Morgunblaðið - 12.12.2009, Side 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2009
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
EIN afleiðing gjaldeyrishaftanna
er að gengi krónunnar er hærra en
það væri ella, enda er það markmið
haftanna. Daniel Gros, bankaráðs-
maður í bankaráði Seðlabankans,
telur þetta hins vegar ekki hafa já-
kvæð áhrif.
„Skuldir þjóðarbúsins eru slíkar
að neysla almennt og innflutningur
sérstaklega mun óhjákvæmilega
þurfa að dragast saman umtalsvert.
Með því að halda gengi krónunnar
hærra en það væri ella er hins veg-
ar verið að ýta undir innflutning,
sem Ísland hefur í raun ekki efni á
núna,“ segir hann.
Segir hann erfitt að segja til um
hvort rétt hafi verið að grípa til
gjaldeyrishafta, enda hafi staðan
síðasta haust verið afar sérstök og
erfið. „Hins vegar sýna dæmin að
þegar höftum hefur á annað borð
verið komið á getur verið erfitt að
losna við þau. Ég nefni sem dæmi
að þegar þau voru sett á í upphafi
áttu þau aðeins að standa í nokkra
mánuði. Síðan þá hafa stjórnvöld
hins vegar hert á höftunum í stað
þess að slaka á þeim.“
Gros telur krónuna reyndar vera
mikinn vandræðagrip og að í raun
sé nauðsynlegt að skipta henni út.
„Mikilvægt er að horfast í augu við
það að við núverandi aðstæður er
Ísland ekki á neinni hraðleið inn í
Evrópusambandið og evruna. Það
er hins vegar alltaf hægt að taka
evruna upp einhliða, þótt slíka upp-
töku þyrfti að undirbúa mjög vel.“
Ekki spyrja um leyfi
Gros var ráðgjafi stjórnvalda í
Svartfjallalandi þegar það ríki
ákvað að taka einhliða upp evru.
„Málið er að gera þetta án þess að
spyrja Brussel eða Frankfurt um
leyfi. ESB var afar ósátt við
ákvörðun Svartfellinga og hótaði
þeim öllu illu, en ég get ekki séð að
það hafi nein úrslitaáhrif á aðild-
arviðræður landsins við ESB.“
Meðal þess sem þarf að gera áður
en hægt er að taka einhliða upp
annan gjaldmiðil er að ganga úr
skugga um raunverulega skulda-
stöðu þjóðarbúsins – þar með talið
Icesave. „Ganga þarf frá því máli
með einum eða öðrum hætti.“
Annað atriði segir Gros vera end-
urskipulagningu bankakerfisins.
„Bankarnir og bankakerfið þurfa
að njóta trausts almennings í land-
inu og erlendra aðila. Það verður
að vera hægt að treysta því að þeir
eigi evrur í sjóðum sínum. Ég tel að
ef svo fer að erlendir bankar eign-
ist íslensku viðskiptabankana sé
þetta vandamál leyst. Erlendir
bankar eiga jú feikinóg af gjald-
eyri, þar með talið evrum.“
Hvað varðar áform stjórnvalda
um hvernig ná megi jafnvægi í rík-
isfjármálum segist Gros ekki vilja
tjá sig nema með mjög almennum
hætti. „Hagfræðirannsóknir sýna
að jafnvægi í ríkisfjármálum til
lengri tíma er betur tryggt með því
að skera niður útgjöld en með því
að hækka skatta.“
Gengi krónu
haldið óeðlilega
háu með höftum
Vel hægt að taka einhliða upp evruna
Morgunblaðið/Golli
Eftir Sigmund Sigurgeirsson
KOMNAR eru í ljós verulegar
skemmdir á holræsakerfi í Hvera-
gerði og á Selfossi sem rekja má til
jarðskálftanna í Ölfusi 24. maí 2008.
Kostnaður vegna skemmdanna er
ekki undir eitt hundrað milljónum
króna og eru þær að líkindum ekki
allar komnar fram. Rannsóknir á
holræsakerfi á Selfossi hafa staðið
yfir frá því í sumar og er að mestu
lokið, en þær standa nú yfir í Hvera-
gerði. Kerfið er hreinsað, myndað og
kortlagt og í ljós hefur komið að
mikið af lögnum og brunnum í báð-
um þessum bæjarfélögum hefur
skemmst.
Að líkindum eru einhverjar
skemmdir á skólprörum frá heim-
ilum en það hefur ekki verið skoðað
skipulega, þar sem kerfið er ein-
ungis rannsakað að lóðarmörkum af
hálfu sveitarfélaganna. Lóðareig-
endum hefur verið bent á að athuga
vel hvort rennsli frá húsum sé treg-
ara en áður og eins er algengt að líf
kvikni þar sem frárennslislagnir eru
brotnar.
Leiki grunur á að skemmdir hafi
orðið er fólki bent á að hafa samband
við Viðlagatryggingu Íslands sem
enn hefur skrifstofur á Selfossi sem
opnaðar voru í kjölfar skjálftanna
snemmsumars 2008.
Holræsa- og stífluþjónustan ehf.
sér um að hreinsa og mynda skólp-
og regnvatnslagnirnar, og er um að
ræða marga tugi kílómetra af lögn-
um.
Allt tjón á lögnum, sem rekja má
til Suðurlandsskjálftans, verður
bætt af Viðlagatryggingu en sveit-
arfélögin og Viðlagatrygging hafa
samvinnu um framkvæmdina og
deila kostnaði við hana á milli sín.
Í Hveragerði hefur borið á því að
vatnslásar í gólfniðurföllum og
hreinlætistækjum hafi tæmst við út-
skolunina, enda talsverðum vatns-
þrýstingi beitt. Fylgir því talsverð
fýla auk þess sem dæmi eru um að
skólp hafi komið upp um niðurföll,
en án tjóns, svo vitað sé. Í ein-
hverjum tilvikum hafa menn orðið
varir við rottugang en í litlum mæli
og er eitri dreift á þeim svæðum sem
slíkt hefur komið upp.
Morgunblaðið/Sigmundur Sigurgeirsson
Skemmdir Unnið að viðgerðum á holræsum sem skemmdust í skjálftanum.
Skjálftinn skemmdi
holræsakerfin
Kostnaður vegna
viðgerða ekki und-
ir hundrað millj-
ónum króna
Í HNOTSKURN
»Skemmdir í holræsakerfi íHveragerði og á Selfossi
má rekja til jarðskjálftanna í
Ölfusi 24. maí 2008.
»Viðlagatrygging Íslandshefur enn skrifstofur á
Selfossi sem opnaðar voru í
kjölfar skjálftanna 2008.
LAUFEY Johan-
sen opnar sýn-
ingu á málverk-
um sínum í
Gallerí húsinu,
Laugavegi 91, í
dag 15. Á sýning-
unni má sjá þró-
unina í verkum
Laufeyjar síðustu
tvö árin en hún
hefur m.a. sýnt verk sín í Lund-
únum, Liverpool og víðar.
Laufey málar stórar olíumyndir
og hefur lengst af unnið þær nær al-
farið í einum lit: svörtum. Í nýjustu
myndum sínum hefur Laufey bætt
nokkuð í litaskalann. Í viðtölum við
fjölmiðla hefur hún sagt að hún
miðli orku frá hinni týndu plánetu
Vúlkan sem felur sig handan við sól-
ina. Í nýrri myndunum leitast hún
við að tjá orku frá fleiri plánetum og
þar kemur til víðari litaskali.
Áhrif frá Vúlkan
Laufey Johansen
Á MORGUN
verður Íslands-
meistaramótið í
Hrútaspilinu
haldið í Þjóð-
minjasafni Ís-
lands. Allir geta verið með, en skil-
yrði er þó að eiga nýja Hrútaspilið.
Spilið verður til sölu á staðnum.
Þátttakendur þurfa að mæta í Þjóð-
minjasafnið og skrá sig til leiks fyr-
ir klukkan 14 en þá hefst mótið.
Íslandsmeistara-
mótið í Hrútaspili