Morgunblaðið - 23.08.2009, Qupperneq 46
46 Minningar
ALDARMINNING
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 2009
og í landi við sitt hvað
sem snerti sjómennsk-
una ákveður hann að
nú sé komið nóg og
segir skilið við þetta
starf, það mun hafa
verið árið 1955.
Þá tekur hann að sér
mötuneyti og eldar fyr-
ir þá sem að unnu að
byggingu Borgarspít-
alans í Reykjavík. Árið
1957 er hann svo ráð-
inn til starfa hjá Hrafn-
istuheimilinu í Reykja-
vík til að elda mat fyrir
aldraða sjómenn. Anna, kona hans
vann þar einnig, en hún mun hafa séð
um borðsalinn. En þau hjón gerðu
fleira fyrir heimilisfólkið á Hrafnistu.
Þau stóðu fyrir spilakvöldum (fé-
lagsvist) og ýmsu fleira vistfólki til
ánægju. Það gerðu þau einnig um
tíma á Hrafnistu í Hafnarfirði eftir að
þau fluttu á Boðahleinina.
Maggi frændi var komin yfir sjö-
tugt er hann hætti að elda fyrir aldr-
aðar sjóhetjur, en hætti hann að
vinna? Nei ekki aldeilis. Fisksali sem
séð hafði heimilinu fyrir soðningu
frétti af því að hann væri hættur í eld-
húsinu á Hrafnistu, hafði samband
við hann og sagði að sig vantaði mann
sem kynni að flaka, og Maggi frændi
skellti sér í það. Hann stoppaði ekki
lengi við það, en fór að vinna við að
úrbeina hjá hinum eina sanna
Tomma í Tommaborgurum. Um
kjötvinnsluna sá maður sem Jónas
hét og hafði unnið um tíma hjá
Magga frænda í eldhúsinu á Hrafn-
istu. Síðasta starfið sem Maggi
frændi tók að sér ásamt sinni ágætu
eiginkonu var að bera út Morgun-
blaðið. Þau hjón gerðu það af mikilli
samviskusemi sem kom m.a. fram í
því, að ef veður var slæmt t.d. mikil
rigning þá vöknuðu þau um miðja
nótt til að bjarga blaðapakkanum svo
blöðin skemmdust ekki.
Allar minningar mínar um Magga
frænda eru ljúfar og góðar. Í bernsku
minni var hann „stóri frændi“, sem
kom stundum á sumrin í heimsókn til
mömmu – og afa og ömmu, foreldra
sinna- með henni Önnu konunni sinni
og börnunum þeirra, Ragnari og
Svönu. Ella bættist svo síðar í hóp-
inn.
Ég minnist margra ánægjuríkra
atvika frá þessum árum. Sem tákn-
rænt dæmi vil ég nefna hér eitt atvik,
sem kemur í hug minn nú.
Ég var tíu til tólf ára. Anna og
Maggi frændi voru í heimsókn. Það
var „sprungið“ á hjólinu mínu.
Ég hafði víst þurft að „hjóla á
gjörðinni“. Slangan var ónýt og ekki
til peningar til að kaupa nýja. Ég fór
því að basla við að líma. En það gekk
ekki vel. Götin voru mörg og stór. Þá
fóru Anna og Maggi frændi út í búð
og keyptu nýja slöngu og gáfu mér.
Gleði mín var mikil. Ég man hana
vel enn, – eftir 70 ár.
Á þennan veg eru allar minningar
mínar um Magga frænda. Hann vildi
alltaf hjálpa og gleðja.
Við Sigrún sendum Önnu og fjöl-
skyldu hennar kærar kveðju og
þakkir fyrir samfylgdina í gegn um
tíðina.
Bjarni K. Skarphéðinsson.
Ég er einn af þeim
mörgu, sem skynja
hraða eða framvindu
tímans á breytilegan
máta, eftir aðstæðum
sínum á hverjum tíma.
Stundum finnst mér
tíminn standa í stað,
en í annan tíma fljúga
fram hjá mér á ör-
skotsstundu.
Og þannig finnst
mér að hann hafi gert
nú, þegar ég renni
huganum til baka og
minnist Magga
frænda, Magnúsar Guðmundssonar.
En í dag – 23. ágúst 2009, eru 100 ár
liðin frá fæðingardegi hans.
Þegar Maggi frændi var níu ára
gamall kynntist hann starfi sjó-
mannsins. Þá fékk hann að fara með
föður sínum og fleirum til veiða,
sennilega eitthvað út á Dýrafjörðinn
og er ekki ósennilegt að þessi upp-
lifun hafi orðið til þess, að ævistarf
hans tengdist sjónum bæði beint og
óbeint. Lengst af var hann matsveinn
og gat sér gott orð sem slíkur. Um fé-
lagsmál sinnar stéttar lét hann sig
miklu varða. Hann var einn af stofn-
endum félags matsveina á fiskiskip-
um, þar í stjórn og formaður um tíma
Eftir tæplega 30 ára starf til sjós
Magnús Guðmundsson
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
✝
Hjartans þakkir til allra er sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra eigin-
manns, föður og afa,
FRIÐRIKS PÉTURSSONAR
fyrrv. kennara,
Borgarholtsbraut 20,
Kópavogi.
Jóhanna Herdís Sveinbjörnsdóttir,
Ríkharður H. Friðriksson,
Jóhanna Vigdís Ríkharðsdóttir,
Kristín Helga Ríkharðsdóttir.
✝
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SIGURGEIR JÓNSSON
hagfræðingur,
Laufásvegi 47,
Reykjavík,
sem andaðist sunnudaginn 16. ágúst, verður
jarðsunginn frá Háteigskirkju þriðjudaginn
25. ágúst kl. 13.00.
Ingibjörg Júnía Gísladóttir,
Guðbjörg Sigurgeirsdóttir,
Jón Þorvarður Sigurgeirsson, Lin Wei,
Gísli Sigurgeirsson, Anna Guðjónsdóttir,
Ingibjörg Vala, Laufey og Júnía.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför minnar ástkæru eigin-
konu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUÐRÚNAR FINNBOGADÓTTUR,
Hrafnistu,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til allra á Hrafnistu fyrir góða
umönnun.
Guð blessi ykkur öll.
Helgi Elíasson,
Finnbogi Helgason, Elísabeth Snorradóttir,
Guðbjörg Helgadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝ Áróra Björns-dóttir Stephans
fæddist í Reykjavík
17. maí 1922 og ólst
þar upp. Hún lést á
heimili sínu í San
Diego 7. júlí sl. eftir
erfið veikindi. For-
eldrar hennar voru
Ágústa H. Hjartar
húsmóðir og Björn M.
Björnsson bókbindari,
þau eru bæði látin.
Áróra var elst í hópi
sjö systkina, hin eru
Ástráður, Jónína,
Birna Ágústa, Margrét (látin),
Oddný Þóra (látin) og Björn Helgi.
Áróra var þrígift og með fyrsta
manni sínum, Daniel
Champlain, eignaðist
hún tvö börn, Duane
Champlain, f. 1944, og
Deborah, f. 1949 (lát-
in).
20 ára að aldri flutti
Áróra til Bandaríkj-
anna og bjó þar æ síð-
an. Samband hennar
við móður sína meðan
hún var á lífi var mjög
gott og traust og
sama er að segja um
systkini hennar, tíðar
bréfaskriftir og heim-
sóknir á báða bóga treystu böndin.
Áróra var jarðsett Reykjavík og
fór athöfnin fram í kyrrþey.
Elskuleg systir mín Áróra
Björnsdóttir Stephans, sem búið
hefur í Bandaríkjunum í yfir 60 ár,
lést á heimili sínu í San Diego hinn
7. júlí sl. eftir erfið veikindi.
Róró, eins og hún var ávallt köll-
uð af vinum og vandamönnum,
fæddist í Reykjavík 17. maí 1922 og
ólst þar upp, elst af sjö systkina
hópi. Til Bandaríkjanna flutti hún
þegar hún var 20 ára gömul og bjó
þar æ síðan.
Mikilvægt í okkar sambandi voru
bréfaskriftir og heimsóknir á báða
bóga, enda var samband okkar
systra ávallt mikið og gott.
Að ósk hennar var hún jarðsett
hér í Reykjavik og fór útför hennar
fram í kyrrþey að viðstöddum syni
hennar, Duane Champlain, og öðr-
um nánum ættingjum.
Mig langar að kveðja Róró systur
mína með fallegu ljóði eftir Þórunni
Sigurðardóttur:
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
Guð blessi minningu þína.
Birna Á. Björnsdóttir.
Áróra Björnsdóttir
Stephans ✝ Erla Kr. Giss-urardóttir fædd-
ist í Reykjavík 7. maí
1927. Hún andaðist í
Danmörk 9. ágúst
2009. Foreldrar
hennar voru Gissur
Baldursson vélstjóri,
f. í Reykjavík 14.
maí 1901, d. 1. sept-
ember 1965 og Ísfold
Véfreyja Jóhann-
esdóttir, húsmóðir, f.
í Vík í Staðarhr. í
Skagafirði 18. febr-
úar 1900, d. 9. ágúst
1962. Systkini Erlu voru Baldur,
f. 3. desember 1925, d. 2. maí
2003, Gissur Jóel, f. 7. júní 1931,
María Björk, f. 11. nóvember
1971, Kristrún Auður, f. 18. sept-
ember 1974, Erla Huld, f. 11.
mars 1978, Jóhann Marel, f. 7.
október 1979, og uppeldisdóttir
Ágústa Hugrún, f. 18. júní 1967.
3) Birgir Marel, f. 20. júlí 1953.
Börn hans eru Jónas Þór, f. 24.
mars 1972, Pálmi Marel, f. 25.
mars 1974, Nanna Elísabet, f. 17.
mars 1976, og Jarþrúður, f. 4.
júní 1986. 4) Björk Jóhannsdóttir,
f. 7. janúar 1958. Börn hennar eru
Bára, f. 1. mars 1980, Halldór, f.
15. febrúar 1982, og Jóhann, f. 4.
desember 1991. 5) Manuel Gissur
Carrico, f. 17. júní 1966, maki J.
Hafdís Guðmundsdóttir, f. 14.
september 1967. Börn þeirra eru
Guðni Fannar, f. 23. febrúar 1993,
og Rakel Sara, f. 6. mars 1996.
Útför Erlu fór fram frá Bú-
staðakirkju 21. ágúst, í kyrrþey.
d. 23. apríl 2008, og
uppeldissystir Svan-
laug Þórsteinsdóttir,
f. 17. janúar 1919, d.
29. júní 2007.
Börn Erlu eru 1)
Þór Karlsson Wilcox,
f. 10. maí 1947. Börn
hans eru Elísabet
Erla, f. 4. ágúst
1964, b) Svanur, f.
12. nóvember 1969,
Andres Þór, f. 18.
apríl 1969, Íris
Petra, f. 18. apríl
1970, Unnur Ruth, f.
20. mars 1973, og Valur, f. 3. júlí
1981. 2) Viðar Marel Jóhannsson,
f. 7. júlí 1951. Börn hans eru
Erla amma mín féll frá þann 9.
ágúst síðastliðinn. Minningar og
söknuður hlaðast upp ásamt
ákveðnum létti því hún var orðin
ansi veik undir það síðasta, svo að
hún varð hvíldinni fegin.
Amma var búinn að koma 5
glæsilegum börnum á legg og svo
heilum her af barnabörnum og
barnabarnabörnum. Amma trúði
mér eitt sinn fyrir því að hún ótt-
aðist afskaplega fátt og allra síst
dauðann en það væri það eina sem
væri öruggt væri í lífinu, sagði
hún. En það er bara eitt, sagði
hún, sem ég óska mér stundum og
það er að ég vil alls ekki lifa börn-
in mín og henni varð svo sann-
arlega að ósk sinni.
Amma var með alveg ákaflega
stórt hjarta og var mikill sátta-
semjari í eðli sínu og enginn fór
ósáttur frá henni að mér vitandi
og ávallt minnti amma okkur á að
kurteisi kostar ekkert og þakklæti
væri vanmetið.
Amma var ákaflega sátt með líf-
ið, hún átti nóg fyrir sig og sína og
var alltaf boðin og búin að hjálpa
til eða að ráðleggja ef maður
þurfti á að halda. Einu sinni datt
ég illa fyrir utan hjá henni á
Hjallabrautinni og kom inn hálf-
snöktandi og amma tók mig í fang-
ið, þerraði tárin, kyssti á bágtið,
gaf mér bingókúlu og sagði að það
læknaði öll mein, sem var alveg
rétt.
Elsku amma, ég kveð þig hér í
dag með söknuð í hjarta og tár í
augum og takk fyrir að vera alltaf
til staðar þegar ég þurfti. Elsku
amma mín, takk fyrir allt og allt.
Þinn
Jóhann Marel.
Erla Kr. Gissurardóttir
Alda
Þórðardóttir
✝ Alda Þórðardóttirfæddist í Hlíð-
artúni í Miðdölum 18.
september 1932 en
ólst upp í Keflavík.
Hún andaðist á líkn-
ardeild Landspítalans
í Kópavogi 26. júlí sl.
og fór útför hennar fram frá Vídal-
ínskirkju í Garðabæ 5. ágúst.
Meira: mbl.is/minningar