Morgunblaðið - 12.12.2009, Qupperneq 14
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2009
Morgunblaðið birtir fram til jóla upplýsingar um einhverja þeirra
viðburða sem eru á dagskrá vítt og breitt um landið.
12 dagar til jóla
FJÖLBREYTT úrval jólatónleika er
í boði í kirkjum í höfuðborginni á
morgun, sunnudag. Í Grafarvogs-
kirkju, kl. 17 munu allir kórar
kirkjunnar syngja aðvent- og jóla-
lög til styrktar orgelsjóði kirkj-
unnar. Einsöngva flytja Jóhann
Friðgeir Valdimarsson og Gissur
Páll Gunnarsson.
Í Fríkirkjunni kl. 17 verður
kirkjukór Lágafellssóknar með tón-
leikar til styrktar bágstöddum fjöl-
skyldum í Mosfellsbæ. Með kórnum
syngja m.a. Karlakórinn Þrestir,
Karlakór Kjalnesinga, Egill Ólafs-
son, Hanna Björk Guðjónsdóttir, Hreindís Ylfa Garðarsdóttir og Anna
Sigríður Helgadóttir. Aðventusöngvar verða í Háteigskirkju kl. 20. Einar
Clausen tenór syngur einsöng og kór kirkjunnar flytur og leiðir jóla- og
aðventusöngva.
Margbreytilegt úrval jólasöngva
Jólasöngvar Í Grafarvogskirkju
munu allir kórar kirkjunnar syngja.
Morgunblaðið/Þorkell
SÖGUBÍLLINN Æringi, á vegum
Borgarbókasafnsins, verður á
ferð í leikskólana að venju. Sóla í
sögubílnum skrapp í jólafrí til að
hjálpa bræðrum sínum jólasvein-
unum við að setja í pokana áður
en þeir halda til byggða.
Í þetta sinn ferðast Sögubíllinn
með „afa“ innanborðs en það eru
eldri menn sem segja börnunum
sögur frá fyrri tíð eða lesa fyrir
þau. Í fyrra voru það ömmurnar
sem fóru í leikskólana og gerðu
mikla lukku og afarnir ekki síður
vinsælir enda bókað fram að jól-
um og komust miklu færri að en
vildu.
Afarnir heita Heimir Þór Gísla-
son, Ingi Garðar Magnússon og
Árni Jón Konráðsson. Afarnir
lesa upp og segja sögur, sýna
börnunum gamla muni eða nýrri
sem þeir hafa gert sjálfar og
teikna myndir af því sem þeir eru
að segja frá. Von er til að fleiri
afar bætist við þegar nær líður
jólum.
Afar segja sögur
BERND Ogrodnik kemur í dag kl.
14 til Sólheima með brúðuleikhúsið
sitt og sýna verkið „Pönnukakan
hennar Grýlu“ í íþróttaleikhúsinu.
Búast má við mikilli stemningu
þegar dúkkurnar lifna við og
pönnukakan byrjar að rúlla. Þetta
er í fjórða sinn sem Bernd kemur
með brúðuleikhúsið í Sólheima á
aðventunni. Síðan er um að gera að
ganga um jólaþorpið á Sólheimum
og njóta alls sem það hefur upp á að
bjóða.
Pönnukaka Grýlu Bernd Ogrodnik
sýnir brúðuleikhúsið á Sólheimum.
Brúðuleikhússýning
í Sólheimum
LISTASKÓLI Mosfellsbæjar heldur sjö jólatónleika í Listasal Mosfells-
bæjar á aðventunni. Fram koma nemendur á öllum stigum hljóðfæra- og
söngnáms og flytja fjölbreytta tónlist, sem kemur öllum í jólaskapið.
Næstu tónleikar verða á þriðjudag nk. kl. 17:00 og 18:00 og á miðviku-
dag nk. kl. 17:00 og 18:00. Allir eru velkomnir og er aðgangur ókeypis.
Barnafata-skiptimarkaður fyrir 12 ára og yngri sem er enn í fullum
gangi hjá Kjósardeild Rauða kross Íslands í Þverholti 7 í Mosfellsbæ. Opið
er alla þriðjudaga og fimmtudag kl. 10-13 og annan hvorn þriðjudag kl. 17-
19. Foreldrar eru hvattir til að koma með heilleg föt sem börnin þeirra eru
vaxin upp úr og skipta yfir í aðrar stærðir og öðruvísi föt og skó.
Tónleikar og skiptimarkaður í Mosfellsbæ
Eftir Unu Sighvatsdóttur
una@mbl.is
NEYSLUÚTGJÖLD á heimili í land-
inu jukust um 7,5% frá tímabilunum
2005-2007 til 2006-2008. Hin síðari ár
voru útgjöld á hvert heimili um 426
þúsund krónur á mánuði, eða 178 þús-
und kr. á mann, skv. rannsókn sem
gerð var af Hagstofu Íslands.
Á sama tíma hafa hins vegar heim-
ilin í landinu minnkað úr 2,4 einstak-
lingum að meðaltali í 2,39. Því hafa út-
gjöld á mann hækkað meira en á
heimili, eða um 8,2%.
Sé neyslan hlutuð niður og einstak-
ir þættir skoðaðir sést að hlutfall mat-
ar- og drykkjarvöru hefur aukist í
heimilisútgjöldum á milli ára, það var
11,8% en er nú 12,9%. Hlutfall hús-
næðis, hita og rafmagns stendur hins
vegar nánast í stað rétt undir 26% á
meðan hlutfall ferða og flutninga
minnkar talsvert, úr 17,2% úr 16,5.
Ástæðu þess að heimilin verja lægra
hlutfalli tekna í þennan þátt má rekja
til minni kaupa á nýjum bílum.
Eins og áður segir eru meðal-
neysluútgjöld 426 þúsund á heimili,
en meðaltekjur heimila eru hins veg-
ar 470 þúsund krónur. Sjá má að
neysluútgjöld og tekjur fylgjast ekki
endilega að, því þau heimili sem mest
útgjöld hafa eyða 199% meira á mann
en þau sem minnstu eyða. Tekjur
þeirra eru hins vegar um 50% hærri.
Rannsókn Hagstofunnar nær ekki
lengra en til ársloka 2008. Því liggja
áhrif kreppunnar á útgjöld heimil-
anna árið 2009 ekki fyrir, en hins veg-
ar sjást vísbendingar um töluverðan
samdrátt útgjalda í kjölfar hrunsins
haustið 2008.
Borið saman við fjórða ársfjórðung
2007 varð 17% samdráttur að raun-
gildi sama tímabil árið 2008. Bílakaup
vega þar þyngst enda hafa þau út-
gjöld mest áhrif á heildarútgjöld
heimilis á ári hverju. Séu bílakaup
undanskilin minnkuðu því útgjöld
meðalheimils um 12%.
Hins vegar var til bíll á fleiri heim-
ilum árið 2008 en tveimur árum áður.
Enginn bíll var á 13% heimila árið
2006 en það hlutfall hafði lækkað í 9%
árið 2008.
Þá kemur fram að kjarnafjölskyld-
an: hjón og sambýlisfólk með börn,
var fram til ársins 2006 algengasta
heimilisformið. Nú er algengast að
fólk búi eitt, en það á við um 40%
heimila á höfuðborgarsvæðinu og
37% á landsbyggðinni. Tæp 80% búa í
eigin húsnæði, en leigjendum hefur
fjölgað úr 19,9% tímabilið 2005-7 í
21,6% 2006-8.
Vísbendingar um minni
neysluútgjöld eftir hrun
Matarinnkaup Hlutur matar og drykkjar í neysluútgjöldum hefur hækkað.
Í HNOTSKURN
»Í úrtakinu voru 3.504heimili, 1.728 þeirra tóku
þátt og svörun því tæp 50%.
»Á meðalheimili búa 2,39einstaklingar með 470.000
kr. í meðaltekjur. Kjarna-
fjölskyldan er ekki lengur al-
gengasta heimilisformið.
Meðalheimili hefur
minnkað og neysla
dregist saman
BYGGÐASAFN Hafnarfjarðar býður leikskólabörnum úr Hafnarfirði og
nágrannasveitarfélögum í heimsókn í Sívertsens-húsið, í sérstaka jóla-
dagskrá tvær síðustu vikurnar fyrir jól. Börnunum er sagt frá jólahaldi í
húsinu í gamla daga o.fl. Að lokum heilsar jólasveinn upp á börnin.
Sögur af jólahaldi í gamla daga
JÓLALEST Coca-Cola fer um höfuðborgarsvæðið í dag.
Hún heldur af stað kl. 16 frá höfuðstöðvum Vífilfells og
mun ferðast um helstu hverfi með viðkomu í Smáralind-
inni kl.18. Þaðan er ferðinni fram haldið til kl. 20 en þá
lýkur rúmlega 100 km ferðalagi jólalestarinnar á sama
stað og ferðin hófst. Jólalestin samanstendur af 5 trukk-
um sem hlaðnir eru rúmlega 2 kílómetrum af ljósaserí-
um. Það tekur starfsmenn Vífilfells yfir 10 klukkutíma
að skreyta bílana.
Jólalestin fer um hverfi borgarinnar
Jólalestin Brunar
um bæinn í dag.
Café Hljómskálinn verður opnað í dag kl. 11.
Marentza Poulsen tekur á móti gestum af sinni
alkunnu snilld og jólabrasskvartett spilar ljúf jólalög
klukkan 16. Kaffihúsið verður opið fram í janúar.
Jól í koti, jól í borg
Söguganga í boði Minjasafns Reykjavíkur hefst við Land-
námssýninguna í Aðalstræti klukkan 11 árdegis. Fjallað
verður um helgihald í Kvosinni. Þátttaka er ókeypis.
Jólasýning Árbæjarsafns 2009
Jólasýning Árbæjarsafns hefur notið mikilla vin-
sælda undanfarin ár. Undirbúningur jólanna eins
og hann var í gamla daga, matargerð, handverk og
hrekkjóttir jólasveinar. Jólasýningin verður opin
sunnudaginn 13. desember kl. 13-17.
Nánari upplýsingar á
www.reykjavik.is/ljomandi
Café Hljómskálinn opnar á aðventunni