Morgunblaðið - 23.08.2009, Side 40
40 Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 2009
Reykjavík
Sími 588 9090
Síðumúla 21 • 108 Reykjavík
www.eignamidlun.is
Sverrir Kristinsson, lögg. fasteignasali
Traustur kaupandi óskar eftir 80-130 fm vönduðum sumarbústað við
vatn. Staðgreiðsla í boði.
Nánari upplýsingar veita Geir Sigurðsson
eða Sverrir Kristinsson löggiltir fasteignasalar.
Sumarbústaður við vatn óskast
– staðgreiðsla
Strandvegur Garðabæ – Frábært sjávarútsýni
Sérlega glæsileg íbúð á frábærum útsýnisstað við sjávarkambinn í
Sjálandshverfinu í Garðabæ. Mikið hefur verið lagt í hönnun (Rut Kára-
dóttir) og eru öll tæki og innréttingar fyrsta flokks. Stærð er samtals
með bílskúr 174,3 m² (íbúð 152,1 og bílskúr 22,2).
Pantið skoðun hjá Þórhalli sími 896-8232
Garðatorg 7 - 210 Garðabæ - sími 545 0800 - Þórhallur Guðjónsson, lögg. fast.sali
Til leigu glæsilegt 400 fm verslunarhúsnæði
á áberandi stað í Kópavogi, nálægt Byko.
Upplýsingar í síma 892 8520.
Til leigu
487 m2 atvinnuhúsnæði á jarðhæð. Hentar fyrir fjölþætta starfsemi s.s.
heildsölu eða hverskonar iðnaðarstarfsemi. Gluggar. Stórar
innkeyrsludyr, laust strax. Frábær staðsetning. Hagstætt leiguverð.
Nánari uppl. veitir Dan Wiium s. 896 4013.
MÖRKIN 1 - TIL LEIGU
Ármúla 21 • 108 Reykjavík • Sími 533 4040
kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is
Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali gsm 896 4013
Dan V. S. Wiium Ólafur Guðmundsson
hdl., lögg. fasteignasali. s. 896 4013 sölustjóri s. 896 4090
jöreign ehf
KIRKJUÞING sam-
þykkti í vetur sem leið
frumvarp til nýrra
þjóðkirkjulaga. Í frum-
varpinu felast nauðsyn-
leg skref sem kirkju-
þing telur að þurfi að
taka ef sjálfstæði kirkj-
unnar á að fá að aukast.
Í frumvarpinu felast
umbætur í átt til lýð-
ræðislegri vinnubragða
í stjórnsýslu kirkjunnar og lagfær-
ingar á lögfestum skipulagsmálum
hennar. Það er orðið mjög tímabært
að fá fram þær breytingar sem felast
í þessu samþykkta frumvarpi kirkju-
þings. Það er mat mitt að þjóð-
kirkjan þurfi að fá aukið svigrúm af
hálfu Alþingis til að axla meiri
ábyrgð á því en áður hvernig mál-
efnum þjóðkirkjunnar er stýrt innan
stofnana hennar. Með því, sem
kirkjuþing er núna að stefna að með
þessu frumvarpi að endurskoðaðri
rammalöggjöf, verður til kirkja
óháðari ríkisvaldi en
kirkjan hefur verið til
þessa. Með því gæti
kirkjan betur ráðið
málum sínum til lykta
en nokkru sinni áður.
Við sjáum ennþá mörg
mál á algjörum for-
gangslista hjá rík-
isstjórn Jóhönnu Sig-
urðardóttur og Alþingi
Íslendinga í ljósi þeirr-
ar stöðu sem efnahags-
mál og utanríkismál
hafa verið í það tæpa ár
sem liðið er frá bankahruninu, er
þetta málefni kirkjunnar trúlega efst
í forgangslista hvað varðar kirkju-
löggjöf. Það er von mín að ráðherra
geti lagt fram frumvarp þetta á Al-
þingi strax í haust, en það má líka
geta þess að það hefur ekki í för með
sér neinn kostnaðarauka, heldur
miklu fremur sparnað með einfald-
ara skipulagi.
Stöðug þróun í áratug
Stóra skrefið í átt til aukins sjálf-
stæðis og lýðræðis var tekið með
setningu rammalöggjafar um stöðu,
stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar
árið 1997. Undir þessum lögum hef-
ur orðið markviss þróun í sömu átt.
Á þessum tíu árum hafa menn fundið
nauðsyn þess að lagfæra ákvæði lag-
anna, hreinsa til vegna ósamræmis í
þessum annars merka lagabálki og
vinna að breytingum í átt til lýðræðis
og ábyrgðar kirkjunnar á eigin mál-
um. Eitt lítið dæmi um það er að
ákvæði um skipan kirkjuþings og
kosningar til kirkjuþings voru tekin
úr lögum frá Alþingi og sett í hendur
kirkjuþings. Þessi breyting varð að
lögum vorið 2006. Þá var skip-
unarvaldið fært frá ráðherra til bisk-
ups árið 2007, en ráðherra skipar
ekki lengur í prestsembætti. Eitt
flóknasta mál í samskiptum kirkju
og ríkis var leyst með samningi og
lögum sem tóku gildi 2007. Í því fólst
endanlegt uppgjör varðandi eign-
arhald á kirkjujörðum og prests-
setrum. Með þessum samningi var
skilið á milli eigna ríkis og kirkju og
er það framhald á samningi sem
gerður var 1996 um afhendingu
kirkjueigna gegn launaskuldbind-
ingum á tilteknum fjölda prestsemb-
ætta. Hér varð endapunktur á sögu
þessara mála sem rekja má aftur til
1907. Eftir þessa þróun og í ljósi vilja
kirkjunnar til aukinnar ábyrgðar í
eigin málum er þó enn að finna leifar
af valdi ráðherra. Hann setur enn
gjaldskrá fyrir prestsverk sem verða
að teljast furðu mikil afskipti af
prestsþjónustu í landinu miðað við
allar aðrar breytingar. Með frum-
varpinu er lagt til að það hverfi og
gjaldskrá verði í framtíðinni sett af
kirkjuþingi. Og þess ber að geta að
kirkjuþing hefur ítrekað samþykkt
áskorun til ráðherra að fella alfarið
niður gjald fyrir skírnir og ferming-
arfræðslu. Þróunin í þessu litla efni
yrði jákvæð fyrir kirkjuna og alla þá
sem leita þessarar þjónustu á lífs-
leiðinni, þ.e. foreldra skírnar- og
fermingarbarna og börnin sjálf.
Knýjandi
að auka lýðræðisferlið
Það er knýjandi að auknu vægi
kirkjuþings, sem æðsta valdi kirkj-
unnar, fylgi aukið lýðræði í kosningu
til þingsins og við skipan æðstu
stjórnar kirkjunnar. Með núverandi
skipulagi eru t.d. ekki mörg atkvæði
að baki þeim sem taka á sig mikla
ábyrgð innan kirkjunnar. Kosninga-
reglur þurfa að taka breytingum í átt
til meira lýðræðis. Fjárstjórn-
arvaldið innan kirkjunnar þarf að fá
að styrkjast og einfalda þarf stjórn-
sýsluna. Starfsemi þjóðkirkjunnar
þarf að fá að taka breytingum sem
létta henni að ráða málum sínum til
lykta innan stofnana hennar. Með
frumvarpinu er farið langt í þessa átt
þótt ganga þurfi enn lengra í fram-
tíðinni. Sú vegferð verður farsælli ef
þetta frumvarp að bættri rammalög-
gjöf nær fram að ganga. Ábyrgðin er
skýrari núna í ljósi þeirrar reynslu
sem við höfum öðlast með lögunum
frá 1997, en þau lög voru á sínum
tíma háð talsverðum málamiðlunum.
Með nýja frumvarpinu er einnig tek-
ið mið af þróun sem orðið hefur með
lögum um almenna stjórnsýslu, hæfi,
upplýsingarskyldu og jafnréttismál.
Það væri í anda áberandi umræðu
um gagnsæi stjórnsýslu í landinu ef
þessi ríkisstjórn Samfylkingar og
Vinstri grænna, sem á stuttum
valdatíma hefur þegar markað stór
spor í sögu þjóðarinnar, tæki hönd-
um saman með kirkjunni svo að
hægt verði að stíga þessi næstu
skref sem allra fyrst.
Ábyrgð þjóðkirkjunnar
og aukið sjálfstæði
Eftir Kristján
Björnsson » Það er mat mitt að
þjóðkirkjan þurfi að
fá aukið svigrúm af
hálfu Alþingis til að axla
meiri ábyrgð á því en
áður hvernig málefnum
þjóðkirkjunnar er stýrt
innan stofnana hennar.
Kristján Björnsson
Höfundur er sóknarprestur og
kirkjuráðsmaður.
ÉG LAS nýverið
bók eftir hinn banda-
ríska Norm Ledgin
sem ber nafnið
„Asperger’s and Self
Esteem. Insight and
Hope Through Famo-
us Role Models“.
Hann á son með
Asperger-heilkenni
og miðlar í bókinni af
sinni reynslu, auk
þess sem bókin er hvatning fyrir
þá sem fæðast með þetta heil-
kenni, foreldra og alla þá sem um-
gangast krakka og unglinga með
Asperger.
Formálann ritar dr. Temple
Grandin sem allir muna eftir sem
sáu heimildarmyndina Sólskins-
drenginn í leikstjórn Friðriks
Þórs Friðrikssonar. Í formálanum
lýsir hún meðal annars sinni
skólagöngu þar sem henni var
strítt mikið vegna þess að hún var
öðruvísi en allir hinir og hún sótti
því í klúbba í skólanum sem hent-
uðu hennar áhugamálum og voru
gjarnan á vísindasviði þar sem
hún fékk að vera í friði innan um
nemendur sem voru í svipuðum
sporum og hún. Grunnskólaárin
voru martröð fyrir hana, en hún
þakkar velgengni sína þeim góðu
kennurum sem urðu á vegi hennar
og sáu hvar hæfileikar hennar
lágu. Hjá þeim fékk hún stuðning
og afdrep. Jafnframt sagði hún að
hennar reynsla sýndi að lítið varð
úr þeim sem höfðu strítt henni í
skóla, en meira varð úr henni og
þeim sem voru með henni í
vísindaklúbbnum.
Hvað er Asperger?
Það var barnalækn-
irinn Hans Asperger
frá Austurríki sem
lýsti fyrst þessu heil-
kenni árið 1944. Í lýs-
ingum hans voru
helstu einkennin þau
að börnin áttu erfitt
með að lesa í hegðun
annarra eins og lík-
amstjáningu, svip-
brigði eða raddbeit-
ingu, einnig að setja
sig í spor annarra. Þau tóku því
alveg bókstaflega sem sagt var og
gátu illa áttað sig á þegar var ver-
ið að gera grín. Þá áttu þau í erf-
iðleikum með að samlagast jafn-
öldrum og voru klaufsk í
hreyfingum.
Dr. Temple Grandin er þeirrar
skoðunar að börn með Asperger
séu oft með miklar gáfur á
ákveðnum sviðum en litlar á öðr-
um. Hún heldur því fram að ann-
aðhvort séu þau með gáfur varð-
andi að hugsa um allt sjónrænt og
hafa þau þá gjarnan mikla teikni-
hæfileika (eins og hún sjálf), eða
að þau hafi mikla hæfileika varð-
andi tölur, reikning og tónlist.
Tölvugeirinn er þekktur fyrir
það að margir með Asperger kom-
ast þar langt áfram. Hluti af skýr-
ingunni er sá að fólk með Asper-
ger fær gjarnan þráhyggju yfir
áhugamálum sínum og nær undra-
verðum árangri. Gott dæmi er um
43 ára gamlan Breta sem nú á að
framselja til Bandaríkjanna eftir
sjö ár. Hann braust inn í tölvu-
kerfi Pentagon og NASA fyrir sjö
árum því hann vildi komast að því
hvort þeir vissu eitthvað meira en
hann um fljúgandi furðuhluti
(UFO). Þetta átti ekki með
nokkru móti að vera hægt, en
honum tókst þetta með þessum
saklausa tilgangi og þarf vænt-
anlega að sitja inni í mörg ár.
Bretar eru ævareiðir yfir þessu,
einkum vegna þess að maðurinn
er greindur með Asperger.
Snillingar?
Fólk með Asperger er ekki
öðruvísi en annað fólk hvað varðar
að það hefur þörf fyrir félagsskap,
ást og umhyggju. Þótt það virðist
stundum einrænt þá er það meira
til þess að vernda sjálft sig fyrir
öllu áreitinu í kringum það vegna
þess að það er mun næmara fyrir
öllum hávaða, fjölmenni og breyt-
ingum almennt. Það þarf skýran
ramma og verður að vita að
hverju það gengur.
Fræðin segja að margir af
mestu snillingum sögunnar hafi
verið með Asperger. Má þar nefna
Charles Darwin, Wolfgang Ama-
deus Mozart, H.C. Andersen, Al-
bert Einstein og Thomas Jeffer-
son. Svo er spurningin að líta
aftur í tímann og spyrja sig:
Hverjir af íslensku snillingunum
voru hugsanlega með Asperger?
Eftir Hönnu Láru
Steinsson » Fólk með Asperger
er ekki öðruvísi en
annað fólk hvað varðar
að það hefur þörf fyrir
félagsskap, ást og um-
hyggju.
Hanna Lára Steinsson
Höfundur er félagsráðgjafi
og foreldri.
Asperger – snillingar?
Fréttir í
tölvupósti