Morgunblaðið - 23.08.2009, Blaðsíða 45
Minningar 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 2009
Steinsmiðjan MOSAIK
Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík • sími 587 1960 • www.mosaik.is
MIKIÐ ÚRVAL AF LEGSTEINUM
OG FYLGIHLUTUM
Sendum myndalista
Selhellu 3 Hafnarfirði
Sími 517 4400 • www.englasteinar.is
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SIGRÍÐUR TH. ÁRMANN
ballettkennari,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík
mánudaginn 24. ágúst kl. 11.00.
Sigbjörn Björnsson, Ragna J. Sigurðardóttir,
Ásta Björnsdóttir, Guðni B. Guðnason,
Pálína Björnsdóttir,
Sigurður Gísli Sigbjörnsson,
Sigríður Th. Sigbjörnsdóttir.
✝
Elskulegur sonur minn, faðir okkar, tengdafaðir,
bróðir, mágur og afi,
ERLAR JÓN KRISTJÁNSSON,
Árnatúni 4,
Stykkishólmi,
verður jarðsunginn frá Stykkishólmskirkju
mánudaginn 24. ágúst kl. 14.00.
Auður Júlíusdóttir,
Auður Bergþóra Erlarsdóttir, Albert Steingrímsson,
Katrín Eva Erlarsdóttir, Vignir Örn Oddgeirsson,
Jónína K. Kristjánsdóttir, Bernt H. Sigurðsson,
Kristján J. Kristjánsson, Svandís Einarsdóttir,
Þóra M. Halldórsdóttir
og barnabörn.
✝
Okkar hugljúfa eiginkona, móðir, tengdamóðir og
amma,
MARY ALBERTY SIGURJÓNSDÓTTIR
hjúkrunarkona,
Faxatúni 32,
Garðabæ,
sem lést mánudaginn 3. ágúst, verður jarðsungin
frá Vídalínskirkju í Garðabæ þriðjudaginn 25. ágúst
kl. 15.00.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Grensásdeild Landspítalans.
Jón Fr. Sigvaldason,
Ragnheiður Edda Jónsdóttir, Guðmundur Þór Kristjánsson,
Líney Rut Guðmundsdóttir,
Jón Grétar Guðmundsson.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
JÓNÍNA ÁGÚSTSDÓTTIR,
áður Dalbraut 18,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Laugarneskirkju þriðjudaginn
25. ágúst kl. 15.00.
Ragnhildur Ásmundsdóttir, Árni Arnþórsson,
Óskar Már Ásmundsson,
Þráinn Ásmundsson, Guðbjörg Árnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GEIR KRISTJÁNSSON,
Brúnalandi 32,
Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum við Hringbraut föstu-
daginn 14. ágúst, verður jarðsunginn frá Neskirkju
miðvikudaginn 26. ágúst kl. 15.00.
Anna Gísladóttir,
Kristján Geirsson, Droplaug Guðnadóttir,
Margrét Geirsdóttir, Haukur K. Bragason,
Birkir Kristjánsson,
Anna Björk Kristjánsdóttir,
Kristófer Geir Hauksson,
Helga Margrét Hauksdóttir.
Garðar Pétur
Ingjaldsson
✝ Garðar PéturIngjaldsson
fæddist á Landspít-
alanum í Reykjavík
10. júní 1982. Hann
lést í Reykjavík 23.
júlí síðastliðinn. For-
eldrar hans eru Inga
María Hansen Ásgeirsdóttir frá Bolung-
arvík og Ingjaldur Kárasson frá Blöndu-
ósi. Systur Garðars sammæðra eru
Guðbjörg Hansen, f. 1991, og Rósa
María Hansen, f. 1994 og systkini sam-
feðra eru Anton, f. 1995 og Ásta Lilja, f.
2007.
Dóttir Garðars og Sóleyjar Báru Bi-
toni er Sigurlaug Birna, f. 8. janúar
2003.
Unnusta Garðars er Freyja Ösp
Burknadóttir, dóttir þeirra er Birgitta
Rut, f. 22. janúar 2009.
Garðar bjó fyrstu 4 æviár sín á
Blönduósi en þegar foreldrar hans slitu
samvistum flutti hann vestur til Bolung-
arvíkur með móður sinni og bjó hann
þar hjá móðurforeldrum til 9 ára aldurs
er hann flutti til móður sinnar og fóst-
urföður, Sigurðar Hansen, í Mos-
fellsbæinn. Að loknu námi í Varm-
árskóla í Mosfellsbæ lá leið hans til sjós
sem varð síðan hann aðalatvinna til
dauðadags.
Útför Garðars Péturs fór fram frá
Laugarneskirkju 5. ágúst.
Meira: mbl.is/minningar
Ingeborg G.
Skeggjason
✝ Ingeborg Dorot-hea Günther
Skeggjason fæddist í
Neugersdorf í Þýska-
landi 25. september
1926. Hún lést á Heil-
brigðisstofnun Suð-
urlands á Selfossi 29.
júlí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru
Anna Kristina og Max Günther. Yngri
bræður hennar, Frithjof og Sigfrid, eru
báðir á lífi.
Ingeborg lærði hjúkrun á sjúkrahúsi
Diakoni-systra í Hirshberg í Riesengeb-
irge. Eftir stríð kom Ingeborg til Íslands
og hóf starf við hjúkrun á elliheimilinu
Grund 1949. Þar starfaði hún með
hléum næstu áratugi, loks sem yf-
irhjúkrunarfræðingur frá 1968-1982.
Eiginmaður Ingeborgar var Knútur
Skeggjason, tæknimaður og síðar safn-
vörður við Ríkisútvarpið, f. á Ísafirði 21.
apríl 1924, d. 3. desember 1996. Dóttir
þeirra er Ása Kristín, f. 1959. Börn
hennar eru Þuríður Annabell, f. 1983,
Yvonne Dorothea, f. 1985, og Hjalti, f.
1990. Dæturnar færðu Ingeborgu þrjá
langömmudrengi, Heiðar Mána, Einar
Ágúst og Róbert Frey.
Ingeborg og Knútur bjuggu lengi á
Brávallagötu 18 og síðar á Kvisthaga 16
í Reykjavík. Þar bjó hún áfram eftir lát
eiginmannsins. Fyrir nokkrum árum fór
hún á elliheimilið Grund, en síðastliðið
haust fluttist hún að Lækjarteigi í Ölf-
usi.
Ingeborg var jarðsungin frá Neskirkju
í Reykjavík 7. ágúst.
Meira: mbl.is/minningar
Mig langar að
minnast afa Þóra í ör-
fáum orðum. Ég var
svo heppin að fá að
kynnast honum sem
afa, og vinnuveitanda. Ég vann með
honum frá 1998 þar til hans naut
ekki lengur við vegna heilsu. Afi var
góður húsbóndi og af honum hef ég
lært margt. Margir hefðu gott af því
að vinna með þeim sem muna tím-
ana tvenna því það er góður skóli.
Það var ekkert verið að bruðla í
óþarfa.
Afi var heiðarlegur og góður mað-
ur. Hann kom oft fyrir sem hrjúfur
maður en að innan var hann ein-
stakt ljúfmenni og barngóður mjög.
Afi þoldi illa dráttarvexti. Hann
borgaði alla reikninga í tíma til að
sleppa við þá. Ég mun passa upp á
það fyrir hann núna. Það voru ófá
símtölin sem ég varð vitni að í næsta
herbergi við hann þegar hann þurfti
að lesa einhverjum pistilinn um eitt-
hvað sem honum fannst ekki vera
rétt. Ég átti oft bágt með mig þarna
hinum megin og fann til með þeim
sem varð fyrir því að svara á hinum
enda línunnar. Afi var ekki með yf-
irgang heldur skyldi rétt bara vera
rétt.
Börnin mín þrjú voru öll með mér
í vinnunni hjá afa í „bláu vinnunni“
eins og þau kölluðu Þrótt. Þeim
fannst mjög gaman að vera í glugg-
anum á skrifstofu hans og fylgjast
með lyfturunum niðri í vinnslusal.
Mér leið alltaf eins og afi kæmi aftur
í vinnuna er hann næði heilsu á ný.
Hann var samt meira og minna frá
vinnu síðan um mitt ár 2007. Hann
var alltaf til staðar, aðeins símtal í
burtu. Það var hann sem kom mér
af stað í bókhaldi sem leiddi mig svo
í nám í viðskiptafræði.
Þórarinn I. Ólafsson
✝ Þórarinn Ingi-bergur Ólafsson
fæddist í Grindavík
24. ágúst 1926. Hann
lést á dvalarheimilinu
Víðihlíð 4. ágúst sl. og
fór útför hans fram
frá Grindavík-
urkirkju 14. ágúst.
Afi fylgdist vel með
því sem gerðist til sjós
og lands. Daglega
hringdi hann í bátana
og fylgdist með hvern-
ig gengi og hafði á því
skoðanir hvar fiskur-
inn væri og væri alls
ekki, enda reynslu-
bolti og aflakóngur.
Afladagbækur afa
voru einstaklega vel
skrifaðar enda hafði
afi fallega og stíl-
hreina rithönd. Afi
skrifaði alla tíð sjóðs-
bók og þótt tæknin gerði þær óþarf-
ar þá hélt hann því áfram. Hann
hafði einstaklega gaman af að rifja
upp gamla tíma og var hrein unun
að hlusta á hann, slík var innlifunin
enda voru þessir tímar honum ljós-
lifandi síðustu árin. Ég sakna þess
að heyra ekki afa rifja upp gömlu
tímana, ég vildi að ég ætti þetta allt
upp tekið og gæti hlustað á það þeg-
ar ég vildi.
Ég sá afa síðast 1. ágúst sl. og gat
með engu móti haldið að þetta væri í
síðasta skipti sem ég sæi hann á lífi
en sú varð raunin. Jón minn á eftir
að sakna þess að koma ekki í Víði-
hlíð að leika með lestina og heim-
sækja afa, sem við munum öll sakna.
Í sumar þegar ég heimsótti afa sát-
um við hjá honum við systur ásamt
ömmu og upp úr þurru sagði hann
við mig „Hva færðu ekkert að
borða?“ í sínum skemmtilega tón og
það þótti mér fyndið. Þá sá hann að
ég hafði lést og orðaði það svona
skemmtilega við mig. Hann afi orð-
aði hlutina oft svo skemmtilega. Ég
mun varðveita minningu hans í
hjarta og huga mínum um ókomna
tíð.
Guð, gefðu mér æðruleysi
til að sætta mig við það
sem ég fæ ekki breytt,
kjark til að breyta því
sem ég get breytt
og vit til að greina þar á milli.
(Reinhold Niebuhr.)
Þórunn H.Ólafsdóttir og börn.
Elsku langafi.
Okkur systkinin langar að kveðja
þig með örfáum orðum. Þú varst
alltaf hlýr og barngóður og gerðir
ekki upp á milli, alltaf svo gott að
koma í heimsókn til ykkar ömmu og
ekki var nú leiðinlegt að hitta þig í
vinnunni, afi, og fá að príla upp á
stól á skrifstofunni þinni og kíkja úr
glugganum þínum niður í vinnslu-
salinn í Þrótti og skoða fiskana og
fólkið í vinnunni þinni, og ekki leidd-
ist þér að hafa okkur grislingana hjá
þér. Það er tómlegt að hafa þig ekki
lengur hjá okkur.
Við söknum þín, elsku langafi, en
núna vitum við að þú ert á góðum
stað og hvílir þig.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Helga Arnberg, Guðmundur
Fannar, Leonard Veigar.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is – smella á reitinn Senda efni
til Morgunblaðsins – þá birtist val-
kosturinn Minningargreinar ásamt
frekari upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minn-
ingargrein á útfarardegi verður hún
að berast fyrir hádegi tveimur virk-
um dögum fyrr (á föstudegi ef útför
er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur
út. Greinar, sem berast eftir að út-
för hefur farið fram, eftir tiltekinn
skilafrests eða ef útförin hefur ver-
ið gerð í kyrrþey, eru birtar á vefn-
um, www.mbl.is/minningar. Æviá-
grip með þeim greinum verður birt
í blaðinu og vísað í greinar á vefn-
um.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein. Engin lengd-
armörk eru á greinum sem birtast
á vefnum. Hægt er að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU,
5-15 línur. Ekki er unnt að tengja
viðhengi við síðuna.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu aðstand-
endur senda inn. Þar koma fram
upplýsingar um hvar og hvenær sá
sem fjallað er um fæddist, hvar og
hvenær hann lést og loks hvaðan og
klukkan hvað útförin fer fram. Þar
mega einnig koma fram upplýsing-
ar um foreldra, systkini, maka og
börn. Ætlast er til að þetta komi
aðeins fram í formálanum, sem er
feitletraður, en ekki í minningar-
greinunum.
Minningargreinar