Morgunblaðið - 30.12.2009, Blaðsíða 36
36 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2009
✝ Jón Kristinn Han-sen kennari fædd-
ist hinn 7. nóvember
1934 á Eskifirði.
Hann lést á heimili
sínu hinn 19. desem-
ber síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Anna Kristín Jóns-
dóttir frá Eskifirði, f.
17.1. 1903, d. 24.2.
1998, og Martin Han-
sen (fæddur Torgilst-
veit) frá Harðangri í
Noregi, f. 19.2. 1905,
d. 3.4. 1987.
Jón kvæntist hinn 9. júní 1973
Ingibjörgu Júlíusdóttur kennara, f.
9.7. 1945. Foreldrar hennar voru
Kristín Símonardóttir, f. 14.7. 1926,
d. 27.9. 2006, og Júlíus Halldórsson,
f. 26.2. 1924, d. 4.10. 1998. Jón og
Ingibjörg eignuðust þrjár dætur. 1)
Kristín, f. 10.11. 1973. Maki Pálmi
Erlendson, f. 17.5. 1967. Synir
fimm. Þar fæddist systir Jóns,
Gyða, f. 3.9. 1942. Maki Gyðu var
Úlfar Guðmundsson, f. 2.5. 1940, d.
2.1. 2009. Þau eiga 3 börn og 3
barnabörn. Fjölskylda Jóns átti
sumarbústað í Varmadal í Mos-
fellsbæ og voru þau þar á sumrin
auk þess sem Jón fór nokkur sumur
í sveit. Jón gekk í Miðbæjarskólann,
Austurbæjarskóla og MR og tók
þaðan stúdentspróf árið 1954. Hann
gerði stuttan stans í Háskóla Ís-
lands og vann ýmis störf áður en
hann fór að kenna. Árið 1963 hóf
Jón kennslu við Austurbæjarskóla
og kenndi þar til ársins 1987. Sama
ár hóf hann kennslu við Seljaskóla
og kenndi þar til ársins 2001. Sem
kennari gekk Jón undir nafninu
Jón Marteinsson. Ingibjörg og Jón
byggðu hús í Yztaseli, Seljahverfi,
og bjuggu þar ásamt dætrum sínum
frá árinu 1978. Frá árinu 2001 hafa
Ingibjörg og Jón búið í Grafarvogi.
Útför Jóns fer fram frá Fossvogs-
kirkju í dag, miðvikudaginn 30.
desember 2009, og hefst athöfnin
kl. 11.
þeirra eru a) Jón
Logi, f. 14.11. 2000. b)
Baldur Máni. f. 27.9.
2004. Dóttir Pálma og
Hugrúnar Hólmgeirs-
dóttur, f. 29.6. 1970, c)
Álfrún, f. 29.8. 1992.
2) Hildur, f. 17.3.
1977. Maki I) Ásgeir
Örn Ásgeirsson, f. 7.6.
1973. Dætur þeirra
eru a) Valgerður, f.
26.3. 1999. b) Gunn-
hildur, f. 6.8. 2002.
Maki II) Steindór S.
Guðmundsson, f. 24.7.
1972. Dóttir þeirra er c) Ásdís, f.
17.2. 2009. 3) Gerður, f. 7.6. 1979.
Maki Hannes Helgason, f. 30.7.
1977. Dóttir þeirra er Iðunn Anna,
f. 25.10. 2006.
Jón dvaldi með fjölskyldu sinni í
Noregi árin 1938-’39. Frá 1940 bjó
fjölskyldan á Njarðargötu 35 ásamt
systur Önnu og dætrum hennar
Að morgni 19. desember sat ég við
rúmið hans Jóns með bók sem ég
hafði sótt úr bókahillu hans. Ég sagði
honum að ég væri að glugga í Sögu
mannsandans eftir Ágúst H. Bjarna-
son og þóttist sjá kunnuglega bro-
svipru. Þessa brosvipru og glampa í
augum hafði ég margoft séð um
sumrin sem ég eyddi á Nausta-
bryggju í doktorsnáminu þar sem ég
stóð oft upp frá rannsóknarvinnu og
dreypti á óþrjótandi viskubrunni
tengdaföður míns. Það breytti engu
hvert umræðuefni okkar var því allt-
af gat Jón fundið áhugaverðan og
óhefðbundinn flöt á viðfangsefninu.
Áreynslulaust tókst honum að krist-
alla hugsanir sínar í orð.
Þennan morgun þar sem ég sat við
hlið Jóns hafði ég af tilviljun opnað
bókina í kafla um heimspekinginn
Epiktet. Þar fann ég ýmislegt sem
minnti á umræðuefni okkar Jóns og
sumt hefði getað verið bein lýsing á
manngerð hans: „Ekki getum vér
gert að, hvað oss kann að detta í hug,
en eitt er oss sjálfrátt, hvaða siðferði-
legt markmið vér setjum oss og hvort
vér breytum samkvæmt því.“ Frá
þessum morgni hefur hins vegar end-
urómað í huga mér önnur setning úr
þessum kafla: „Seg þú aldrei um
neitt: „Ég hef misst það.“ heldur að-
eins: „Ég hef skilað því aftur.““
Hvíldu í friði, vinur.
Þinn tengdasonur,
Hannes Helgason.
Elskulegur mágur, Jón Kr. Han-
sen, er fallinn frá. Kennari af guðs
náð, lífskúnstner og veiðimaður, eig-
inmaður og faðir.
Leiðir okkar Jóns lágu fyrst sam-
an þegar hann kenndi mér í Austur-
bæjarskólanum fyrir margt löngu.
Þá var hann að hefja kennsluferil
sinn og var afburðakennari, glöggur,
strangur, vel að sér í kennsluefninu
og sýndi nemendum sínum áhuga og
alúð. Þannig sinnti hann kennslunni
alla tíð og kunna margir nemendur
honum þakkir fyrir frábæra kennslu.
Allnokkrum árum síðar giftist
hann stóru systur minni og varð
þannig hluti af fjölskyldunni. Sá Jón
sem ég þá kynntist var vakinn og sof-
inn yfir velferð fjölskyldunnar. Hans
stolt og metnaður voru dæturnar
þrjár, menntun þeirra, velferð, heill
og hamingja. Segja má að þær hafi
staðið undir þeim væntingum öllum,
hver á sinn hátt.
Heimili hans og systur minnar í
Ystaselinu stóð alltaf opið fyrir
frændsystkinunum og nutu börnin
mín góðs af, enda á svipuðum aldri.
Þau hjón höfðu unun af ferðalögum
og oft var farið í útilegu eða leigður
bústaður. Munaðarnesferðirnar
forðum þegar krakkarnir voru litlir
voru sérstaklega ánægjulegar. Jón
hafði yndi af sígildri tónlist og þau
hjón lögðu áherslu á að dæturnar
lærðu á hljóðfæri. Gekk það allt eftir
og spilar Kristín á fiðlu, Hildur á
selló og Gerður á kontrabassa.
Tengdasynirnir eru einnig liðtækir
þegar kemur að tónlistinni og hafa
verið settar upp hljómsveitir af ýms-
um tilefnum í fjölskyldunni. Nú eru
barnabörnin tekin við í tónlistarnám-
inu.
Jón var ástríðufullur veiðimaður.
Silungsveiði í Meðalfellsvatni á sum-
arkvöldi var þar hápunkturinn og
ferðirnar oft rifjaðar upp yfir vetur-
inn. Jón átti ekki langt að sækja
veiðibakteríuna því Marteinn faðir
hans var afburðasnjall stangveiði-
maður. Hjónin höfðu líka alltaf mikla
ánægju af gönguferðum og leið vart
sú helgi að ekki væri farið í eina slíka.
Á meðan dæturnar voru ungar voru
þær ekki alltaf jafnánægðar með
þessa háttsemi foreldranna, en síðar
lærðu þær að meta gildi útiverunnar
og tóku upp siði foreldranna.
Á seinni árum hefur fjölskyldan
stækkað og tengdasynir og barna-
börn orðið fyrirferðarmeiri. Jón hef-
ur látið sér jafnannt um hvert og eitt
þeirra og þau hjón hafa meira að
segja lagt það á sig að búa einn vetur
í Svíþjóð til að geta verið nær barna-
börnunum í Uppsala.
Jón tók ákvarðanir eftir að hafa
farið vandlega yfir mál, vegið og met-
ið kosti og galla og fært rök að nið-
urstöðu. Hvatvísi var ekki að hans
skapi heldur var afstaða hans ætíð
ígrunduð í öllum málum. Jón hafði
alla tíð lifandi áhuga á þjóðfélagsmál-
um og bar hag lítilmagnans fyrir
brjósti. Oft höfum við hjónin setið og
gert úttekt á málum líðandi stundar
með Ingibjörgu og Jóni. Síðustu
mánuði, orðinn máttfarinn og heilsu-
laus, undi hann löngum við sjónvarp-
ið og fylgdist með umræðum í beinni
útsendingu frá Alþingi.
Ég kveð minn góða mág og votta
systur minni, dætrunum og fjöl-
skyldunni allri mína dýpstu samúð.
Lára V. Júlíusdóttir.
Vinur minn Jón Kristinn Hansen
er dáinn. Fyrstu minningar mínar
um Jón eru frá leikjum krakkanna í
hverfinu okkar sem markaðist af
Njarðargötu og Baldursgötu annars
vegar og hins vegar af Freyjugötu og
Bergstaðastræti. Jón var fjórum ár-
um eldri en ég og því oft í fararbroddi
í leikjunum.
Í raun var Reykjavík öll leiksvæði
okkar því að Reykjavík var einungis
lítill bær í miklum vexti á þessum
tíma.
Þegar við vorum komnir á ung-
lingsár var Jón í vinahópi bróður
míns Guðmundar Jóhanns. Hópurinn
hafði aðsetur í neðri stofunni á
Kambi, Urðarstíg 7a þar sem við
systkinin þrjú ólumst upp. Þessum
vinahópi kynntist ég því vel og
áhugamálum þeirra. Þrennt stóð upp
úr í þessum efnum, klassísk músík,
tafl og íþróttir. Þótt ég væri yngri
lærði ég að meta klassíska músík sem
spiluð var af vínylplötum í stofunni
sem og að tefla. Beethoven og Bach
voru efstir á listanum. Ég sé ennþá
fyrir mér hópinn að tefla hraðskák í
stofunni, hlustandi með öðru eyranu
á músíkina. Einnig man ég vel eftir
þeim hlaupandi hundrað metra hlaup
á Urðarstígnum og þá var tíminn
mældur nákvæmlega á skeiðklukku.
Jón spilaði stundum á harðangurs-
fiðlu föður síns, Martins Hansens
Torgilstveits en Martin spilaði
norska þjóðlagamúsík af mikilli snilld
á skelplötuskreytta fiðluna.
Örlögin höguðu því þannig til að
við Jón urðum perluvinir og bar aldr-
ei skugga á. Ég var heimagangur hjá
þeim Önnu og Martin árum saman og
kynntist því öllu frændfólkinu sem
tengdist honum á Njarðargötu 35.
Jón var mikill veiðimaður eins og
Martin, faðir hans og fór oft með hon-
um og veiðifélögunum í laxveiðiferð-
ir. Ég man eftir því að þeir feðgar
voru að reyna að kenna mér flugu-
kast og hnýta flugu og í sumarbú-
staðnum í Varmadal var Martin að
kenna okkur að skjóta í mark.
Jón hóf ungur kennslu hjá Arn-
finni Jónssyni í Austurbæjarskólan-
um og féll strax vel inn í hina marg-
frægu kennaraelítu skólans. Það
varð síðan ævistarf Jóns að kenna
unglingum. Allir vita, sem reynt hafa,
að kennsla unglinga á þessu við-
kvæma æviskeiði er eitt erfiðasta
starf í henni veröld. Ég þekki engan
sem náð hefur slíkum tökum á þess-
ari kennslu sem Jón og skipti engu
máli hvaða grein hann kenndi. Þakk-
látastir voru þeir sem átt höfðu í erf-
iðleikum að læra stærðfræði, þeir
voru allir sammála um að hann hefði
verið þeirra bjargvættur.
Í einkalífinu var Jón mikill gæfu-
maður. Hann eignaðist góða konu,
Ingibjörgu Júlíusdóttur, og með
henni þrjár dætur, Kristínu, Hildi og
Gerði.
Við hjónin færum Ingibjörgu,
dætrunum og fjölskyldum þeirra
okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Guðlaugur Rúnar Guðmundsson.
Í Austurbæjarskólanum kynnt-
umst við Jóni Marteinssyni Hansen,
en hann réðst til kennslu þar árið
1963. Sá kunningsskapur varð smám
saman að vináttu sem engan skugga
hefur á borið.
Í starfi sínu var Jón nákvæmur og
skyldurækinn og áhugasamur um
framgang nemenda sinna. Hann gat
séð í gegnum fingur sér við menn
vegna breyskleika og vangetu en
fúsk og hyskni þoldi hann alltaf afar
illa. Sjálfur lagði Jón alltaf mikla alúð
við allt sem hann tók sér fyrir hend-
ur.
Jón var dagfarsprúður maður en
skapmikill og gat funað upp ef því var
að skipta en sáttfús og alla jafna glað-
ur í bragði.
Við félagarnir tókum snemma upp
þann sið að fara dagstund í veiði við
skólalok á vorin og komumst þá að
því hver veiðikló Jón var. Hann hafði
vanist því frá unga aldri að fara með
föður sínum og félögum hans í veiði-
ferðir í ýmsar ár landsins og það
duldist okkur ekki hvað minningarn-
ar um þessar ferðir hans með föður
sínum voru honum dýrmætar og
vafalaust hefur Martin haft ánægju
af að leiðbeina þessum athugula og
skarpa syni sínum.
Í einkalífi sínu var Jón gæfumað-
ur. Árið 1973 kvæntist hann sinni
góðu konu, Ingibjörgu Júlíusdóttur,
og eignuðust þau þrjár dætur. Ingi-
björg og Jón hafa verið sérlega sam-
hent hjón og vakað yfir velferð fjöl-
skyldu sinnar. Á undanförnum árum
hafa barnabörnin komið hvert af
öðru og glatt afa sinn og ömmu.
Eins og gengur í lífinu greinast
leiðir manna og svo hefur líka verið
um leiðir okkar félaga. Vinátta okkar
hefur þó aldrei rofnað og við fylgst
hver með öðrum ef „vík hefur verið
milli vina“.
Á seinni árum höfum við farið í
nokkurra daga ferðir síðsumars
ásamt mökum okkar, sjálfum okkur
og félagsskap okkar til mikillar
hressingar. Síðustu ferðina fórum við
austur á land fyrir rúmu ári, meðal
annars til Eskifjarðar, en þar var Jón
fæddur. Allmikið var heilsu hans þá
farið að hraka, en hann lét sig hafa
það og hafði gaman af.
Það hefði ekki verið Jóni að skapi
að hér væri farið með mærðarþulu,
en samskipti okkar við Jón Marteins-
son Hansen eru orðin löng og góð og
nú þegar göngu hans er lokið hér,
langar okkur að minnast hans með
nokkrum orðum, þakka honum sam-
fylgdina og kveðja góðan dreng og
góðan vin.
Ingibjörgu og fjölskyldu þeirra
Jóns biðjum við blessunar.
Björn og Margrét, Hjalti
og Arnfinnur.
Í uppvextinum bjó Jón Marteins-
son Hansen á Njarðargötunni og
hjarta hans sló með þeim rauðu í Val.
Jón talaði tæpitungulaust um
frammistöðu sinna manna á knatt-
spyrnuvellinum en lét samt ekki til-
finningarnar hlaupa með sig í gönur.
Hann var málefnalegur og fór alltaf í
boltann, eins og sagt er, en aldrei í
manninn. Þeir Arnfinnur félagi hans
fóru stundum á völlinn. Þeir héldu
með Val en að öðru leyti kann ég ekki
að skipa Jóni í félög eða flokka. Á
áratuga kennaraferli kynntist hann
og kenndi fleiri hundruð unglingum.
Fyrst í Austurbæjarskóla og síðar í
Seljaskóla, en þá hafði hann flutt í
Seljahverfið með fjölskyldu sinni.
Jón var ekki sá sem gustaði af með
gassagangi. Ég heyrði hann aldrei
brýna raustina þó að hann hafi ef til
vill einhvern tíma gripið til þess ráðs í
kennarastarfinu. Mál hans var hreint
og milt og miðaði ávallt til gagns fyrir
aðra menn. Þeir nemenda hans sem
ég þekki bera honum fagurt vitni.
Jón var hófsamur og hafði stjórn á lífi
sínu og starfi. Jón átti norskar rætur
og dvaldi tæp tvö ár í Noregi á unga
aldri. Faðir hans var frá Harðangri.
Jón var stoltur af norskum uppruna
sínum og átti í honum skjól og vörn
við þeim kjánahrolli sem stjórnmál
og ófagmennska vekja með Íslend-
ingum, endrum og sinnum. Jón var
afbragðs veiðimaður í ám og vötnum.
Ég man ekki hvort hann skaut fugla.
Hann hafði yndi af ferðalögum og
náttúrunni og sagði skemmtilega frá.
Þegar hann gekk í hjónaband og
dæturnar komu í heiminn, ein af ann-
arri, dró úr laxveiðiferðunum. Úti-
verunnar naut hann áfram í ríkum
mæli með konu sinni og dætrum. Við
Jón töluðum um knattspyrnu, fiska
og önnur dýr í náttúrunni, veiðiskap,
gróður og gróðurfar og mannlega
breytni. Ég hafði meira orðið um
knattspyrnu, hann fræddi mig um
allt hitt og tónlist að auki. Að frátöld-
um knattspyrnumönnum töluðum við
ekki um einstaklinga nema almennt.
Jón talaði vel um fólk. Lét annars
vera að tala um það. Við ræddum
ekki um stjórnmál nema til að átta
okkur á afleiðingum stjórnarathafna.
Um trúmál ræddum við ekki en Jón
var þó sannkristin manneskja og
hafði yndi af kirkjutónlist. Það er til
merkis um gæfu Jóns og lífsvit að
hann dó á heimili sínu umvafinn mat-
arilmi og hlýju. Hjá honum voru kona
hans, dæturnar, tengdasynir og
barnabörnin. Þeim öllum og systur
hans votta ég samúð. Hjá mér lifir
minning um einn þann besta mann
sem ég hef kynnst.
Þorsteinn Haraldsson.
Kveðja frá Seljaskóla
Jón Kr. Hansen hét hann, en minn-
ingarnar eigum við um manninn,
kennarann og félagann Jón Mar-
teinsson, eins og hann var alltaf kall-
aður í skólanum. Jón kenndi um ára-
bil við skólann. Við vorum ekki illa
sett á þeim árum í Seljaskóla með all-
ar þessar stórbrotnu persónur í
starfsliði skólans, Hjalta Jónasson
skólastjóra, Jóhönnu Þorgeirsdóttur,
Málfríði Önnu Guðmundsdóttur, Jón
Marteins. og Ásgeir Pálsson. Við sem
yngri vorum í starfsliðinu eigum
margar góðar minningar um þau og
samræður þeirra á kennarastofunni.
Þá var nú ekki alltaf lognmollan. Þau
höfðu öll miklar skoðanir á hlutunum.
Af þessum kjarnahópi eru Jóhanna
Þorgeirsdóttir og Jón Marteinsson
nú horfin á braut.
Jón naut mikillar virðingar meðal
nemenda sinna og samstarfsfólks.
Það fór einstakt orð af honum sem
kennara. Hann var kennari af lífi og
sál, gat verið strangur en mjög stutt í
hlýjuna og glettnina. Hann var líka
réttlátur, gerði kröfur en var mjög
umhugað um nemendur sína. Hann
kenndi íslensku og stærðfræði í ung-
lingadeild skólans. Það var sama
hvor greinin var, hann var jafnvígur
á þær báðar. Það komst enginn hjá
því að læra hjá Jóni hvort sem það
var íslenska eða stærðfræði. Veit ég
að margir nemendur Jóns minnast
hans með mikilli þökk og virðingu.
Margs er að minnast. Umsjónarnem-
endum Jóns í unglingadeild eitt árið
þótti hann ganga um á heldur léleg-
um og úr sér gengnum inniskóm í
skólanum og færðu honum glænýja
fallega brúna klossa að gjöf. Varð
Jón mjög kátur með þessa umhyggju
nemendanna og notaði þessa brúnu
klossa ævinlega síðan í skólanum.
Vakti þessi gjöf mikla athygli og kát-
ínu meðal starfsfólks og nemenda.
Jón var ekki síður kennari kenn-
aranna í skólanum. Margar ferðirnar
áttu þeir í stofu 41 til Jóns til að leita
ráða og fá leiðbeiningar um hvernig
best væri að matreiða þetta eða hitt
stærðfræðidæmið ofan í nemendur,
flókin íslensk málfræðiatriði eða tor-
skilin tengsl manna í Gíslasögu.
„Hvernig myndir þú kenna þetta
Jón?“ var spurt og alltaf átti Jón góð
ráð. Enginn fór tómhentur úr smiðju
hans.
Við kvöddum Jón með söknuði
þegar hann lét af störfum við skólann
fyrir aldurs sakir, en við vissum að
hann mundi njóta stunda lífsins með
Ingibjörgu konu sinni, dætrunum
þremur og þeirra fjölskyldum. Við
eigum margar góðar minningar um
góðan vin og félaga og biðjum góðan
Guð að styrkja Ingibjörgu, dæturnar
og fjölskyldur þeirra í sorginni.
Blessuð sé minning hans.
Margrét Árný Sigursteinsdóttir.
Jón Kristinn Hansen
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samhug og hlýhug við andlát og útför föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
BJÖRNS MARINÓS DÚASONAR,
Hornbrekku,
Ólafsfirði.
Sigríður Vilhjálms, Kristinn Gíslason,
Helga Björnsdóttir, Halldór Jónsson,
Sigurður Björnsson, Margrét Sigurgeirsdóttir,
Birna Björnsdóttir, Reynir Jónsson,
Herdís Björnsdóttir, Guðmundur Guðmundsson,
Edda Bragadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.