Morgunblaðið - 23.08.2009, Blaðsíða 48
48 Auðlesið efni
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 2009
Úrslita-keppni EM í
kvenna-knatt-spyrnu hefst í
Finnlandi í dag, sunnudag.
Íslenska liðið leikur sinn
fyrsta leik á morgun,
mánudag, gegn Frökkum.
Geir Þorsteinsson, formaður
KSÍ, segir að íslenska liðið sé
eins vel búið undir keppnina
og kostur er. „Íslenska
kvenna-lands-liðið er stolt
okkar og hin já-kvæða ímynd
knatt-spyrnunnar hér á landi
byggist að miklu leyti á
kvenna-lands-liðinu í dag,“
sagði Geir.
Síðasta æfing liðsins var á
fimmtudag og hélt liðið til
Finnlands á föstudag.
Íslenska liðið leikur gegn
Noregi fimmtudaginn 27.
ágúst og sunnudaginn 30.
ágúst gegn
Evrópu-meisturum Þjóðverja.
Stelpurnar okkar til Finnlands
Þorkell Skúli Þorsteinsson, ein-hverfi
drengurinn sem fjallað er um í
heimildar-myndinni Sólskins-drengur,
er nú fluttur til Texas ásamt fjölskyldu
sinni. Þar sækir hann með-ferð sem
gerir honum kleift að eiga sam-skipti
við fjölskyldu sína. Hefur með-ferðin
gefist vel og segir Margrét Dagmar
Eiríksdóttir, móðir hans að
fjölskyldan fái nú fyrst að kynnast
Þorkeli. Þó ekki sé um að ræða neina
töfra-lausn eða skjótar fram-farir
segir móðir Þorkels son sinn hafa
breyst nokkuð nú þegar til hins betra.
Með-ferðin byggist meðal annars á
því að ein-hverfum er kennt að tjá sig
með því að stafa og gerir ráð fyrir að
þeir hafi eðlilega greind þó hegðun og
annað bendi til að svo sé ekki.
Farinn að
geta tjáð sig
„Það er upp-lifun bóka-út-gefenda að
sala á bókum hafi gengið mjög vel í
sumar,“ segir Kristján B. Jónasson,
formaður félags bóka-útgefenda.
Hann segir flesta sam-mála um að
sala á kiljum hafi gengið sér-staklega
vel og einnig sala á inn-lendum
ferða-bókum. Hag-stæðir samningar
um prentun erlendis hafi ráðið mestu
um lækkað verð. Nú þegar allar
bækur eru prentaðar hér heima þá sé
óhjá-kvæmilegt að bóka-verð hækki
eitthvað á næstunni. Pappír og
prentun hefur hækkað mikið og því
ljóst að um einhverjar en þó hóf-legar
hækkanir verður að ræða.“
Bók-sala eykst
í kreppunni
Á síðustu árum hefur svo-kölluðum
skúffu-fyrirtækjum fjölgað gríðarlega,
en það eru fyrir-tæki án eigin-legrar
starf-semi. Fjöldi óvirkra fyrir-tækja á
Íslandi í dag er 14.912 talsins, sem
þýðir að 47 prósent skráðra
fyrir-tækja í Hluta-félaga-skrá eru í
raun skúffu-fyrirtæki. Þetta kemur
fram í út-tekt Creditinfo á Íslandi sem
unnin var fyrir Morgun-blaðið.
Tveir þriðju þessara fyrir-tækja eru
skúffu-fyrirtæki í orðsins fyllstu
merkingu, þar er um að ræða
kenni-tölur fyrir-tækja í engri
starf-semi sem hvíla í skúffum
eigenda sinna óháð upphaf-legum
til-gangi þeirra. Þriðjungur
fyrir-tækjanna virðist hafa þann eina
tilgang að vera einhvers konar
fjár-mögnunar-fyrirtæki eigenda sinna
þar sem skuld-setningar eru háar en
rekstrar-starfsemi hefur aldrei verið
til staðar. Í flestum til-vikum þýðir
þetta að hluta-félagið er í ábyrgð
vegna skulda fyrir-tækisins en ekki
einstak-lingur.
Fjölgun
skúffu-
fyrirtækja
Sequences er íslensk
gjörninga-hátíð sem verður haldin í
Reykjavík í fjórða sinn nú í haust og
að þessu sinni verður hún með
sérstökum áherslum á hinn lifandi
við-burð og sviðs-listir.
Hátíðin var áður í nánum
tengslum við Airwaves--
tónlistar-hátíðina en í ár hefur hún
verið færð til og verður haldin fyrstu
vikuna í nóvember.
Heiðurs-lista-maður á hátíðinni í ár
verður Magnús Pálsson sem verður
80 ára á árinu. Gjörningur eða
radd-skúlptúr Magnúsar verður
fluttur í fjöl-nota-sal Listasafns
Reykjavíkur með að-stoð
Nýló-kórsins og nemenda
leik-listar-deildar Listaháskóla
Íslands.
Meðal annarra sem halda
sýningar á hátíðinni eru Egill
Sæbjörnsson og Gjörninga--
klúbburinn. Einnig taka ýmsir
erlendir lista-menn þátt í hátíðinni.
Í ár verður í fyrsta sinn boðið upp
á fyrir-lestra í tengslum við hátíðina.
Þeir verða í sam-starfi við
Listaháskóla Íslands og Norræna
húsið.
Morgunblaðið/Frikki
Gjörninga-hátíðin Sequences í haust
Magnús Pálsson
Flutninga-skipið Arctic Sea sem hvarf
hinn 28. júlí síðast-liðinn er komið í
„leitirnar“. Anatolí Serdjúkov,
varnar-mála-ráð-herra Rússlands,
sagði að átta menn hefðu verið
hand-teknir sakaðir um að hafa rænt
skipinu í Eystra-salti. Því fer hins
vegar fjarri, að málið hafi verið
upp-lýst, og margir sér-fræðingar
telja, að það verði dular-fyllra með
degi hverjum. . Arctic Sea lagði úr
höfn í Finnlandi 21. júlí með
timbur-farm og var ferðinni heitið til
Alsírs. Hvarf skipsins þykir mjög
dular-fullt en það hvarf úr rat-sjá er
það sigldi um Ermar-sundið hinn 28.
júlí og deildu sér-fræðingar um hvort
sjó-ræningjar, mafía eða
viðskipta-ágreiningur væri ástæða
hvarfsins.
Dular-fullt skips-hvarf
Reuters
Að minnsta kosti 95 manns týndu
lífi í tveimur miklum
bíl-sprengingum í Bagdad í Írak
síðast-liðinn miðvikudag. Um 560
særðust og margir alvarlega.
Sprakk önnur sprengjan við
utan-ríkis-ráðuneytið og olli þar
gífurlegri eyðileggingu, hin við
fjármála-ráðuneytið. Er dagurinn sá
blóðugasti eftir að bandarískir
her-menn drógu sig út úr borgum
landsins í lok júní. Talið er að
sprengjunum hafi verið komið fyrir
á vöru-bílum.
Frá því Írakar tóku yfir stjórn
öryggis-mála í Bagdad í júní-lok
hafa flestar árásir verið gerðar á
fátækra-hverfi sjía-múslima í
út-hverfum borgarinnar.
Blóð-bað í Írak