Morgunblaðið - 30.12.2009, Blaðsíða 24
24 Daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2009
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
É
g lít á spádóma sem
ákveðna tegund af
skemmtun. Fólk á ekki
að taka þetta of bók-
staflega eða lifa eftir
því sem spámaðurinn segir. Spádóm-
ur er ágætis hugarnæring til að
bræða með sér hvað mann langar að
gera næst í lífinu,“ segir Halla him-
intungl, galdrakerling með meiru, en
hún hefur fengist við „spámixtúru“
undanfarin tuttugu ár.
„Í þeirri mixtúru skoða ég stöðu
stjarnanna hjá fólki, nota talnaspeki,
tarotspil og rúnir. Fólk getur valið
hvað það vill af þessu,“ segir Halla
sem býr líka til stjörnukort fyrir fólk
og hún er með spádómsaðstöðu í
versluninni Gjafir jarðar. Hún tekur
einnig að sér að hreinsa orkustöðvar
fólks sem og áru þess og einnig orku
húsa og hýbýla.
Spáir ekki þar sem
áfengi er haft um hönd
„Í gegnum tíðina hef ég verið með
stjörnuspekifyrirlestra, heimsóknir í
saumaklúbba og boð,“ segir Halla og
bætir við að tarotspilin séu fyrst og
fremst stuðningstæki. Hún er næm á
fólk og nærvera þess segir henni ým-
islegt.
„Fólk er með mismikinn varnar-
vegg, suma er hægt að lesa eins og
opna bók en aðrir eru með svo háan
varnarvegg að ekkert kemur frá
þeim. Ég hef engan áhuga á að spá
fyrir þeim sem bera enga virðingu
fyrir því sem ég er að gera. Það er
ekki til neins. Ég harðneita líka að
spá fyrir fólki þar sem áfengi er haft
um hönd.“
Skemmtilegra að spá
úti í náttúrunni
Hún segir mannfólkið ævinlega
hafa haft ríka tilhneigingu til að
skyggnast inn í framtíðina, fortíðina
og nútíðina.
„Völva, sú sem veit, vitrir menn og
framsýnt fólk, allt hefur það fylgt
okkur lengi og birtist í galdralækn-
um, seiðkörlum eða hverskonar
viskubrunnum sem fólk leitar til þeg-
ar það þarf ráðleggingar. En þetta
hefur þróast í aldanna rás og þó svo
að stjörnuspekin sé til dæmis mörg
þúsund ára gömul, þá á fólk að leyfa
sér að vera skapandi og búa til eitt-
hvað nýtt sem hentar tíðarandanum,
líka í þessum fræðum. Við megum
ekki vera íhaldssöm, við erum alltaf
að þróast og þroskast. Orkan í nútím-
anum er til dæmis miklu hraðari en
hún var fyrir hundrað árum og við
þurfum að taka mið af því.“
Höllu finnst skemmtilegast að spá
fyrir fólki úti í náttúrunni, helst við
heitan hver, því þar sé kraftur móður
jarðar svo sterkur. „Það eru kjör-
aðstæður. Ég spái líka stundum inni í
Samatjaldi sem vinkona mín á. Að-
stæður þurfa ekki aðeins að vera góð-
ar, mér þarf líka sjálfri að líða vel.
Stundum afboða ég mig ef ég er ekki
tengd inn í það að spá, þá hef ég ekk-
ert að segja.“
Árið 2010 verður gott ár
Halla er mikill heimshornaflakkari
og hefur bæði ferðast og búið á hinum
ýmsu stöðum í veröldinni og alltaf
tekur hún með sér tarotspilin sín.
„Erfiðasta ferðalag sem þessi spil
hafa farið í var þegar ég smyglaði
þeim inn í Sádi-Arabíu, en þar eru tar-
otspil stranglega bönnuð. Ég bar þau
þétt innanklæða og blessaði sjálfa mig
í bak og fyrir og setti yfir mig mikinn
huliðshjúp og slapp í gegn.“
Hún bjó í Taílandi í eitt og hálft ár
og segir skemmtilegt hvað Taílend-
ingar séu líkir Íslendingum að því
leyti að þeir elski að láta spá fyrir sér.
„Þar fer fólk mikið til munka og lætur
þá spá fyrir sér. Taílendingar fara
líka mikið eftir talnaspeki og eru
mjög draughræddir. Maður segir
ekki draugasögur þar í landi eftir sól-
setur.“
Halla er ánægð með stöðu tungla
annað kvöld, gamlárskvöld, og segir
fólk geta nýtt sér það til að njóta.
„Á morgun er fullt tungl í krabba
en það vekur ímyndunaraflið, þannig
að kvöldið getur orðið frábært og
„Árið 2010 er ár kraftaverka,
stórra og smárra.“
skemmtilegt fantasíukvöld. Ég hvet
fólk til að sleppa áfengi eða drekka
það í hófi, tunglstaðan er þannig.
Fólk á ekki að flýja í blekkingarnautn
áfengisvímunnar. Það á frekar að
leyfa sér að sprella og vera glatt án
vímuefna,“ segir Halla sem er bjart-
sýn á næsta ár.
Galdrar á
fullu tungli
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Halla himintungl Þar sem fullt tungl er á morgun hvetur hún fólk til að drekka áfengi í hófi. „Tunglstaðan er þannig.“
Áramót eru tímamót og þá vill fólk gjarnan gera
upp sín mál, byrja á einhverju nýju, setja sér
markmið og jafnvel kíkja aðeins inn í framtíðina.
Halla himintungl kíkir stundum í tarotspilin sín
fyrir fólk.
Hægt er að panta tíma hjá Höllu á
netfanginu:
hallahimintungl@gmail.com
eða í síma: 695-8283
TAROTSPIL eru eldgamalt fyr-
irbæri og sígaunar hafa ævinlega
verið duglegir að nota þau. Orðið
Tar kemur frá Ungverjalandi og
merkir spilastokkur. Tarotspil
eins og við þekkjum þau, komu
fyrst til Evrópu frá Indlandi á 14.
öld. Tarotspilin hennar Höllu hafa
fylgt henni undanfarin tuttugu ár
og eru orðin mátulega sjúskuð.
„Spilin mín eru svokölluð
Thoth-spil og koma frá honum
Alister Crowley. Allar helstu
nornir nota spil frá honum, en
þessi Breti var mjög klár á þessu
sviði og langt á undan sinni sam-
tíð. Það tók fimm ár að fullklára
spilin, hann lét hanna þau á ár-
unum 1938-1943. Listakonan
Frida Harris málaði hvert spil.
Stokkurinn inniheldur í raun sjö-
tíu og átta listaverk.“
Halla segir að sumir hafi mikl-
ar hefðir í kringum spilin sín og
vígi þau jafnvel með eigin blóði og
vilji ekki að aðrir snerti þau. „Ég
vil vera frjálsleg í þessu, ég vil
ekki láta gamlar hefðir hefta mig.
Ég vil að sem flestir snerti spilin
mín af því að við manneskjurnar
erum öll ljósbrot úr stórri sól. Við
erum öll af sama meiði. Með
snertingu sem flestra þá kjarnast
og magnast upp sú orka sem við
berum öll innra með okkur, í spil-
unum mínum. Ég hef líka lánað
öðrum spákonum spilin mín og
finnst þau verða betri fyrir vikið.“
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Tarotspil
HALLA ætlar að fremja tungl-
galdur á morgun, á síðasta degi
ársins.
Athöfnin hefst kl 15:15 í fjör-
unni í Gróttu, landmegin í norð-
vesturátt, ská á móti Gróttuvit-
anum.
Öllum er velkomið að taka þátt í
þessari tunglserímóníu.
„Á morgun er tunglmyrkvi og
fullt tungl í krabba. Tunglserí-
mónía felur í sér stórkostlegan
galdramátt til að sleppa taki á for-
tíðinni, losa um gömul mál sem
tengjast hvers konar misnotkun
og úr sér gengna ást. Við munum
kalla fram og styrkja kærleika,
frið og samhygð.
Á þessum degi er sólin í stein-
geitarmerkinu og verður í sam-
stöðu við Venus og Plútó og því er
mikilvægt að fólk losi um uppsafn-
aðar gamlar tilfinningastíflur, því
annars safnast þær saman og
springa með hvelli sem getur skað-
að alla er málefnið snertir,“ segir
Halla og bætir við að gömul speki
segi að hægt sé að sjá andlit tilvon-
andi lífsförunautar á fullu tungli.
„Þeir sem eru einhleypir eru því
hvattir til að spangóla af öllum lífs-
ins sálarkröftum og stara í tunglið
til að forvitnast um tilvonandi
maka.“
Eftirtalin atriði eru einna
áhrifaríkust og sterkust til að
vinna með á fullu tungli í krabba:
Sleppa taki á fortíðinni, efla fjöl-
skyldutengsl, skapa heimilislegt
öryggi, sigrast á höfnunarkennd,
magna upp kærleika og ást, fylgja
ávallt innsæinu.
„Það eina sem fólk þarf að koma
með er blað, blýantur, smá sprek
til að setja á varðeldinn, hunang
og djúpa skál til að láta vatn
standa í henni. Þeir sem vilja geta
líka komið með föt eða eitthvað
annað sem þá langar til að brenna
úr lífi sínu.
Svo er gott að taka líka hlýtt
teppi með sér,“ segir Halla og bæt-
ir við að líklega verði víkingagyðja
á staðnum sem muni kalla á land-
vættina.
Tunglgaldur á morgun