Morgunblaðið - 23.08.2009, Blaðsíða 52
52 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 2009
Nethyl 1 - Sími: 565-2500
Komdu við og skráðu bílinn
og fáðu miða á The Goods
Mikil sala
BÍLASALAN.IS og DIESEL.IS bjóða þér í bíó
JEREMY PIVEN AND WILL FARREL
Gildir í þeim kvikmyndahúsum þar sem myndin
er sýnd. Gildir meðan myndin er í sýningu
GILDIR FYRIR EINN
BOÐSMIÐI
JEREMY PIVEN AND WILL FARREL
Gildir í þeim kvikmyndahúsum þar e myndin
er sýnd. Gildir meðan myndin er í sýningu
GILDIR FYRIR EINN
BOÐSMIÐ
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU ÞÉR
KEMUR BRÁÐSKEMMTILEG GAMANMYND
OG
KOMIN
Í BÍÓ
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
ÞAÐ bera margir þann draum í
maganum að kaupa sér jarðskika
úti í sveit og búa þar í friði og ró
með nokkrar skepnur og garðrækt.
Fyrir þá sem eiga þennan draum
en vita lítið um sveitalífið er tilvalið
að kíkja inn á vefsíðuna
www.kountrylife.com.
Vefsíðunni er haldið úti af bænd-
um í Bandaríkjunum sem eru með
blandaðan búskap. Síðuna segja
þau skapaða út frá ást á sveitalífinu
og þörf til að deila ánægjunni og
þekkingunni af störfum sínum með
öðrum. Þau höfðu haldið úti annarri
heimasíðu í mörg ár áður en þau
stofnuðu þessa. Hin síðan er með
slóðina www.yesterdaystract-
ors.com og þar fjalla þau um aðal-
áhugamál sitt, gamlar dráttarvélar.
Vigta svín án vigtar
Kountrylife.com hefur þann
stóra galla að vera frekar ljót mið-
að við hvað umfjöllunarefnið býður
upp á fallega uppsetningu. Margt
áhugavert er þó þar að finna, til
dæmis allskonar upplýsingar um
búskaparhætti. Þarna eru t.d.
áhugaverðar upplýsingar um
hvernig hægt er að vigta svín án
vigtar, hvernig á að handmjólka
kýr, ala upp lamadýr og geitur og
hvernig á að byggja gildru til að
lokka villta kalkúna í skotlínuna.
Síðan eru upplýsingar um hvernig
á að meðhöndla hráefnið sem dýrin
og móðir jörð gefa af sér, eins og að
skilja rjómann frá mjólkinni og
þurrka grænmeti og ávexti. Góð
ráð fylgja líka og er t.d. löng grein
um hvað þarf að hafa í huga þegar
gamlar dráttarvélar eru keyptar og
hvernig á að brýna exi. Sveita-
brandarar, hljóðdæmi úr sveitinni
og ljósmyndir fylgja líka með á síð-
unni sem von er.
Þá er bara að kynna sér málin á
Kountrylife.com og skella sér svo í
bankann með von um að fá lán fyrir
jarðskikanum.
VEFSÍÐA VIKUNNAR: WWW.KOUNTRYLIFE.COM»
Hvernig á að
höndla sveitalífið
Reuters
Mjaltir Það
þarf ekki að
handmjólka
þessa
frönsku kýr,
enda mjalta-
tæki á búinu.
FYRIRSÆTAN Heidi Klum segir
að nú sé nóg komið í barneignum
en hún á von á fjórða barninu með
eiginmanninum Seal. Segir hún að
það sé eiginlega nóg að hugsa um
fjögur ung börn.
Það sé í ýmsu að snúast með þrjú
börn og ekki minnki það með fjórða
barninu og að þau hjónin séu sam-
mála um að þau séu hætt barn-
eignum en nú sé höfuðverkurinn að
finna fullkomið nafn fyrir barnið
ófædda.
„Þar sem við vitum að þetta verð-
ur okkar síðasta barn þá er þetta
erfiðara. Þetta er nafnið og það er
bara þannig. Við ætlum að bíða
með ákvörðun þar til við sjáum
barnið og vonandi kviknar á per-
unni þá.“
Hún viðurkennir að glæsilífið
hafi vikið til hliðar fyrir heimilis-
störfunum eftir að börnin fæddust
enda hafi börnin þrjú, Leni, 5 ára,
Henry, 3 ára, og Johan, 2 ára, tekið
yfir á heimilinu.
AP
Barnalán Klum og Seal dæla út
börnunum.
Heidi Klum:
fjögur
er nóg
Fréttir
í tölvupósti