Morgunblaðið - 30.12.2009, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 30.12.2009, Blaðsíða 3
H V ÍT A H Ú S I /S ÍA 0 9 -2 2 9 8 Höfuðstólslækkun á erlendum lánum fyrirtækja Starfsfólk Íslandsbanka hefur undanfarið ár unnið að lausnum fyrir viðskipta- vini bankans, bæði einstaklinga og fyrirtæki. Úrlausnir fyrir einstaklinga voru kynntar fyrr á árinu en á nýju ári munum við kynna fyrirtækjum lausnir sem meðal annars fela í sér lækkun höfuðstóls erlendra lána. Þessum lausnum er ætlað að draga úr gengisáhættu og stuðla að traustari rekstrargrundvelli fyrirtækja. Hvernig virkar höfuðstólslækkunin? Höfuðstóll erlendra lána er lækkaður miðað við ákveðið gengi. Um leið er láninu breytt í íslenskar krónur. Hve mikil er lækkunin? Miðað við skráð gengi hjá Íslandsbanka þann 15. desember 2009 verður lækkunin um 25% að meðaltali. Geta öll fyrirtæki nýtt sér höfuðstólslækkun? Höfuðstólslækkun verður einungis í boði fyrir þau fyrirtæki sem eru með tekjur í íslenskum krónum og tóku erlend lán fyrir 15. október 2008. Lánin þurfa að vera í skilum. Hvernig lán falla undir þetta úrræði? Erlend lán fyrirtækja, þar með talin lán hjá Íslandsbanka fjármögnunvegna kaupa á bifreiðum, atvinnutækjum og atvinnuhúsnæði. Hvenær verður þessi lausn í boði? Fyrirtæki munu geta sótt um höfuðstólslækkun á fyrsta ársfjórðungi 2010. Íslandsbanki mun kynna nánari tímasetn- ingar á nýju ári. Í hnotskurn Íslandsbanki kynnir úrræði fyrir atvinnulífið • Fyrir fyrirtæki með erlend lán og tekjur í íslenskum krónum • Að meðaltali 25% lækkun höfuðstóls erlendra lána • Styrkir rekstrargrundvöll fyrirtækja og dregur úr gengisáhættu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.