Morgunblaðið - 23.08.2009, Síða 37
Umræðan 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 2009
MEÐ ÞESSU
glórulausa og alger-
lega innihaldslausa
væntingaplaggi um
betri heim og sól í
haga afsalaði verka-
lýðsforystan sér rétt-
inum til að segja
samningum upp ein-
hliða og byrja upp á
nýtt. Þess í stað var
farið í að verja samn-
inga frá árinu 2007 sem eiga ekk-
ert sameiginlegt með því ástandi
sem við stöndum frammi fyrir í
dag.
Launahækkunin sem fékkst í
kjölfar samkomulagsins var skitn-
ar 6.500 krónur á mánuði sem
fyrirtækin hafa tæplega efni á að
borga nema skera frekar niður,
jafnvel með uppsögnum. Þessi
hækkun var farin út um gluggann
áður en blekið var þornað í formi
verðbóta húsnæðislána og hækk-
andi vöruverðs í bland við skatta-
hækkanir og aðrar álögur frá ríki
og sveitarfélögum sem hafa svo
enn meiri hækkunaráhrif á
neysluvísitölu. ASÍ lítur undan.
Mér er enn í fersku minni þegar
varaforseti ASÍ lagði mikla
áherslu á að félagsmenn ættu síð-
asta orðið á trúnaðarráðsfundi
VR. Það voru orðin tóm því á öðr-
um fundi með landssambandi
verslunarfélaga kom fram að það
þýddi ekkert að fara með þetta í
atkvæðagreiðslu ef hin ASÍ-
félögin myndu ganga að þessari
vitleysu.
Einn talsmaður samkomulagsins
sagði félagsmenn svo vitlausa að
þeim væri ekki treystandi til að
kjósa um þetta mál, þeir héldu að
kjósa ætti um Icesave.
Hvernig er hægt að gera
stöðugleikasáttmála þegar þeir
valdameiri hafa hag af óstöð-
ugleika?
Á meðan ríkið dælir fjármagni í
peningamarkaðssjóðina, svo að
fjármagnseigendur tapi sem
minnstu, brenna fasteignir al-
mennings upp á verðbólgubálinu
sem aftur lagar eignastöðu banka
og lífeyrissjóða til mikilla muna
eftir útrásarfylleríið. Hér er gróf
mismunun á ferð. ASÍ lítur undan
sem fyrr.
Í stað þess að fara tafarlaust í
vinnu við að bjarga heimilum
þessa lands, nýta krafta okkar til
afnáms verðtryggingar eða setja
tafarlaust þak á verðbætur, finna
raunhæfa lausn á vanda ein-
staklinga og heimila vegna mynt-
körfulána lítur ASÍ undan.
Þetta er skammarlegt fyrir
hreyfinguna, sem rakar inn fé-
lagsgjöldum sem aldrei fyrr.
Ég sat einn af mörgum fundum
sem stjórnarmaður í VR og hlust-
aði á plön og væntingar ASÍ til
ársins 2013. Þar malaði hagfræð-
ingur ASÍ ásamt forystumönnum
sambandsins um horfur á íslensk-
um vinnumarkaði og efnahagslífi
ásamt leiðum út úr vandanum.
Það er ekkert í þeirra plönum
næstu árin sem tekur á helstu
vandamálum launafólks nema inn-
ganga í Evrópusambandið.
Er friðurinn á vinnumarkaði og
umboðssvikin til að stjórnvöld
þurfi ekki að hafa verkföll eða
lausa kjarasamninga hangandi yfir
sér meðan okkur verður þröngvað
inn í Evrópusambandið? Verður
launafólk og fjölskyldur þeirra
komið hálfa leið fram af kletta-
brúninni þegar Evrópusamn-
ingnum verður veifað framan í
okkur sem töfralausn frá eymd og
volæði?
Verður afnám verðtryggingar
notað sem skiptimynt fyrir at-
kvæði inn í Evrópusambandið?
Sú framtíð sem blasir við ung-
um fjölskyldum þessa lands er að
lífeyrissjóðir og bank-
ar eru smám saman
að taka eignarnámi, í
gegnum verðbætur
húsnæðislána, aleigu
fólks.
Er þjóðhagslega
hagkvæmt að leggja
slíkar byrðar á launa-
fólk að sjá meirihluta
launamanna undir fer-
tugu þurfa að byrja
upp á nýtt eða stefna í
þrot? Hvað gerist þeg-
ar stórskuldugir árgangar fara á
lífeyri? Hvað kostar það sam-
félagið að halda okkur uppi á líf-
eyri þegar við skuldum meirihluta
í fasteignum okkar? Þeir sem eru
með myntkörfulán verða kannski
komnir með jákvæða eiginfjár-
stöðu um fimmtugt, þ.e. skulda
markaðsvirði fasteigna sinna.
ASÍ og SA stjórna sameiginlega
lífeyrissjóðum okkar og hafa þver-
tekið fyrir að skattleggja lífeyris-
greiðslur fyrirfram sem gæti skil-
að ríkissjóði tekjum sem jafngilda
um 5% hækkun á tekjuskattsstofni
frá fyrsta degi án þess að nokkur
tæki eftir því. Nema lífeyrissjóð-
irnir sem þyrftu að losa vonlausar
bréfaeignir mun fyrr til að standa
undir lífeyrisskuldbindingum. Þá
fyrst kæmi raunverulegt eigna-
verðmæti sjóðanna í ljós enda
stórlega ofmetið. Lífeyrissjóðirnir
voru ekki með neinar sólarvarnir
fyrir útrásarsólinni sem skilið hef-
ur eftir sig rjúkandi brunarústir
alls staðar sem hún skein, og hún
skein glatt á sjóðina, svo mikið er
víst.
Ef almenningur er að bíða eftir
töfralausnum frá félögum sem
þiggja um 1% af launum okkar
mánaðarlega í félagsgjöld þá verð-
ur það löng bið.
VR greiðir 28 milljónir á ári til
Landssambands ísl. versl-
unarfélaga, sem eru regnhlíf-
arsamtök VR sem varaforseti ASÍ
stýrir, en hún á sæti í yfir 20
nefndum og stjórnum víðsvegar í
stjórnkerfinu.
Svo greiðum við aðrar 75 millj-
ónir til ASÍ fyrir yfirumsjón
hagsmunagæslu launafólks en þar
fer fremstur í flokki Evrópusinn-
inn og samfylkingarmaurinn Gylfi
Arnbjörnsson. Hvernig væri ef
VR greiddi Hagsmunasamtökum
heimilanna nokkrar milljónir?
Þeim virðist vera meira umhugað
um framtíð okkar en ASÍ, sem
gerir ekkert annað en að verja
helstu kosningamál Samfylkingar-
innar, sem eru Evrópusambandið,
lánalengingar og annað úrræða-
leysi. Skrifstofu- og stjórn-
unarkostnaður VR var 404 millj-
ónir á síðasta ári. Við hljótum að
geta gert betur en frjáls hags-
munasamtök heimilanna sem
starfa af hugsjóninni einni saman.
Eða hvað?
Stöðugleikasátt-
máli fyrir hverja?
Eftir Ragnar Þór
Ingólfsson
Ragnar Þór Ingólfsson
» Stöðugleikasáttmál-
inn er líklega ein
mestu umboðssvik
gagnvart launafólki eft-
ir afnám vísitölutrygg-
ingar launa árið 1983 og
verðtrygging lána stóð.
Höfundur er stjórnarmaður í VR.
Fréttir
í tölvupósti
www.or.is
Orkuveita Reykjavíkur auglýsir
styrk til kvenna sem stunda
eða hyggjast hefja nám í einni
af eftirfarandi greinum: Vélfræði/vélstjórnun, rafvirkjun, vél-
virkjun, múraraiðn eða pípulögnum. Styrkþegum býðst sumar-
starf hjá Orkuveitu Reykjavíkur meðan á námi stendur.
Umsóknum ber að skila með rafrænum hætti á vef Orkuveitu Reykjavíkur, www.or.is/styrkir fyrir 14. september.
Nauðsynlegt er að upplýsingar um náms- og starfsferil ásamt staðfestingu á skráningu í nám fylgi með. Nánari
upplýsingar um úthlutun styrksins eru á vef OR.
Orkuveita Reykjavíkur er jafnréttismiðað fyrirtæki sem hefur markvisst unnið að því að fjölga konum á þeim starfssviðum þar sem
þær hafa verið í minni hluta. Konur eru nú innan við þriðjungur starfsmanna og árangurinn af jafnréttisstarfi innan fyrirtækisins
hefur verið góður þar sem hlutfall kvenna hefur aukist á síðustu árum. Minnst hefur þó orðið ágengt við að fjölga konum í iðn- og
vélfræðistörfum innan fyrirtækisins.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
IC
E
46
96
5
08
.2
0
0
8
Styrkur til iðnnáms
eða náms í vélfræði
(vélstjórnun)
• Jafnrétti er í hávegum haft í öllum störfum Orkuveitu Reykjavíkur.
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Borgarveisla
í haust frá kr. 79.900
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
M
bl
11
33
00
7
PRAG
24.-27. september
frá kr. 89.900
Ótrúlegt sértilboð!
10 herbergi
- glæsileg gisting!
Verð kr. 89.900
Netverð á mann, m.v. gistingu í
tvíbýli í 3 nætur á Hotel Clarion
Congress **** með morgunmat.
Sértilboð 24. sept.
SEVILLA
22.-26. október
frá kr. 79.900
Ótrúleg sértilboð!
20 sæti & góð gisting!
Verð kr. 89.900
Netverð á mann, m.v. gistingu í
tvíbýli í 4 nætur á Hotel Alcora ****
með morgunmat. Sértilboð 22. okt.
BÚDAPEST
22.-26. október
frá kr. 79.900
Frábært verðlag!
Ótrúleg sértilboð!
Örfá herbergi - frábær gisting!
Verð kr. 79.900
Netverð á mann, m.v. gistingu í
tvíbýli í 4 nætur á Hotel Platanus ***
eða Hotel Ibis Váci út *** með
morgunmat. Aukalega m.v. gistingu á
Hotel Radisson SAS ****+ kr.
10.000. Sértilboð 22. okt.