Morgunblaðið - 23.08.2009, Page 49
Dagbók 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 2009
Sudoku
Frumstig
6
2 3 8
5 8 6 7
1 6 4 3 5
5 1 2
4 9 6
8
8 3 7 9
4 2
5 6
9 7 1
8 5
6 2 1 8 4
5 1
4 2
1
8 6 9 3
1
8 9 5
9 8 4 2
7 3
9
2 4 6 8
1 3
4 2 5 7
1 7 5
1 4 7 9 6 5 2 3 8
3 5 8 1 2 4 6 9 7
9 6 2 7 8 3 1 5 4
4 9 5 6 3 8 7 2 1
2 7 6 4 1 9 5 8 3
8 3 1 2 5 7 4 6 9
5 1 9 3 7 6 8 4 2
7 8 3 5 4 2 9 1 6
6 2 4 8 9 1 3 7 5
2 8 5 7 1 3 9 4 6
9 6 7 5 2 4 8 3 1
3 4 1 9 8 6 7 2 5
6 3 9 8 4 7 5 1 2
8 5 4 2 9 1 3 6 7
7 1 2 3 6 5 4 8 9
4 9 8 6 5 2 1 7 3
1 2 3 4 7 9 6 5 8
5 7 6 1 3 8 2 9 4
7 2 5 6 1 4 3 8 9
8 4 6 5 9 3 1 2 7
3 1 9 2 8 7 4 5 6
1 5 2 9 7 6 8 4 3
4 3 7 1 5 8 9 6 2
6 9 8 3 4 2 7 1 5
9 7 4 8 2 5 6 3 1
2 8 3 7 6 1 5 9 4
5 6 1 4 3 9 2 7 8
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er sunnudagur 23. ágúst,
235. dagur ársins 2009
Orð dagsins: En nú varir trú, von og
kærleikur, þetta þrennt, en þeirra er
kærleikurinn mestur. (I.Kor. 13, 13.)
Það kom Víkverja engan veginn áóvart þegar fréttist að banda-
rískir vísindamenn hefðu komist að
því að eldra fólk væri almennt ham-
ingjusamara en þeir sem yngri eru.
Þetta hefur Víkverji vitað árum sam-
an. Sjálfur er hann vitrari í dag en
hann var í gær og býst við að viska
hans aukist enn með morgundeg-
inum. Samt gerir Víkverji ekki ráð
fyrir að ná fullkomnun áður en hann
deyr. En vonast samt til að fá að
halda áfram að þroskast og vitkast á
himnum þegar þar að kemur, og er
reyndar sannfærður um að svo verði.
x x x
Víkverji furðar sig oft á því hvaðfólk er nöldurgjarnt og lætur
alls konar óþarfa koma sér úr jafn-
vægi. Víkverji þekkir jafnvel fólk
sem gengur um með fýlusvip mest
allan daginn. Víkverji botnar ekkert í
svoleiðis úthaldi. Stundum fer Vík-
verji í fýlu og það er yfirleitt verulegt
átak fyrir hann að halda fýlunni við í
einhverjar klukkustundir. Venjulega
gefst hann upp og leyfir sér að kom-
ast í betra skap löngu áður en dagur
er liðinn.
x x x
Víkverji getur endalaust skrifaðum mat. Honum finnst einfald-
lega svo óskaplega gaman að borða.
Um daginn fór Víkverji með vinum
sínum á Tapasbarinn. Þar er gott að
borða. Alls kyns smáréttir fylltu
borðið og Víkverji réð sér vart fyrir
kæti yfir öllu gúmmulaðinu. Það er
viss sælukennd sem fylgir því að
smakka góðan mat og maturinn á ís-
lenskum veitingastöðum er yfirleitt
góður. Þjónustan mætti hins vegar
stundum vera betri. Á tímum eins og
þessum, þegar allir reyna að bjarga
sér, hlýtur að vera mikilvægt að fyr-
irtæki veiti góða þjónustu. Ánægður
viðskiptavinur kemur aftur á staðinn
þar sem vel var tekið á móti honum.
x x x
Víkverji hrökk við þegar hannheyrði auglýsingu frá Hús-
gagnahöllinni þar sem talað var um
„outlet“ sölu. Íslenskar verslanir
hljóta að geta notað íslensk orð.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 11 rugludallar,
8 býr til, 9 hnugginn, 10
flani, 11 magran, 13 ná-
lægur, 15 nötraði, 18
reyksúlu, 21 fugl, 22
dána, 23 óskar, 24
barninu.
Lóðrétt | 2 snákur, 3
kaupið, 4 snúin, 5 tré, 6
guðir, 7 umkringi, 12
máttur, 14 kyn, 15
kryddvara, 16 end-
urtekið, 17 ferðalag án
markmiðs, 18 lítillægja,
19 hlupu, 20 hreyfing-
arlaus.
Lausn síðustu krossgátu
Larétt: 1 mjöls, 4 þolir, 7 lemur, 8 ólyst, 9 ger, 11 rúmt,
13 fita, 14 óraga, 15 fimm, 17 tagl, 20 stó, 22 geipa, 23
talar, 24 nóana, 25 aurar.
Lóðrétt: 1 mýlir, 2 örmum, 3 sorg, 4 þjór, 5 leyni, 6
rotna, 10 efast, 12 tóm, 13 fat, 15 fegin, 16 meina, 18
aflar, 19 lærir, 20 saka, 21 ótta.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. Rc3 a6 5.
c5 Rbd7 6. Bf4 Rh5 7. e3 Rxf4 8. exf4
b6 9. b4 Dc7 10. Dd2 g6 11. Hc1 Bh6 12.
g3 bxc5 13. bxc5 O-O 14. h4 e5 15. dxe5
Rxe5 16. Rxe5 He8 17. Be2 Hxe5 18. h5
gxh5 19. Kf1 He8 20. Hxh5 Bg7 21.
Kg2 De7 22. Bd3 h6 23. f5 Df6 24. Rd1
d4 25. Rb2 De5 26. Rc4 Dxc5 27. Hch1
f6 28. Hxh6 Ha7 29. H6h5 Hae7
Staðan kom upp á alþjóðlegri
skákhátíð sem lauk fyrir skömmu í
Kaupmannahöfn í Danmörku. Ísra-
elski stórmeistarinn Boris Avrukh
(2.641) hafði hvítt gegn rússneska koll-
ega sínum Vladimir Malakhov (2.707).
30. Rb6! Bxf5 svartur hefði einnig tap-
að eftir 30. …Dxb6 31. Bc4+ Hf7 32.
Hh7! 31. Hxf5 Dxb6 32. Bc4+ Hf7 33.
Dc2 Db7 34. Hfh5 He5 35. Hxe5 fxe5
36. Hb1 og svartur gafst upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Á fíflabeit.
Norður
♠K52
♥D105
♦K942
♣KD9
Vestur Austur
♠G10863 ♠ÁD7
♥82 ♥73
♦D1085 ♦G6
♣72 ♣ÁG10864
Suður
♠94
♥ÁKG964
♦Á73
♣53
Suður spilar 4♥.
Skoski höfundurinn Hugh Kelsey
kallaði þá áráttu sumra spilara að
melda í tíma og ótíma „daisy picking“.
Menn vafra um sagnengin og slíta upp
þau blóm sem þar spretta, bara af því
þau eru þarna. Svona svipað og þegar
Þorgeir Hávarsson hjó höfuðið af smal-
anum af því hann lá svo vel við höggi.
En sagnir eiga að hafa tilgang.
Suður vakti á 1♥ og norður krafði í
geim með 2♦. Og austur? Hann var á
fíflabeit og sagði 3♣. Skömmu síðar
enduðu sagnir í 4♥ og vestur kom auð-
vitað út með lauf. Austur drap kóng
blinds og spilaði ♣G til baka. Sagnhafi
tók tvisvar tromp, tvo efstu í tígli, spil-
aði ♣9 og henti tígli heima. Lagði svo
upp.
Þriggja laufa sögnin var vita til-
gangslaus. Styrkurinn er augljóslega í
NS og varla vill austur fá út lauf frekar
en spaða.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Suma daga er nauðsynlegt að
muna að vinnan snýst ekki um peninga
eða viðurkenningu heldur það góða sem
má gera öðrum.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú þarft að leita þér aðstoðar ef þú
ætlar ekki að drukkna í vinnu. Ef þú
vinnur í þínum efasemdum munu þær að
lokum hverfa.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú byrjaðir á því að skilgreina
þig gagnvart umheiminum. Þú skalt ekki
hræðast það að þú vitir ekki hvað skuli
gera næst.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Það þarf ekki meira en eina ást-
úðlega hugsun til þess að miðla orku
ástarinnar í þínum heimi á ný. Leyfðu
því öðrum að njóta sín og sinnt þú þínu.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Ástvinur er sjálfselskur þessa dag-
ana. En þú getur líka valið að líta á
hana sem innblástur í stað þess að pir-
rast.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Hláturinn lengir lífið, á því leikur
enginn vafi. Hvað þú átt að gera í því er
svo önnur saga. Notaðu kvöldið fyrir
sjálfan þig.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Ágreiningur er partur af lífinu, lag-
aðu þig að aðstæðum og eitthvað meiri-
háttar gæti gerst ef þú tekur þetta al-
varlega.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Dagskrá þín krefst þess að
þú gerir margt í einu, en samt ekki allt-
af. Mundu að hálfnað er verk þá hafið
er. Láttu það eftir þér að njóta dagsins
með vinum þínum.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það eru margar hliðar á
sömu málum og þú kemst ekki hjá því
að kynna þér þær ef þú vilt komast að
réttlátri niðurstöðu.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Það er einhver losarabragur á
þér og þú gætir þess ekki nógu vel að
hafa hlutina á hreinu svo ekki komi til
vandræða þín vegna.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þér finnst mikið hvíla á þér og
þú hefur áhyggjur af fjárhagnum og af-
komu heimilisins. Láttu þig dreyma
stóra drauma og gerðu ráð fyrir því
besta.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Kláraðu það sem þú hefur frest-
að, þannig færð þú gott svigrúm til þess
að hleypa meiri spennu í líf þitt og jafn-
vel ástríðu.
Stjörnuspá
23. ágúst 1946
Gunnar Huseby „vann það ein-
stæða afrek að verða Evrópu-
meistari í kúluvarpi með all-
miklum yfirburðum,“ eins og
Morgunblaðið orðaði það.
Keppt var í Osló og Gunnar
kastaði 15,56 metra. Hann var
fyrsti Evrópumeistari Íslend-
inga.
23. ágúst 1967
Íslendingar töpuðu fyrir Dön-
um í landsleik í knattspyrnu í
Kaupmannahöfn með fjórtán
mörkum gegn tveimur. Mörk
Íslendinga gerðu Helgi Núma-
son og Hermann Gunnarsson.
„Ég gerði það sem ég gat, en
skot Dananna voru frábær,“
sagði markvörðurinn í samtali
við Morgunblaðið.
23. ágúst 1995
Vatnslistaverkið Fyssa í
Grasagarðinum í Laugardal
var afhent, en það var gjöf frá
Vatnsveitu Reykjavíkur í til-
efni hálfrar aldar afmælis lýð-
veldisins. Verkið er eftir lista-
konuna Rúrí, Þuríði
Árnadóttur Fannberg.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Berglind Þorsteinsdóttir og Elva
Arinbjarnar héldu tombólu fyrir ut-
an Bónus við Ögurhvarf og Smára-
torg. Þær söfnuðu 8.356 kr. sem
þær afhentu í sjálfboðamiðstöð
Rauða krossdeildarinnar í Kópa-
vogi.
Hlutavelta
LINDA Laufey Bragadóttir innanhússarkitekt fór
út að borða á Lækjarbrekku gær, laugardag,
ásamt eiginmanninum, Gunnari Gunnarssyni, í til-
efni 55 ára afmælisins sem er í dag, sunnudag.
Hún segir Lækjarbrekku í miklu uppáhaldi, þar sé
notalegt að sitja og virða fyrir sér miðborgarlífið
yfir ljúffengum mat. Ekki hafi komið að sök að
menningarnótt var fyrir utan gluggann í gær þeg-
ar hún og eiginmaðurinn héldu þar upp á afmælið.
Á sjálfan afmælisdaginn ætlar hún að taka því
rólega en þó bjóða vinum og fjölskyldu í kaffi sam-
kvæmt hefð.
Linda menntaði sig í innanhússarkitektúr í Danmörku á sínum
tíma. Hún segir augljóst að viðhorf fólks til hönnunar og síns nánasta
umhverfis sveiflist í takt við tíðarandann hverju sinni. „Núna vill fólk
hafa heimili sín meira persónuleg. Flestir eru komnir með leið á því
að hafa eins og húsgagnaverslun í kringum sig. Fólk er tvímælalaust
farið að horfa meira inn á við og vill hafa sitt nánasta umhverfi í þeim
anda. Það leggur til dæmis meiri rækt en áður við erfðagóss og annað
slíkt sem það dregur nú fram í kreppunni. Fólk vill almennt hafa um-
hverfi sitt hlýlegra.“ sunna@mbl.is
Linda Laufey Bragadóttir er 55 ára í dag
Mannlíf og ljúffengur matur
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is