Morgunblaðið - 12.12.2009, Qupperneq 31
til dæmis litasamsetning og áhrif sótt
í Þjórsá en ég keyri mjög oft framhjá
ánni og árbakkinn er einstaklega fal-
legur á einum sérstökum stað. Þessi
staður fæddist í prjóninu hjá mér,
hvítfyssandi Þjórsáin birtist þar og
svarbrúnir moldarbakkar með þúfur
á kollinum.“
Vann keppni og
tilnefnd í Hrafnagili
Vilborg er dugleg að koma hug-
myndum frá sér og hún á fjórar upp-
skriftir í nýútgefinni bók sem heitir
Prjónaperlur. Síðastliðinn vetur tók
hún þátt í prjónasamkeppni bloggsíð-
unnar Prjóniprjón og vann hana, en
hún sendi inn hvítan prjónaðan
barnaskokk með gráum bekk. Í sum-
ar tók hún þátt í samkeppninni Þráð-
ur fortíðar til framtíðar, í tengslum
við handverkshátíð í Hrafnagili. Þar
var hún tilnefnd til verðlauna fyrir
prjónað stúlkuvesti og húfu. „Þetta er
einhverskonar tilraun til að hvetja til
frekari útbreiðslu á notkun á þjóð-
legum flíkum til að nota spari. Einnig
var markmiðið að þetta væri auðvelt
fyrir prjónafólk að prjóna, því það
leggja ekkert allir í það að sauma ís-
lenska búninginn. Vestið er hægt að
nota við margar flíkur og þannig var
ég að vonast til að útbreiðslan yrði
meiri en ella. Ég ætla að halda áfram
að vinna með þessa hugmynd og núna
er ég að klára að hanna strákavestið.“
Smíðum, græjum og gerum
Vilborg lætur ekki duga að smíða,
mála og teikna, hún smíðar líka. „Við
Hólmfríður Björnsdóttir vinkona mín
og hrossaræktandi á Blesastöðum,
fengum mikinn áhuga á gömlum hús-
um, munum og húsgögnum. Við fór-
um út um allt að skoða og spekúlera
en fundum ekki allt sem við leituðum
að. Við fórum þá bara út í að smíða
sjálfar okkar eigin húsgögn. Þar sem
maðurinn minn er smiður þá er tré-
smíðavél hér í kjallaranum og við vin-
konurnar köllum smíðaverkstæðið
okkar þar Smíðakofann. Við fáum
hrátt og óunnið timbur sem við hefl-
um sjálfar, smíðum, græjum og ger-
um. Við búum til tréleikföng og stof-
ustáss, hesta, kindur, dreka og engla.
Líka rugguhesta í lopapeysum. Svo
smíðum við hillur eftir óskum hvers
og eins. Það er notaleg stemning að
vera saman langt fram á kvöld að
bauka við þetta. En trésmíðavélin
hefur verið í pásu um tíma af því ég
hef eignast börn nokkuð ört und-
anfarið, þau eru orðin fjögur,“ segir
Vilborg sem er í fæðingarorlofi eins
og stendur en starfar annars sem
leikskólastjóri. Það er nóg að gera á
bænum eins og gefur að skilja með
fjögur börn en þau hjónin eru með
heilan haug af hrossum, eins og Vil-
borg orðar það sjálf. „Hestarnir eru
okkar aðaláhugamál og skipta okkur
miklu máli. Við erum líka með nokkr-
ar kindur til að sjá heimilinu fyrir
kjöti og þær eru nú frekar spakar og
skemmtilegar. Ég sæki innblástur til
þeirra, til dæmis þegar ég geri
skjátuskissurnar mínar.“ Vilborg
hlær þegar hún er spurð hvernig svo
upptekin kona finni tíma til að sinna
handverkinu. „Þetta er náttúrulega
galið, en ég nýti aðallega tímann eftir
að börnin sofna á kvöldin og líka þeg-
ar þau sofa í vagninum.“
Vestið Var tilnefnt á Hrafnagili.
www.lopinn.blogspot.com/
Á Facebook: Jólakúl 2009
„Í einu munstrinu mínu er
til dæmis litasamsetning
og áhrif sótt í Þjórsá“
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2009
1: fitja upp á 6 lykkjum sem er
skipt á 3 prjóna
2: tengt í hring og umferðin
prjónuð slétt.
3: byrjað á að auka út,
prjóna 1 slétt, auka út um 1,
prjóna eina slétt... o.s.frv. út
umferð = 4 lykkjur á prjóni.
4: umferð prjónuð slétt.
5: prjóna 1, auka út um 1, prjóna 2, auka
út um 1, prjóna 1 = 6 lykkjur á prjóni
6: umferð prjónuð slétt.
7: auka út um 1, prjóna 2, auka út um 1,
prjóna 2... o.s.frv. út umferð = 9 lykkjur
á prjóni
8: umferð prjónuð slétt.
9: umferð prjónuð slétt.
10: auka út um 1, prjóna 3, auka út um
1, prjóna 3... o.s.frv. út umferð = 12
lykkjur á prjóni
11: umferð prjónuð slétt.
12: umferð prjónuð slétt.
13: auka út um 1, prjóna 3, auka út um 1,
prjóna 3... o.s.frv. út umferð = 16 lykkjur
á prjóni
14 - 20: munstur – leggja nú höfuðið í
bleyti og finna skemmtilegt munstur
eða eitthvað annað sem skreytir kúluna.
21: Prjóna 2, prjóna 2 saman, prjóna 2,
prjóna 2 saman... o.s.frv. út umferð = 12
lykkjur á prjóni
22: umferð prjónuð slétt.
23: umferð prjónuð slétt. Gangið frá
spottum innan í kúlunni.
24: prjóna 2 saman, prjóna 2, prjóna 2
saman, prjóna 2... o.s.frv. út umferð = 9
lykkjur á prjóni
25: umferð prjónuð slétt
26: umferð prjónuð slétt
27: prjóna 1, prjóna 2 saman, prjóna 1,
prjóna 2 saman... o.s.frv. út umferð = 6
lykkjur á prjóni
28: umferð prjónuð slétt. Fyllið kúluna
af smá tróði
29: prjóna 1, prjóna 2 saman, prjóna 1,
prjóna 2 saman... o.s.frv. út umferð = 4
lykkjur á prjóni
30: umferð prjónuð slétt. Fyllið kúluna
af meira tróði.
31: prjóna 2 saman, prjóna 2 saman...
o.s.frv. út umferð = 2 lykkjur á prjóni.
Klárið að fylla kúluna af tróði eins og þið
viljið hafa hana.
32: prjónið þessar 2 lykkjur saman og
dragið bandið í gegn í hvert sinn. Að
lokum dragið vel að og gangið frá
spotta.
Af ásettu ráði segir ekkert til um prjóna-
stærð, garn/lopa, munstur ofl. Það er
með ráðum gert svo hver og einn geri
jólakúluna að sinni.
Bestu prjóna-jólakveðjur frá Vilborgu.
Jólakúla í 32
skrefum
Jónas Erlendsson fréttaritari
Miklar byggingaframkvæmdir eiga
sér nú stað í Vík í Mýrdal. Elías Guð-
mundsson og Vilborg Smáradóttir,
eigendur að Hótel Vík, eru að stækka
hótelið um ellefu herbergi og einnig
stækkar matsalurinn töluvert.
Eigendur Víkurprjóns eru einnig
að byggja við húseign sína en þar er
rekin prjónastofa og ferða-
mannaverslun og hefur mikil aukn-
ing ferðamanna á undanförnum ár-
um löngu sprengt utan af sér
húsnæðið. Byggingaframkvæmdir
ganga vel enda búin að vera góð tíð
það sem af er vetri.
Einnig er verið að ganga frá og
keyra möl í nýja götu efst í þorpinu,
en þar er áætlað að byrja fljótlega að
byggja íbúðarhús. Það er því ljóst að
ekkert kreppuhljóð er í Mýrdæl-
ingum.
Hjá bændum er fengitíminn í há-
marki og sauðfjársæðingar langt
komnar eða búnar. Flestir sauð-
fjárbændur nýta sér sæðingar að ein-
hverju marki til að bæta stofna sína
og koma í veg fyrir skyldleikarækt-
un. Enda eru á sæðingarstöðinni
valdir hrútar frá fyrirmyndarbýlum
víðsvegar af landinu.
Friðun brekkubobba og hvannar er
eitt af heitustu málum í Mýrdalnum
um þessar mundir en umhverfisráðu-
neytið vill friða austurhlíðar Reyn-
isfjalls. Haldin var íbúafundur til að
kynna málið og milli áttatíu og
hundrað manns mættu. Var frið-
unartillögunni hafnað með nánast öll-
um atkvæðum fundarmanna. Þar
sem brekkubobbarnir hafa lifað í
fjallinu í sátt og samlyndi við íbúana
eins lengi og elstu menn muna þykir
ekki ástæða til að fara að friða fjallið.
Krakkarnir í fyrsta og öðrum bekk
Grunnskólans í Vík fengu að kynna
sér hvernig hangikjöt er búið til þeg-
ar þau komu í heimsókn í reykhúsið í
Fagradal í vikunni. Þegar krakk-
arnir voru nýkomnir birtist Ket-
krókur að sjálfsögðu, sem alltaf er
fljótur að renna á hangikjötslyktina
og reyna að ná sér í eitt læri eða svo.
Björgunarsveitin Víkverji í Vík í
Mýrdal hélt nýlega upp á 40 ára af-
mæli sitt og bauð af því tilefni til há-
tíðar í húsi sveitarinnar í Vík. 150 til
170 gestir þáðu kaffi og kökur sem í
boði voru. Við það tækifæri skrifuðu
Sveinn Pálsson sveitarstjóri Mýr-
dalshrepps og Einar Bárðarson for-
maður Víkverja undir samstarfs-
samning um ýmsa þjónustu við
sveitarfélagið, svo sem snjómokstur,
umsjón með áramótabrennum og
fleira. Í staðinn styrkir hreppurinn
sveitina um eina milljón á ári næstu
þrjú árin. Tveir félagar úr björg-
unarsveitinni sem hafa unnið öt-
ullega með henni frá upphafi, voru
heiðraðir sérstaklega, en þeir voru
Reynir Ragnarsson og Magnús
Kristjánsson.
Klappstýrur er nokkuð sem allir
kannast við úr amerískum bíómynd-
um, en nú eiga Mýrdælingar orðið
eitt slíkt lið því að í vetur hafa nokkr-
ar stelpur úr Ungmannafélaginu
Kötlu í Mýrdalnum æft stíft og
hyggjast halda sína fyrstu jólasýn-
ingu næstkomandi miðvikudag í
íþróttahúsinu í Vík. Þjálfari liðsins er
Harpa Jónsdóttir.
FAGRIDALUR
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Undirskrift Einar Bárðarson frá
björgunarsveitinni Víkverja og
Sveinn Pálsson sveitarstjóri í Vík
skrifuðu undir samstarfssamning.
Faxaflóahafnir sf. auglýsa hér með til leigu tiltekin rými í
verbúðum við Grandagarð í Reykjavík.
Í skipulagi svæðisins er gert ráð fyrir verslun og þjónustu á
lóðum verbúðanna og Faxaflóahafnir sf. gera ráð fyrir því að í
leigurýmunum verði starfsemi sem dragi að fólk og stuðli að
fjölbreyttu mannlífi við Gömlu höfnina.
Örfirisey var í eina tíð þekkt aðsetur kaupmanna og hefur á
seinni árum eflst mjög á nýjan leik sem vettvangur verslunar,
viðskipta og þjónustu. Þarna er líka og verður miðstöð blómlegs
sjávarútvegs í höfuðborginni og merkilega menningarstarfsemi er
þar líka að finna.
Húsnæðið verður leigt í því ástandi sem það er. Leigjendum
er ætlað að annast innréttingu húsnæðisins að fengnu
samþykki Faxaflóahafna sf. og viðeigandi yfirvalda. Væntanlegir
leigusamningar verða án tímamarka en með gagnkvæmum sex
mánaða uppsagnarfresti.
Leigugjald verður 550 krónur +vsk. fyrir hvern fermetra á mánuði.
Rýmið sem leigt verður út:
Grandagarður 13: 35 fermetrar.
Grandagarður 15: 139 fermetrar.
Grandagarður 17: 69 fermetrar.
Grandagarður 19: 104 fermetrar.
Grandagarður 21: 104 fermetrar.
Grandagarður 25: 104 fermetrar.
Grandagarður 29: 104 fermetrar.
Grandagarður 35: 104 fermetrar.
Umsóknum skal skilað til hafnarstjóra Faxaflóahafna sf.
fyrir mánudaginn 11. janúar 2010 og skal þar jafnframt gerð
skilmerkileg grein fyrir fyrirhugaðri starfsemi eða rekstri í
viðkomandi verbúðarrými.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Laxdal, forstöðumaður
rekstrardeildar Faxaflóahafna, í síma 525 8900.
Verbúðir við Grandagarð
Tækifæri til athafna
í Örfirisey
A
T
H
Y
G
L
I