Morgunblaðið - 23.08.2009, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 2009
Fyrir tveimur árum pakkaðihinn sænski Kristian Matt-son öllu niður í ferða-tösku, hætti í hljómsveit-
inni Montezumas og yfirgaf
Stokkhólm til þess að búa um hríð í
sveitakofa til þess að vinna að sinni
fyrstu þröngskífu. Þar hljóðritaði
hann samnefnda þröngskífu sem
kom út árið 2007 og svo síðar breið-
skífuna Shallow Grave. Kristian
valdi sér listamannsnafnið The Tall-
est Man on Earth þar sem hann vildi
vekja forvitni fólks áður en það
heyrði í honum. Ef nafngiftin væri
stórfengleg myndi það setja pressu á
hann sem listamann til þess að verða
stórkostlegur. Ef hann stæðist ekki
væntingar myndi nafnið eitt og sér
virka fáránlegt.
Shallow Grave kom fyrst út í
heimalandinu í fyrra en náði ekki
teljandi vinsældum. Það var ekki
fyrr en vefsíðan Pitchfork.com gaf
diskinum afbragðs dóma sem hann
fór að hljóta athygli annars staðar
en í heimalandinu. Hlutirnir gerðust
hratt og á mettíma var Kristian far-
inn að ferðast um heiminn sem upp-
hitunaratriði fyrir Bon Iver.
Tónlist Kristians hefur djúpar
rætur í amerískri sveitatónlist og
sjálfur segist hann hafa komist á
bragðið eftir að hann uppgötvaði
Bob Dylan, en hljómsveitin Montez-
umas lék hefðbundið rokk og ról
undir áhrifum frá Dylan, Roy Orbin-
son og Link Wray. Á þeim tíma seg-
ist Kristian hafa sökkt sér djúpt í
sögu bandarískrar sveitatónlistar og
uppgötvað gamla blúshunda á borð
við Skip James, Son House og Book-
er White. Sandpappírsrödd Kristians
fór víst svo í taugarnar á umboðs-
manni sveitarinnar að hann sagði
honum að ef hann breytti ekki stíl
sínum myndi hann aldrei ná neinum
vinsældum. Skilaboð sem Kristian
hunsaði algjörlega og hann ýkti
röddina ef eitthvað var þegar kom
að því að hljóðrita lög sín sjálfur.
Kristian segist ekki hafa rekist á
eigin hljóm fyrr en eftir ótal margar
mislukkaðar tilraunir til þess að
spila jafn vel á gítarinn og þær blús-
hetjur sem hann vildi í fyrstu stæla.
Eitt kvöldið hafi hann þá fundið gátt
innra með sér þar sem hann gat
stuðst við þá orku er fyllti tónlistina
er hann heillaðist af í stað þess að
reyna að apa eftir flóknu gít-
arspilinu. Það kvöldið hafi hann
samið sitt fyrsta lag og hefur flóð-
gáttin verið opin æ síðan.
Í greinum er fjölluðu um tónleika-
ferð Bon Iver var oft skrifað um það
að The Tallest man on Earth hafi
stolið senunni. Að það sé hreint út
sagt ótrúlegt að sænskur, 27 ára
gamall patti sé jafn beintengdur í
sálu bandarískrar blús og sveita-
tónlistar. Hann þykir líka kröftugur
skemmtikraftur og hikar ekki við að
beita öllum tilteknum brögðum til
þess að þagga niður í áhorfendum
fái hann ekki nægilega þögn til þess
að leika lög sín. Á meðan á tónleika-
ferðinni stóð nýtti Kristian frítíma
sinn til þess að semja ný lög sem
hann svo prófaði strax á áheyr-
endum. Þannig þróaði hann næstu
plötu sína nánast alla fyrir framan
hóp áheyrenda sem gefur von um að
þar sé jafnvel kröftugra efni á ferð.
Kristian hljóðritar lög sín ávallt einn
og velur sér herbergi í húsi sínu eftir
því hvernig hljóm hann leitar eftir í
hverju lagi.
Það er ekkert nýtt né framúr-
stefnulegt við tónlist The Tallest
man on Earth. Hins vegar býr flutn-
ingur og hljóðheimur yfir öllum
sjarma blúsara á borð við Robert
Johnson og rödd hans og túlkun
skerst djúpt í minni og heillar flesta
sem leggja við hlustir.
Þriðja plata The Tallest Man on
Earth er væntanleg í lok árs.
biggi@mbl.is
Risi með blúsrætur
AF LISTUM
Birgir Örn Steinarsson
The Tallest Man on
Earth Kristian
Mattson er ekki hár
í loftinu en stór-
fenglegt nafnið
passar við hæfileika
drengsins.
Helstu áhrifa-
valdar Kristians
eru Delta-
blúsgítarleik-
ararnir Skip
James, Son
House, Robert
Johnson og Boo-
ker White.
Deltablúsinn
er sagður vera
elsta fyrirbrigði blúsrokksins en
hann á rætur að rekja til blökku-
manna Deltahéraðs Mississippi-
ríkis.
Deltablúsinn var fyrst hljóðrit-
aður á seinni hluta þriðja áratugar
síðustu aldar en fyrstu blúsararnir
fengu útgáfu
hjá Race Re-
cords.
Talið er að
Tommy John-
son og Ishman
Bracey hafi ver-
ið fyrstu delta-
blúsararnir sem
voru hljóðrit-
aðir.
Menn deila um hvort Deltablús-
inn sé frábrugðinn öðrum teg-
undum blússins er spratt upp á
öðrum stöðum. Helstu einkenni
Deltablússins eru hljóðfæraskipan
og áhersla á hrynjandi og notkun
flöskuhálsrennslis.
Deltablús
Skip JamesRobert Johnson
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Söngvaseiður (Stóra sviðið)
Harry og Heimir (Litla sviðið)
Leikferð um landið 13. - 22. september
Fim 10/9 kl. 20:00 Fors U
Fös 11/9 kl. 20:00 Fors U
Lau 12/9 kl. 20:00 Frums U
Sun 13/9 kl. 20:00 U
Fim 17/9 kl. 20:00 U
Fös 18/9 kl. 19:00 U
Lau 19/9 kl. 19:00 U
Sun 20/9 kl. 20:00 U
Fim 17/9 kl. 20:00 Ö
Fös 18/9 kl. 19:00 Ö
Lau 19/9 kl. 19:00 Ö
Sun 20/9 kl. 20:00
Fös 4/9 kl. 19:00 U
Lau 5/9 kl. 19:00 Ö
Sun 6/9 kl. 19:00 Ö
Mið 9/9 kl. 20:00 U
Fim 10/9 kl. 19:00 Ö
Fös 11/9 kl. 19:00 Ö
Fös 18/9 kl. 19:00 Ö
Lau 19/9 kl. 19:00 U
Sun 20/9 kl. 14:00 U
Lau 26/9 kl. 14:00 U
Djúpið (Litla sviðið)
Mið 23/9 kl. 20:00 Ö
Sun 27/9 kl. 16:00 Ö
Mið 30/9 kl. 20:00
Sun 4/10 kl. 16:00
Allt að seljast upp - tryggðu þér miða
Opið hús
laugardaginn 29. ágúst kl. 13-16
Líf og fjör um allt hús - allir velkomnir
Áskriftarkort á 8.900 kr – sama verð og í fyrra
KARDEMOMMUBÆRINN (Stóra sviðið)
FRIDA... viva la vida (Stóra sviðið)
UTAN GÁTTA (Kassinn)
Leitin að Oliver!
Við leitum að 8–13 ára strákum til að fara með hlutverk í söngleiknum
OLIVER! Skráning í áheyrnaprufur fer fram á Opna húsinu.
Opið hús í Þjóðleikhúsinu 29. ágúst
Sun 30/8 kl. 14:00 U
Sun 30/8 kl. 17:00 U
Sun 6/9 kl. 14:00 Ö
Fös 11/9 kl. 20:00 frums. U
Lau 12/9 kl. 20:00 2.sýn. Ö
Fös 18/9 kl. 20:00 3.sýn. Ö
Fös 4/9* kl. 20:00
Lau 5/9 kl. 20:00 Ö
Lau 12/9 kl. 20:00
Sun 6/9 kl. 17:00 Ö
Sun 13/9 kl. 14:00 Ö
Sun 13/9 kl. 17:00 Ö
Lau 19/9 kl. 20:00 4.sýn. Ö
Fös 25/9 kl. 20:00 5.sýn.
Lau 26/9 kl. 20:00 6.sýn.
Lau 19/9 kl. 20:00
Lau 26/9 kl. 20:00
Sun 20/9 kl. 14:00 Ö
Sun 27/9 kl. 14:00 Ö
Fös 2/10 kl. 20:00 7.sýn.
Lau 3/9 kl. 20:00 8.sýn.
Sýningar haustsins komnar í sölu
Sýningar haustsins komnar í sölu
*Til styrktar Grensásdeild. Ath. stutt sýningartímabil
Sími 551 1200 / midasala@leikhusid.is / www.leikhusid.is
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ kostar aðeins 9.900 kr.Fjögurra sýninga leikhúskort
THE NEW FILM BY QUENTIN TARANTINO
UNIVERSAL PICTURES AND THE WEINSTEIN COMPANY PRESENT A BAND APART PRODUCTION A ZEHNTE BABELSBERG FILM GmbH PRODUCTION A FILM BY QUENTIN TARANTINO “INGLOURIOUS BASTERDS” BRAD PITT CHRISTOPH WALTZ
MICHAEL FASSBENDER ELI ROTH DIANE KRUGER DANIEL BRÜHL TIL SCHWEIGER AND MÉLANIE LAURENT AS SHOSANNA GUEST STARRING AUGUST DIEHL JULIE DREYFUS SYLVESTER GROTH JACKY IDO DENIS MENOCHET MIKE MYERS
ROD TAYLOR MARTIN WUTTKE EDITEDBY SALLY MENKE, A.C.E. VISUAL EFFECTSDESIGNER JOHN DYKSTRA COSTUMEDESIGNER ANNA B. SHEPPARD PRODUCTIONDESIGNER DAVID WASCO DIRECTOR OFPHOTOGRAPHY ROBERT RICHARDSON, ASC ASSOCIATEPRODUCER PILAR SAVONE
EXECUTIVE
PRODUCERS BOB WEINSTEIN HARVEY WEINSTEIN ERICA STEINBERG LLOYD PHILLIPS PRODUCEDBY LAWRENCE BENDER WRITTEN ANDDIRECTED BY QUENTIN TARANTINO
www.InglouriousBasterds-Movie.com
AN INGLORIOUS, UPROARIOUS
THRILL-RIDE OF VENGEANCE
ELI
ROTH
BRAD
PITT
CHRISTOPH
WALTZ
MICHAEL
FASSBENDER
DIANE
KRUGER
TIL
SCHWEIGER
MÉLANIE
LAURENTAND
DANIEL
BRUHL
MasterCard korthafar fá tvo miða á verði eins á sérstakar MasterCard forsýningar
mánudaginn 24. ágúst, í Laugarásbíói, Smárabíói, Háskólabíói, Sambíóin Álfabakka og Borgarbíói
Akureyri, greiði þeir með kortinu.
2 fyrir 1
Mánudaginn 24. ágúst
kl. 19.00 kl. 22.00kl. 22.20kl. 20.00 kl. 20.00
S
Ý
N
IN
G
A
R
-
T
ÍM
A
R
ÁLFABAKKI
Söngsveitin Fílharmónía 50 ára
Söngsveitin Fílharmónía fagnar hálfrar aldar afmæli með glæsilegu
og viðburðaríku starfsári þar sem helstu verkefni eru:
október: Misa Criolla eftir Ariel Ramírez og Fjölmenningarmessa
eftir Yamandú Pontvik, desember: Aðventutónleikar, febrúar:
Magnificat eftir John Rutter í samstarfi við Lúðrasveit verkalýðsins
og kór Fella- og Hólakirkju, maí: afmælistónleikar: frumflutt verk
eftir Tryggva M. Baldvinsson og kaflar úr ýmsum stórverkum sem
Söngsveitin hefur sungið.
Raddpróf fyrir nýja félaga 30. ágúst, kl. 16 í Melaskóla.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Ragnarsson söngstjóri í síma 698 9926.
Sjá jafnframt www.filharmonia.mi.is.
Fáðu úrslitin
send í símann þinn