Morgunblaðið - 12.12.2009, Síða 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2009
FJÁRLÖG, fjár-
aukalög, Icesave-
málið og þau frum-
vörp sem eru ým-
ist tengd
skatttekjuöflun,
sparnaði og að-
gerðum til að
koma í veg fyrir
útgjöld. Þetta eru
þau mál sem Al-
þingi verður að
ljúka fyrir áramót að mati Stein-
gríms J. Sigfússonar fjármálaráð-
herra.
Enginn forgangsröð hefur verið
sett á afgreiðslu frumvarpanna, en
fundað verður í flestum nefndum Al-
þingis nú um helgina og kann for-
gangsröð mála að skýrast í kjölfarið.
„Þetta rekur sig eflaust eitthvað eftir
því hvenær þau koma úr nefndum og
hvenær þau eru tilbúin, segir Stein-
grímur. Hann kveðst þó búast við að
önnur umræða fjárlagafrumvarpsins
verði væntanlega fyrst í röðinni.
Starfsáætlun heldur ekki
Þingheimur verði engu að síður að
afgreiða málin öll fyrir áramót. Upp-
haflega hafi verið stefnt að því að
ljúka Icesave-málinu í nóvember,
fjárlagafrumvarpið geti ekki beðið,
né skattafrumvörpin, eigi tekju-
öflunarþættirnir ekki að tapast.
„Ég trúi því og treysti að stjórnar-
andstaðan sýni það ríka ábyrgðar-
tilfinningu að hún komi ekki í veg
fyrir að ríkisstjórnin og meirihlutinn
geti gert þessar ráðstafanir sem aug-
ljóslega þarf að gera, þó menn séu
kannski misjafnlega sammála.“
Ljóst megi hins vegar telja að
starfsáætlun þings haldi ekki og
þingloka þar af leiðandi ekki að
vænta í næstu viku.
„Ég held að það sé augljóst að við
þurfum að nota alla virka daga fram
að jólum og vonandi dugar það. Ann-
ars eiga menn þrjá virka daga milli
jóla og nýárs upp á að hlaupa. Því við
munu gera allt sem við getum til að
klára þetta verkefni fyrir áramót og
það verður ekki hikað við að funda
eins og lífsins mögulegt er til að klára
þetta,“ sagði Steingrímur.
annaei@mbl.is
Þinghald verður milli
jóla og nýárs ef þörf er á
Fjárlaga-, skatta- og Icesave-frumvörp afgreidd fyrir áramót
Steingrímur J.
Sigfússon
ÞJÓÐMENNINGARHÚSINU
verður ekki lokað, en sú hugmynd að
loka húsinu er viðruð í greinargerð
með fjárlagafrumvarpinu. Málið hef-
ur verið skoðað í menntamálaráðu-
neytinu, en niðurstaðan er sú að
halda starfsemi hússins áfram.
Sigtryggur Magnason, aðstoð-
armaður menntamálaráðherra, seg-
ir að rætt hafi verið við stjórnendur
Þjóðmenningarhúss og í þeim við-
ræðum hafi komið fram að búið sé að
skipuleggja dagskrá í húsinu til árs-
loka 2012. Hann segir að fyrirhugað
sé að halda í upphafi næsta árs fund
með forstöðumönnum stofnana á
sviði menningarmála sem tengjast
starfsemi Þjóðmenningarhúss.
Áformað sé að endurskoða starfsem-
ina, en ekki séu uppi áform um að
loka húsinu.
Samkvæmt fjárlagafrumvarpi
næsta árs á Þjóðmenningarhús að fá
93,6 milljónir úr ríkissjóði.
Sú hugmynd hefur verið nefnd
oftar en einu sinni að náttúruminja-
safn fái inni í safnahúsinu við Hverf-
isgötu. Sigtryggur segir að þetta
hafi ekki verið skoðað nýlega og
ekkert liggi fyrir um að húsið henti
undir þá starfsemi. Starfshópur
ráðuneytisins og Reykjavíkurborgar
sé nú að skoða hvaða lausnir komi til
greina varðandi hús undir nátt-
úruminjasafn. egol@mbl.is
Þjóðmenn-
ingarhúsi
ekki lokað
ÍBÚÐ í fjölbýlishúsi við Vatnsholt í
Reykjanesbæ er talsvert skemmd af
völdum reyks og sóts eftir að eldur
kviknaði í pottum, sem þar gleymd-
ust á eldavél, síðdegis í gær. Enginn
var í íbúðinni þegar eldsins varð
vart. Brunavarnir Suðurnesja voru
fljótar að slökkva eldinn.
Að sögn lögreglu eru nokkrar
íbúðir í húsinu þar sem eldurinn
kviknaði en ekki þurfti að rýma hús-
ið. Tilkynnt var um eldinn laust fyrir
klukkan 16 og tók skamma stund að
slökkva.
Skemmd af
reyk og sóti
Eftir Sigurð Boga Sævarsson
sbs@mbl.is
BÆJARYFIRVÖLD á Seltjarnarnesi skoða nú
mál húseiganda við Nesveg þar í bæ, sem nýverið
lét ryðja niður sjóvarnargarði á nokkurra metra
belti fyrir framan hús sitt. Þar sem sjóvörnin var
áður er nú opið gap og niðri í flæðarmálinu hefur
verið komið upp nokkurs konar eyju eða brimbrjót,
sem skagar um það bil tíu metra fram í sjóinn. Hús-
eigandinn fékk verktaka til að annast framkvæmdir
og fór í þær upp á sitt einsdæmi. Unnið hefur verið
að endurbótum á sjóvarnargörðum á Seltjarnarnesi
að undanföru á vegum Siglingastofnunar.
Ekkert samráð
Ólafur Egilsson formaður skipulags- og mann-
virkjanefndar Seltjarnarness segir húseigandann
hafa látið ryðja sjóvarnargarðinum upp á sitt eins-
dæmi.
„Þetta var gert í heimildarleysi og án þess að
eðlilegt samráð væri haft við Siglingastofnun eða
bæjaryfirvöld,“ sagði Ólafur í samtali við Morg-
unblaðið. Sjóvarnir eru málaflokkur á könnu Sigl-
ingastofnunar og snerta því bæði stofnunina og svo
bæjaryfirvöld á Nesinu, en á síðasta fundi skipu-
lags- og mannvikjanefndar var tækni- og
umhverfissviði bæjarins og embættismönnum sem
starfa á þess vegum falið að afla gagna og upplýs-
inga og kanna til hvaða ráðstafana gerlegt sé að
grípa. Almenna reglan er sú, þegar ráðist er í fram-
kvæmdir án heimilda, að sá sem að að þeim stendur
ber ábyrgðina. Ef þær skorti sé hægt að skylda við-
komandi að koma hlutunum í samt lag aftur eða að
slíkt sé gert á hans kostnað.
Sigurður Áss Grétarsson forstöðumaður hafna-
sviðs Siglingastofnunar segir að í framkvæmdum
við sjóvarnargarða sé jafnan reynt að vera í sátt við
íbúanna, enda séu framkvæmdir í þeirra þágu.
Hann þekki þó ekki til þessa tiltekna máls.
„Það fer enginn og gerir neitt í fjörunum né
annarsstaðar nema hafa til þess leyfi, jafnvel þó um
einkalóðir sé að ræða,“ sagði Ásgerður Halldórs-
dóttir bæjarstjóri á Seltjarnarnesi.
Ruddi niður sjóvarnar-
garði í heimildarleysi
Framkvæmdir án leyfis Bæjaryfirvöld á Seltjarnarnesi kanna málið
Morgunblaðið/Ómar
Sjóvörn Grjótinu í sjóvarnargarðinum við Nesveg á Seltjarnarnesi hefur verið rutt fram í sjóinn eins og sést á þessari mynd. Húseigandinn segist hins
vegar aðeins hafa sett möl sem hlífðarkápu yfir grjótið. Ekki var sótt um leyfi til framkvæmdanna og yfirvöld eru nú með málið í athugun.
Húseigandinn sem
stóð að fram-
kvæmdum við sjó-
varnargarðinn á Nes-
vegi er Guðmundur
Kristjánsson útgerð-
armaður, löngum
kenndur við Brim hf.
Hann tekur fyrir að
hafa látið ryðja sjó-
varnargarðinum niður,
enda þótt myndir af
vettvangi bendi til annars.
„Ég lét sturta möl yfir garðinn sem
er þar sem nokkurs konar hlífðarkápa,"
segir Guðmundur sem telur þessar
framkvæmdir ekki fréttnæmar.
Mölin er hlífðarkápa
Guðmundur
Kristjánsson