Morgunblaðið - 23.08.2009, Page 31
að peppa hver aðra upp fyrir og eftir leiki. Edda
hefur reyndar ansi oft gefið manni klapp á bak-
ið, sem er svolítið vont, en við tökum bara á
þessu allar saman,“ sagði Hólmfríður. Rakel er
hins vegar alveg viss um hverjar það séu sem
haldi uppi mesta fjörinu.
„Edda og Katrín Ómarsdóttir eru mikið í því
að peppa hópinn upp. Þær eru mjög hressar, og
það er náttúrlega mikilvægt að hafa svona
trúða,“ sagði Rakel létt og Edda gengst alveg
við hlutverkinu sem sá aðili sem stappar stálinu
í liðsfélagana.
„Það er erfitt að koma öllum í gang eftir tap-
leiki og svona en maður reynir sitt besta til að
halda utan um grislingana. Þetta er samt það
góður hópur að það hjálpast bara allir að þegar
það gengur illa.“
Sigurður Ragnar grafalvarlegur
Öfugt við þær Eddu og Hólmfríði þarf sú
norðlenska oft að verma varamannabekkinn í
leikjum og hún segir stemninguna góða þar
þrátt fyrir að spennan verði oft ansi rafmögnuð.
„Við reynum að halda uppi góðri stemningu.
Við tökum til dæmis skemmtilega upphit-
unarleiki þar sem við keppum í að halda á lofti
og sú sem tapar þarf að leika eitthvert dýr og
svona. Þetta er mjög hressandi,“ sagði Rakel
sem þvertekur fyrir að varamennirnir séu eitt-
hvað að trufla þjálfarann meðan á leik stendur,
og benda honum vinalega á að það sé kannski
kominn tími á skiptingu.
„Nei við þorum ekkert að trufla Sigga Ragga
á meðan leikur er í gangi. Hann er svo einbeitt-
ur að það er alveg svakalegt,“ sagði Rakel sem
var á leiðinni að sækja stundatöfluna í sínum
nýja skóla, Tækniskólanum.
„Já, það er gott að byrja skólann á því að biðja
bara um frí. Við ætlum náttúrlega að komast
sem lengst og viljum vera þarna í þrjár vikur
þannig að maður gæti þurft að biðja um ansi
mikið frí.“
„Fáránlega erfiðir leikir“
Leikmannahópurinn allur hefur reyndar
þurft að fórna miklu fyrir þá miklu þolraun sem
framundan er. Allt frá því að sigur vannst á Ír-
um í undarlegum leik á klakabundnum Laug-
ardalsvelli í nóvember síðastliðnum hafa leik-
menn einsett sér að vera upp á sitt besta þær
vikur sem framundan eru.
„Þetta eru fáránlega erfiðir leikir og við verð-
um að reyna eins og við getum að borða rétt og
sofa, og svo eigum við alltaf að klára okkar
skammt af orkudrykkjum. Svona eins og á leik-
skóla,“ sagði Hólmfríður og hló. „Svo tökum við
ísbað með út og ég er orðin alveg háð því,“ bætti
hún við en Ísland leikur á einni viku gegn gríð-
arsterkum liðum Frakklands, Noregs og Þýska-
lands. Óskandi er að öll sú vinna sem nú liggur
að baki þessum frábæra leikmannahópi muni
skila sér í góðum árangri á mótinu þar sem
stefnan hefur verið sett á að komast upp úr riðl-
inum og í 8-liða úrslitin og Hólmfríður er bjart-
sýn á að það takist.
Allt eins og best verður á kosið
„Ég efast ekki um að við séum allar búnar að
æfa og undirbúa okkur eins vel fyrir þetta mót
og hugsast getur. Ég er til dæmis búin að vera í
einkaþjálfun og æfingum tvisvar á dag síðan ég
kom frá Svíþjóð og farið í heita potta og gufu
þess á milli. Siggi Raggi hefur þar að auki séð
mjög vel til þess að allt sé eins og best verður á
kosið fyrir okkur og ég held að við gætum ekki
verið betur tilbúnar.“
mökum er meinað að hitta keppendur á meðan á
því stendur en slíkt væri líklega ansi erfitt í
þessu sambandi.
„Ég held bara að hún sé sú eina sem gæti þol-
að mig því ég er eins og gömul kona með svefn-
inn og svona,“ sagði Edda kankvís. „Eftir að
Siggi Raggi [Sigurður Ragnar Eyjólfsson þjálf-
ari] tók við hafa verið settir saman í herbergi
leikmenn sem passa mjög vel saman og það
skiptir mjög miklu máli,“ bætti hún við, en fyrir
þá sem standa utan hópsins virðist einmitt sem
leikmennirnir passi allir mjög vel saman og
stemningin sé frábær.
Maður reynir sitt besta til
að halda utan um grislingana
„Það er ótrúlegt hvað hópurinn er orðinn
samstilltur. Við erum allar, hver ein og einasta,
einbeittar að sama takmarki og sjáum allar um
hugsast getur
Morgunblaðið/Eggert
því sama; að sýna öllum úr hverju þær eru gerðar þegar þær mæta sterkustu þjóðum Evrópu.
31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 2009
Ég er í eðli mínu mjög bjartsýnn maður og heffylgst með þróuninni hjá stelpunum í gegn-
um tíðina sem hefur verið alveg rosalega
skemmtilegt. Ég hef notið þess vel að fylgjast
með þeim á vellinum og sjá
hvað þær hafa tekið miklum
framförum,“ sagði fjölmiðla-
maðurinn Hermann Gunn-
arsson um stelpurnar okkar.
Hann er þó hóflega bjartsýnn
fyrir keppnina í Finnlandi.
„Ég er eldri en tvævetur í
þessu og þekki það vel hvað
væntingarnar verða alltaf
miklar hjá okkur sem þjóð.
Við erum búin að vinna Evró-
visjon fyrirfram frá árinu
1986 og erum oft með alveg fáránlega drauma en
auðvitað setja stelpurnar markið á að komast
upp úr riðlinum.
Leikurinn við Frakka er lykilleikur upp á það
hvort við á annað borð verðum með í þessari bar-
áttu. Árangurinn er góður sama hvernig þetta fer
allt saman en takist okkur að leggja Frakka þá
getur hið ótrúlega gerst. Ég held að Þýskaland sé
of mikil maskína fyrir okkur en stelpurnar hafa
staðið sig gegn Noregi og ég veit að þær geta
unnið kraftaverk,“ sagði Hermann.
Það er voðalega erfitt að segja til um þetta enauðvitað vona ég bara að þær vinni sem
flesta leiki og komist upp úr riðlinum. Ég held að
það hljóti að vera fyrsta skrefið hjá þeim og það
væri bara frábær árangur.
Þær hafa sýnt og sannað að
þær eru alveg svakalega góð-
ar og þær standa sig bara
þvílíkt vel,“ sagði stang-
arstökkskonan Þórey Edda
Elísdóttir sem þekkir það vel
að mæta til leiks á stórmót
en hennar síðasta var Ólymp-
íuleikarnir í Kína á síðasta
ári. Hún veit því að það þarf
meira til en íþróttahæfileika.
„Ég trúi ekki öðru en að þær séu búnar að
vinna vel í sálfræðihlutanum og ef þeim tekst að
höndla pressuna vel eru þær í góðum málum. Það
var náttúrlega í fyrsta lagi frábær árangur að
komast í mótið og það má auðvitað ekki setja of
mikla pressu á þær en þær þurfa sjálfar að setja
sér hærri markmið eftir að hafa náð því markmiði
að komast á mótið. Það er alltaf hættulegt að
vera búinn að ná því. Ég spái því að þær fari upp
úr riðlinum og vonandi vinna þær fleiri leiki eftir
það,“ sagði Þórey Edda.
Einn af silfurdrengjunum úr íslenska hand-boltalandsliðinu frá Ólympíuleikunum í Pek-
ing á síðasta ári er Sigfús Sigurðsson og hann er
sammála Þóreyju hér að ofan um að hugarfarið
muni skipta miklu máli.
„Þær eru gríðarlega sterkar
allar saman og þegar kemur
út í svona mót þar sem þær
eru með svipaða getu og hin
liðin þá er það sem skiptir
máli hvernig hugurinn er. Þær
hafa sýnt það síðasta eitt og
hálft árið að þær standa alveg
jafnfætis sterkustu liðunum,“
sagði Sigfús sem er bjartsýnn
á gott gengi.
„Persónulega finnst mér að þær eigi að geta
náð í verðlaunasæti ef hlutirnir detta aðeins með
þeim í leikjunum. Ég hef fulla trú á þeim og hef
alltaf verið mikill keppnismaður fyrir þeirra
hönd. Þær hafa staðið sig frábærlega og ég ætl-
ast auðvitað til að þær leggi sig 100% fram eins
og þær gera alltaf og þá munu þær ná langt. Það
er góður karakter í þessu liði og sem hópur þá
eru þær bara mjög góðar.“
Þóra Tómasdóttir úr Kastjósinu kynntist stelp-unum vel við gerð heimildamyndarinnar
Stelpurnar okkar.
„Ég hef trú á að þær noti alla spennuna og
væntingarnar varðandi þetta
mót til góðs. Þær vita alveg
hvað þetta skiptir rosalega
miklu máli og eru ekkert
saddar þótt þær séu komnar í
þessa úrslitakeppni. Án þess
að ég viti nokkuð um fótbolta
þá veit ég hvernig þær tala.
Þær eru búnar að vera í
markvissri vinnu að því að
vera ekki bara „litla“ liðið í
leikjum sem leggst í vörn, og
það er alveg ljóst að þær eru ekki þjakaðar af
neinni minnimáttarkennd,“ sagði Þóra og henni
líst vel á mótið.
„Ég býst bara við að þær komist í 8-liða úrslit-
in. Ég held að það sé alveg raunhæft að búast við
að þær nái einum sigri í þessum riðli.“
VIÐ HVERJU MÁ BÚ-
AST AF STELPUNUM?
Hermann
Gunnarsson
Þóra Tómasdóttir
Þórey Edda
Elísdóttir
Sigfús Sigurðsson
pa tólf bestu þjóðir Evrópu um Evrópumeistaratitilinn en Þýskaland er núver-
Þýskaland, sem leikur í riðli með Íslandi, hefur reyndar unnið keppnina fjögur
sinnum í þeim níu keppnum sem haldnar hafa verið frá árinu 1984 þegar
am í Svíþjóð.
nn sem tólf lið leika í keppninni en áður voru þau átta talsins. Liðunum var rað-
kka og síðan var dregið í þrjá fjögurra liða riðla og er Ísland í riðli með heims-
Þýskalands, silfurliðinu frá síðasta Evrópumóti; Noregi, og loks Frakklandi
með Íslandi í undankeppni mótsins þar sem þjóðirnar unnu hvor sinn sig-
riðill en í A-riðli eru heimamenn í Finnlandi ásamt Úkraínu, Hollandi og Dan-
ru svo lið Englands, Ítalíu, Svíþjóðar og Rússlands.
s er gegn Frakklandi á morgun, mánudag, og sá næsti gegn Noregi á fimmtu-
n í riðlinum er svo við Þýskaland á sunnudaginn eftir viku. Til að komast örugg-
og í 8-liða útsláttarkeppni þarf Ísland að enda í 1. eða 2. sæti riðilsins en einnig
þriðja sætinu því tvö stigahæstu liðin sem enda í þriðja sæti síns riðils kom-
nnlandi fer fram á fjórum stöðum, Helsinki, Lahti, Turku og Tampere. Ísland
Tampere en heldur svo í suðausturátt til Lahti og leikur við Norðmenn. Loka-
í Tampere. Úrslitaleikur keppninnar fer fram á ólympíuleikvanginum í Helsinki.
ÞÚ ÞARFT AÐ VITA UM EM
MARGIR íþróttamenn eiga sér uppáhaldsklæðnað
sem þeir mega helst ekki vera án á leikdegi ef ekki
á illa að fara. Það virðist þó lítið um slíka hjátrú hjá
stelpunum okkar en fyrirliðinn Katrín Jónsdóttir
spilar þó í eldgömlum legghlífum sem maður
hennar Þorvaldur Makan Sigbjörnsson hefur
notað sem og KR-ingurinn Guðmundur Bene-
diktsson.
Klæðnaður stelpnanna er enda að mestu í
boði Knattspyrnusambands Íslands en þær
nota þó að sjálfsögðu eigin undirföt og afar
óformleg könnun leiddi í ljós að þar hafa
hjólabuxur vinninginn fram yfir g-strengi og
blúndunærföt.
„Mér fannst alltaf betra að spila í g-streng en svo þrosk-
aðist maður upp úr því og núna spila ég bara í hjólabuxum,“ sagði einn
leikmaður og annar bætti við: „Það er mun þægilegra að vera bara í
hjólabuxunum. Þá þarf maður ekki alltaf að vera að laga nærbuxurnar
til.“
HJÓLABUXUR FRAM YFIR ÞVENGI
myndi segja að ég væri sudoku-meistari
landsliðsins en ég held að Katrín Jónsdóttir
yrði ekki ánægð með það,“ sagði Katrín létt
og áréttar að þó að landsliðsfyrirliðinn sé
vissulega læknismenntaður þá sé það ekki
lykilatriði í Sudoku-þrautum.
Athygli vekur að Katrín deilir jafnan her-
bergi með Dóru Stefánsdóttur en þær eru í
harðri baráttu um byrjunarliðssæti.
„Það er svolítið spes en við erum góðar vin-
konur og látum samkeppnina ekki hafa nein
áhrif á okkur. Þetta er líka ekki hennar val
þannig að það þýðir lítið að gefa henni illt
auga. Ég stari bara á Sigga Ragga í staðinn.“
MEISTARI HÓPSINS