Morgunblaðið - 23.08.2009, Side 30
30 Stelpurnar okkar
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 2009
L
éttleikinn og lífsgleðin lekur
hreinlega af stelpunum okk-
ar, kvennalandsliðinu í knatt-
spyrnu, eins og þjóðin hefur
vísast tekið eftir síðustu vikur
og mánuði og það sást glögg-
lega á lokaæfingu liðsins hér-
lendis, degi fyrir brottförina
til Finnlands þar sem stóra stundin rennur loks-
ins upp á morgun. Þá mætir liðið Frakklandi í
fyrsta leik íslensks landsliðs í úrslitakeppni
Evrópumóts í knattspyrnu.
„Þetta verður örugglega mjög einstök lífs-
reynsla. Maður hefur aldrei prófað mót í líkingu
við þetta áður,“ sagði Edda Garðarsdóttir sem
virðist gegna nokkru leiðtogahlutverki í hópn-
um enda ein af reynsluboltunum. Hólmfríður
Magnúsdóttir, fyrrverandi liðsfélagi Eddu hjá
KR en núverandi andstæðingur hennar í
sænsku úrvalsdeildinni, tekur í svipaðan streng.
„Nú ætlar maður bara að fara út og blómstra
á vellinum; sýna hvað maður er búinn að æfa vel
og hvað maður getur gert. Við ætlum okkur
stóra hluti og vitum að sama hver andstæðing-
urinn er þá getum við alltaf barist og það mun-
um við gera.“
Eins og Edda bendir á hefur liðið aldrei tekið
þátt í jafnstóru móti áður en reynsla liðsins af
sterku árlegu æfingamóti í Portúgal hjálpar til.
Leikmenn hafa einnig farið í fjölda annarra
keppnisferða saman og renna því ekki beint
blint í sjóinn varðandi næstu daga og hvað þeir
munu hafa í för með sér annað en leiki við
nokkrar af sterkustu þjóðum heims.
Á ég að gæta systur minnar?
„Ég verð alltaf að hafa bók meðferðis því þeg-
ar það kemur hvíld á daginn og litlu grisling-
arnir fara að sofa þá þarf ég að hafa eitthvað að
gera. Ég var að klára Karlar sem hata konur og
ævisögu Baracks Obama en er í smávandræðum
með að velja mér bók núna. Ég enda líklega á að
taka Á ég að gæta systur minnar?“ sagði Edda
og ekki annað hægt að segja en það val sé vel við
hæfi.
„Við spilum, förum í göngutúra, kíkjum í pott-
inn ef það er hægt og svo erum við náttúrlega
stelpur þannig að við getum líka bara spjallað
endalaust. Þetta er aldrei leiðinlegt hjá okkur
því þetta eru svo frábærar stelpur. Svo reynir
maður bara að hvíla sig vel og fara í nudd því
þetta mun auðvitað taka alveg rosalega á,“ bætti
Edda við en yfirleitt líða aðeins tveir frídagar á
milli leikja hjá liðinu. Þeir eru nýttir í margt
fleira en að spila og fara í göngutúra segir Rakel
Hönnudóttir sem er eina landsliðskonan sem
býr „úti á landi“ en hún er frá Akureyri.
Fjölskyldan fær takmarkaðan tíma
„Það verður oft leiðinlegt að hanga svona inni
á hótelherbergi þannig að við erum alltaf með
spilastokk og reynum að finna eitthvað að gera.
Maður hangir líka eitthvað á facebook og svo
hlusta ég örugglega á tónlist að meðaltali þrjá
tíma á dag. Ég hlusta eiginlega á allt nema óp-
erur. Við stelpurnar erum allar með mjög mis-
munandi skoðanir á tónlist þannig að við gerð-
um saman lista yfir lög til að hlusta á fyrir leiki
og völdum tvö lög hver. Ég valdi Stanslaust stuð
með Páli Óskari en svo man ég ekki hvað hitt
lagið var en það var eitthvað gamalt, íslenskt og
skemmtilegt.
Við fáum svo smá dauðan tíma daginn eftir
á herbergi hjá mér og Guggu [Guðbjörgu Gunn-
arsdóttur markverði]. Ég veit að hún tók góða
verslunarferð í Bónus fyrir ferðina. Við söknum
þess mikið að geta ekki drukkið þetta í Svíþjóð
þannig að í hvert skipti sem einhver mætir
þangað er hann beðinn að koma með nokkrar
flöskur,“ sagði Hólmfríður sem kann því vel að
hafa Guðbjörgu sem herbergisfélaga.
„Við erum bestu vinkonur og erum alltaf sam-
an á herbergi sem er bara mjög gott. Það er eig-
inlega enginn galli við hana sem herbergisfélaga
en hún leyfir mér reyndar ekki alltaf að sofa
eins lengi og ég vil,“ sagði Hólmfríður létt.
Makar leyfðir inni á herbergjum?
Edda er í svolítið sérstakri stöðu hvað her-
bergisfélaga varðar því hún deilir herbergi með
unnustu sinni, bakverðinum Ólínu G. Viðars-
dóttur. Stundum er það svo í svona mótum að
leiki, svona tvo tíma eða svo, og þá getum við
hitt okkar nánustu. Mamma fer með mér og hún
hefur alltaf stutt við bakið á mér. Við erum fegn-
ar að fá þennan tíma til að hitta fjölskyldu og
vini, og geta aðeins farið af hótelinu og í annað
umhverfi,“ sagði Rakel og Hólmfríður er sam-
mála því.
„Óverdósa“ af Kristal-Plús
„Það er um að gera að hugsa ekki of mikið um
leikina þessa daga á milli þannig að maður reyn-
ir að dreifa huganum eins og hægt er. Ég sef
alltaf mikið á milli leikja til að hvíla mig en svo
er maður bara duglegur að spila og spjalla, og
kíkja á facebook til að senda fréttir heim,“ sagði
Hólmfríður. Hún er alveg með á hreinu hvað
það er sem ekki má gleymast að pakka, svona
fyrir utan takkaskó og legghlífar.
„Það verður nóg til af Egils Kristal-Plús inni
Eins vel undirbúnar og
Samtaka Stelpurnar okkar voru samtaka á síðustu æfingu sinni fyrir Finnlandsferðina sem fram fór á Hofsstaðavelli í Garðabæ enda stefna þær allar að
Eftir Sindra Sverrisson
sindris@mbl.is
LÍKT og margir íþróttamenn nýta stelpurnar okkar
sér tónlist til að koma sér í rétta gírinn fyrir leiki.
Tónlistarsmekkur manna er hins vegar misjafn og
því var brugðið á það ráð að hver leikmaður fengi að
velja tvö lög á lagalistann sem settur er í gang í bún-
ingsklefanum fyrir leiki. Kennir þar ýmissa grasa og
ljóst að gleðigjafinn Páll Óskar Hjálmtýsson er vin-
sæll en á listanum eru einnig lög á borð við evr-
óvisjónlag Jóhönnu Guðrúnar. Lagið sem þær virðast
hins vegar allar elska kemur úr smiðju Helga Björns-
sonar og félaga í SSSÓL og heitir Vertu þú sjálfur.
„Við hlustuðum mikið á þetta fyrir leikina í und-
ankeppninni og laglínan „farðu alla leið“ er í sér-
stöku uppáhaldi,“ sagði Katrín Ómarsdóttir.
„Það var náttúrlega það sem við ætluðum
okkur að gera, að fara alla leið, og það er alltaf
vel tekið undir þegar þessi lína heyrist. Það
syngja allir vel með í klefanum og ég held að þetta sé akkúrat
einkennislag fyrir íslenska kvennalandsliðið. Við erum við sjálf-
ar og ætlum okkur að fara alla leið,“ bætti hún við
ákveðin. Lagalisti stelpnanna er sem hér segir og um
að gera fyrir fólk að sækja lögin til að komast í gírinn
með stelpunum:
Vertu þú sjálfur – SSSÓL Gaggó Vest – Eiki Hauks Is it
True – Yohanna Nei eða já – Stjórnin Nostradamus –
Ný dönsk Stanslaust stuð – Palli Smooth Criminal –
MJ Single ladies – Beyonce Betri tíð – Stuðmenn You
can do whatever you like – Ty Eitt lag enn – Stjórnin
Personal Jesus – Depeche mode Simply the best –
Tina Turner International – Palli Starlight – Muse Dav-
id – Gus Gus Radio – Beyonce Minn hinsti dans – Palli
Map of the problematique – Muse Tutti Frutti–Little
Richard Flottur jakki – Raggi Bjarna Keep
winning – Ray Lavender ft. Archie Party up in
here – DMX Blame it on the alcohol – Jamie
Foxx Get back up – Neyo ft. Keri Hilson Rap Das
Armas – Cidinho & Doca La Bamba – Ritchie Valens
HELGI BJÖRNSSON SÉR UM EINKENNISLAGIÐ
Á EM í Finnlandi kepp
andi handhafi hans. Þ
síðustu skipti og sex s
fyrsta keppnin fór fra
Þetta er í fyrsta sin
að upp í styrkleikaflok
og Evrópumeisturum
sem lék einmitt í riðli
urinn.
Riðill Íslands er B-r
mörku. Í C-riðlinum er
Fyrsti leikur Íslands
daginn. Lokaleikurinn
lega upp úr riðlinum o
gæti dugað að enda í
ast einnig áfram.
Úrslitakeppnin í Fin
leikur við Frakkland í T
leikur riðilsins er svo
ALLT SEM
„Ég reyni bara alltaf að vera hress og kát en
það er náttúrlega erfitt að vera alltaf kölluð
„stuðboltinn“ því maður þorir varla að setja
upp fýlusvip,“ sagði Katrín Ómarsdóttir en
svo er að heyra að liðsfélagar hennar titli
hana sem mesta stuðbolta landsliðshópsins.
„Ég er bara alltaf svo glöð og kát og það
eru svo sannarlega fleiri í landsliðinu en mað-
ur reynir að passa sig að vera rólegur þegar
það á við,“ bætti Katrín við og hún er komin
með nokkrar hugmyndir að afþreyingu þessa
daga sem landsliðið dvelur í Finnlandi á EM.
„Maður er með sudoku-bækur og spil og
svona ýmislegt til að stytta sér stundir. Ég
KATRÍN ER SUDOKU-M