konu í bænum og fór mikið
á rjúpu. Hann var í vandræðum með að finna bílinn sinn á fjöll-
um. Pabbi tók gamla vekjaraklukku og breytti henni þannig að
hægt væri að tengja hana við ljósin í bílnum. Þegar myrkur var
og rjúpnaskyttan var að reyna að finna bílinn hátt uppi í fjöllum
þá kveikti klukkan ljósin á bílnum svo hann gæti fundið hann.
Þetta er löngu fyrir alla tímastilla, einhvers staðar á milli 1950
og 1960, en þetta hefur mér alltaf fundist nokkuð merkileg
saga.“
Frank segir reyndar mjög vandaðar klukkur enn vera til eins og
Oris, sem voru með sólarhrings- eða vikuverki og kostuðu eins og
vönduð úr. „Þessar klukkur fæ ég stundum inn í viðgerð og ég á
mikið af varahlutum í þetta. Ef fólk rekst á gamla trekkta
vekjaraklukku, áður en það hendir henni eða leyfir börnunum að
leika sér með hana, þá ætti það að kanna hvort það séu einhver
verðmæti í henni.“
Gamalt og gott
Vilja hávaða
Gilbert úrsmiður segir að fólk leiti fyrst og fremst eftirvekjaraklukkum sem hringi hátt. „Fólk kemur til mín og
vantar vekjaraklukku sem hringir hátt. Ég sýni þær og þá vill fólk
fá eitthvað enn háværara. Þetta eru þó klukkur með háværum
bjöllum. Það hefur jafnvel komið fyrir að fólk hefur keypt tvær
vekjaraklukkur fyrir sama aðila. Af þessu kemur þvílíkur bjöllu-
hljómur að maður hrekkur upp og hjartað fer á fulla ferð,“ segir
Gilbert.
Spurður hvort hann þekki til vekjaraklukkna sem þarf að hafa
fyrir að slökkva á segir Gilbert að slíkar klukkur séu þræl-
sniðugar fyrir þá sem eiga erfitt með að vakna. Hann segist þó
ekki vita hvar slíkar klukkur eru seldar á Íslandi og reyndar spyrji
fólk hann ekki oft um slíkt. Flestir vilji fá vekjaraklukku sem
hringi hátt. „Ég er aftur á móti með mjög skemmtilega vekjara-
klukku sem lýsir upp í loftið. Ég nota gleraugu og ég sé því ekk-
ert þegar ég vakna. Þessi klukka lýsir hins vegar á vegginn og ég
get stillt fókusinn þannig að ég sjái hvað klukkan er þótt ég sé
gleraugnalaus þegar ég vakna á næturnar eða á morgnana.“
Við styðjum
stelpurnar okkar!