Morgunblaðið - 30.12.2009, Blaðsíða 41
Dagbók 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2009
Sudoku
Frumstig
2 8 6 5
3
1 2
2 3 7 5 6
1 8 2 9 3
6 8
5 8 7
1 9
7 8 9
6 2 3 7 8
3 5
7 2
4 8
5 6
9 7 5
4 6 3
6 9 8 5
3 2 8
7 9 8
5 2 6
6 2 4 1
3 4
8 9 2
7 5
3 1 6 5
4 7 3 1
1 7 3 5 8 9 2 6 4
9 6 5 3 2 4 7 8 1
2 4 8 1 7 6 3 9 5
3 1 7 6 5 8 9 4 2
6 8 2 4 9 7 5 1 3
5 9 4 2 3 1 6 7 8
4 5 1 7 6 2 8 3 9
8 2 6 9 1 3 4 5 7
7 3 9 8 4 5 1 2 6
1 6 8 2 3 4 9 5 7
5 2 3 8 7 9 6 1 4
7 9 4 6 1 5 3 2 8
2 5 6 1 4 3 8 7 9
8 3 7 5 9 2 1 4 6
4 1 9 7 6 8 5 3 2
6 4 1 3 8 7 2 9 5
9 8 2 4 5 1 7 6 3
3 7 5 9 2 6 4 8 1
3 8 5 4 1 9 2 7 6
9 6 2 8 3 7 1 5 4
7 1 4 6 2 5 8 9 3
1 2 3 5 7 6 4 8 9
5 4 6 9 8 1 7 3 2
8 7 9 2 4 3 5 6 1
4 9 7 3 5 2 6 1 8
6 5 8 1 9 4 3 2 7
2 3 1 7 6 8 9 4 5
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er miðvikudagur 30. desember,
364. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Breyttu ekki eftir því, sem illt er,
minn elskaði, heldur eftir því, sem gott er. Sá
sem gott gjörir heyrir Guði til, en sá sem illt
gjörir hefur ekki séð Guð. (3. Jh 11.)
Víkverji fylgdist gáttaður með þvíhvernig kvennalið Vals í hand-
bolta var slegið út í bikarkeppninni á
mánudag. Fyrst fékk þjálfari Vals-
manna vilyrði þjálfara andstæðing-
anna, Hauka, fyrir því að nota leik-
mann, sem ekki verður löglegur fyrr
en eftir áramót, í leiknum. Þegar
Haukar síðan töpuðu ákvað stjórn
félagsins að hafa orð þjálfarans að
engu og kæra leikinn vegna hins
ólöglega leikmanns. Handbolta-
sambandið dæmdi sigurinn um-
svifalaust af Valsstúlkum, sem sátu
eftir með sárt ennið. Þær gátu
reyndar sjálfum sér um kennt og
spurning hvers vegna í ósköpunum
ekki var hægt að bíða í nokkra daga
með að leyfa hinum nýja leikmanni
að spreyta sig. Á hinn bóginn spurðu
Valsararnir andstæðingana hvort í
lagi væri að nota leikmanninn og
gátu því varla gert ráð fyrir því að
leikurinn yrði síðan kærður. Þetta er
ekki aðeins vafasöm framkoma í
garð Vals, heldur ber einnig vitni
heldur lítilli virðingu stjórnar félags-
ins fyrir orðum þjálfara Hauka,
Díönu Guðjónsdóttur. Víst er að í
herbúðum Valsara voru margir súrir
eftir þessa útreið. Haukarnir strönd-
uðu hins vegar á næsta skeri og töp-
uðu fyrir Frömmurum í úrslitum.
x x x
Boltinn lýgur ekki,“ tuldraði leik-maður einn, sem var upp á sitt
besta í NBA-körfuboltanum fyrir
mörgum árum, alltaf þegar skot
andstæðings, sem hann átti að hafa
brotið á, geigaði á vítalínunni. Liðs-
menn Vals hafa kannski hugsað það
sama þegar úrslitin lágu fyrir í bik-
arkeppninni á mánudagskvöld.
x x x
Þar koma að snjóaði sunnanlandsog því ljóst að sleðar komu ekki
bara upp úr jólapökkum til að ryk-
falla. Þótt kalt væri í veðri var sæg-
ur af krökkum í Plútóbrekkunni á
Seltjarnarnesi í gær og sú hefur
ugglaust einnig verið raunin í öðrum
brekkum. Síðan er bara spurning
hversu langt þess er að bíða að
snjórinn verði nægur til að hægt
verði að fara á skíði í Bláfjöllum.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 kústum, 4 tré,
7 blítt, 8 lélegrar
skepnu, 9 traust, 11
skordýr, 13 úrgangur,
14 skerandi hljóð, 15 úr-
þvætti, 17 streita, 20
kona, 22 skolli, 23 bítur,
24 ílátið, 24 ákvarða.
Lóðrétt | 1 sjávardýrum,
2 kurteisu, 3 södd, 4
ódrukkinn, 5 hnífar, 6
rödd, 10 verkfæri, 12
auðug, 13 ósoðin, 15
hyggin, 16 erfingjar, 18
skrökvar, 19 grúinn, 20
ró, 21 þyngdareining.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 afslöppun, 8 fornt, 9 niðið, 10 ann, 11 akkur, 13
arðan, 15 úthaf, 18 áfátt, 21 úlf, 22 nafns, 23 aftan, 24
hagnýting.
Lóðrétt: 2 fersk, 3 litar, 4 pinna, 5 urðað, 6 efla, 7 áðan,
12 uxa, 14 rif, 15 úfna, 16 hafna, 17 fúsan, 18 áfast, 19
ástin, 20 tonn.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Þegar skákmenn eru upp við vegg og
þurfa á sigri að halda þá geta þeir
teygt sig það langt í vinningstilraunum
sínum að í stað þess að standa aðeins
betur að vígi þá sitja þeir skyndilega
uppi með tapað tafl. Rússneski stór-
meistarinn Alexander Grischuk (2736)
varð fyrir barðinu á þessu fyrir
skömmu þegar hann þurfti með svörtu
að leggja landa sinn Dmitry Jako-
venko (2736) að velli til að jafna metin í
einvígi þeirra á heimsbikarmóti FIDE
í Khanty-Mansiysk í Rússlandi. Grisc-
huk lék síðast 62…Kg2-f1?? sem var
svarað með 63. Ke3! og eftir 63…Hd5
64. Bf2! gafst svartur upp þar sem
hann var óverjandi mát.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Stilling og vanstilling.
Norður
♠G963
♥D4
♦D84
♣9873
Vestur Austur
♠4 ♠D1052
♥9876 ♥KG103
♦G95 ♦ÁK102
♣G6542 ♣10
Suður
♠ÁK87
♥Á52
♦763
♣ÁKD
Suður spilar 4♠.
„Þögn er dyggð,“ hugsaði austur,
ánægður með sjálfan sig. Hann hafði
látið á móti sér að dobla 4♠ og taldi víst
að spilið færi niður. Út kom ♥9, sagn-
hafi stakk upp ♥D og dúkkaði kónginn.
Austur tók bókina með ♦Á-K, spilaði
♥G og hallaði sér aftur í sætinu – bjóst
við að uppskera 1-2 slagi á tromp fyrir
stillingu sína í sögnum.
Það fór á annan veg. Sagnhafi drap á
♥Á, spilaði svo óvænt tígli á drottningu
og ♠G úr borði. Drap drottningu aust-
urs, trompaði hjarta og svínaði fyrir
spaðatíuna. Unnið spil. Hvað kom til?
Jú, því sem austur þagði yfir í sögnum
kjaftaði hann frá í vörninni. Sagnhafi
velti einfaldlega fyrir sér hví austri lá
svona lífið á að taka tígulslagina? Og
svarið blasti við.
Hrútur Láttu aðra ekki eyðileggja fyrir
þér friðinn. Taktu þér tak og hristu upp í
hlutunum, annars áttu á hættu að missa
af strætisvagninum. Gott samband krefst
vinnu.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Gættu þess að skapa ekki stærri
vandamál með framkomu þinni en þau
sem þú ætlar að leysa. Góðar hugmyndir
spretta fram.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Fólk dæmir aðra ekki síður af
hegðun þeirra en því sem þeir segja. Jafn-
aðu ágreining milli þín og þinna, sama
hvað það kostar og sama hvað það tekur
langan tíma.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þér líður dásamlega með hvernig
hlutirnir ganga fyrir sig. Margir dauð-
öfunda þá sem er lagið að tala frjálslega
við aðra. Kannski þú ættir að nota þann
hæfileika betur?
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þér er nauðsynlegt að gera verk-
efnalista og halda þig sem mest við hann,
annars fer tíminn í tóma vitleysu. Nú er
rétti tíminn til að hugsa um áramóta-
heitið.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Það er betra að segja hug sinn en
þegja þunnu hljóði. Eyddu öllum vafa hjá
ástvini. Óvænt heimsókn vekur upp
spurningar og vinur vill fá svör.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Sættu þig aldrei við annað en það
besta þótt þú þurfir að leggja svolítið
meira á þig. Ekki dæma þig of hart, þú ert
nógu góð/ur.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Vináttan skiptir mestu máli
þessa mánuðina. Heimilið er þitt vígi, það
er griðastaður þinn og fjölskyldunnar.
Ekki láta neitt breyta því.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Samstarfsfólkið er hjálpsemin
uppmáluð. Þú ert beðin/n um greiða en þú
efast um að þú getir orðið að liði. Mundu
að hugsa um heilsuna.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú ert ekki kvartsár, en það
sem þú ert óánægð/ur með verður að um-
ræðuefni núna. Athugaðu matarvenjur
þínar, þar mætti taka aðeins til.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Umburðarlyndi er einn af þín-
um góðu kostum. Nýttu tækifærið þegar
boð um ferð út á land berst. Þú átt ekki
eftir að sjá eftir því.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Eyddu orku í smáatriðin og þá sjá
aðalatriðin um sig sjálf. Skilningur þinn á
sálarlífi annarra er aðdáunarverður. Opn-
aðu budduna varlega á útsölunum.
Stjörnuspá
30. desember 1883
Kirkjuhljómleikar, þeir
fyrstu hér á landi, voru
haldnir í Dómkirkjunni í
Reykjavík, við mikla aðsókn.
Um var að ræða samsöng
karla og kvenna, einsöng og
einleik á orgel og horn.
30. desember 1887
Bríet Bjarn-
héðins-
dóttir, sem
þá var 31
árs, flutti
fyrirlestur í
Góðtempl-
arahúsinu í
Reykjavík
um kjör og
réttindi kvenna. „Þetta er í
fyrsta sinn sem kvenmaður
hér á landi heldur opinber-
an fyrirlestur,“ sagði í Fjall-
konunni. „Munu fæstir hafa
búist við jafn góðri frammi-
stöðu af sjálfmenntuðum
kvenmanni,“ sagði í Ísafold.
30. desember 1935
Níu manns fórust er eldur
kom upp á jólatrés-
skemmtun í samkomuhúsi
ungmennafélagsins í Kefla-
vík. Húsið brann á hálfri
klukkustund. Um 190 manns
komust út, þar af nokkrir
slasaðir. „Hryllilegur stór-
bruni,“ sagði Morgunblaðið.
Þetta var sagt mesta mann-
tjón í eldsvoða á síðari ár-
um.
30. desember 1980
Landflótta Frakka, Patrick
Gervasoni, var vísað úr
landi eftir miklar deilur.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Georg Franz-
son, áður til
heimilis í Vest-
urbyggð 3, Laug-
arási, Biskups-
tungum, verður
áttræður 2. jan-
úar næstkom-
andi. Hann býður
ættingjum og
vinum til kaffisamsætis á afmæl-
isdaginn milli kl. 14 og 17 í Græn-
umörk 5, Selfossi.
80 ára
„ÉG ætla bara að fresta afmælisboðinu fram í jan-
úar,“ segir Ásdís Guðný Guðmundsdóttir, kjóla-
klæðskeri, sem í dag er fertug. Hún segir ekki tek-
ið út með sældinni að eiga afmæli milli jóla og
nýjárs. „Maður hefur eiginlega ekki orku til að
bjóða fólki og býst ekki við fólki í partí daginn fyr-
ir áramót.“ Hún segir þó að afmælisdagurinn hafi
haft þann kost í þegar hún var barn að ekki var
sunginn fyrir hana afmælissöngurinn í skólanum.
„Ég var voðalega fegin því.“
Ásdís kveðst þó vera dálítið afmælisbarn í sér
og hefur gaman að því að eiga afmæli. Í ár mun
hún hafa það náðugt á sjálfan afmælisdaginn og fara með fjölskyld-
unni í bíó að sjá myndina Avatar og mögulega bjóða foreldrum sínum
í kaffi. Hún er einnig mikið jólabarn og er því yfir mörgu að gleðjast í
lok hvers árs.
Auk afmælis, jóla og ármóta stendur Ásdís í ströngu í vinnunni en
hún starfar hjá búningadeild Þjóðleikhússins. Þar hefur hún haft í
nógu að snúast við söngleikinn Ólíver! sem frumsýndur var á annan í
jólum. „Það er búið að vera brjálað að gera, ég hef aldrei upplifað
annað eins,“ segir afmælisbarnið og hlær. skulias@mbl.is
Ásdís Guðný Guðmundsdóttir fertug
Afmæli Avatar, jól og Ólíver!
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is