Morgunblaðið - 27.02.2010, Side 44
44 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2010
Sudoku
Frumstig
3 1 2
9 7 6 1
5 6
6 4 1
2 9
5 4 1 9
4 7
5
3 1 6 5 9
8
6
7 2 5 8 3
5 3 2 8
4 7 1 5
4 2
8 6
4 6
3 1 7
7 8 3
1 2
3 4
2 7
9 7 4 2 3 8
9 1 5
2 1 8 3
4
2 4
2 7 4 9 8 6 5 3 1
8 3 1 2 5 4 7 9 6
9 5 6 7 3 1 2 4 8
4 2 7 3 6 9 1 8 5
5 1 8 4 7 2 9 6 3
3 6 9 8 1 5 4 2 7
6 4 5 1 2 3 8 7 9
1 8 2 6 9 7 3 5 4
7 9 3 5 4 8 6 1 2
8 4 3 6 7 2 1 5 9
1 9 6 5 4 8 2 7 3
2 7 5 9 1 3 4 6 8
5 1 9 4 8 6 7 3 2
4 3 7 2 5 9 6 8 1
6 2 8 1 3 7 5 9 4
7 5 1 8 9 4 3 2 6
9 6 4 3 2 5 8 1 7
3 8 2 7 6 1 9 4 5
5 1 3 9 4 2 8 7 6
7 9 2 3 8 6 5 1 4
6 8 4 7 5 1 2 3 9
3 2 7 6 1 8 4 9 5
4 6 1 5 9 3 7 2 8
9 5 8 4 2 7 1 6 3
2 7 9 8 3 5 6 4 1
8 4 6 1 7 9 3 5 2
1 3 5 2 6 4 9 8 7
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er laugardagur 27. febrúar,
58. dagur ársins 2010
Orð dagsins: Ég er Drottinn, það er
nafn mitt, og dýrð mína gef ég eigi öðr-
um né lof mitt úthöggnum líkneskjum.
(Jesaja 42, 8.)
Ótrúlegt er að fylgjast með hvaðómálga börn geta verið dugleg
að bjarga sér í samskiptum. Örfá orð
geta nýst vel. Víkverji hefur sérstaka
ánægju af því að fylgjast með rúm-
lega eins árs dreng læra á lífið.
x x x
Eitt af fyrstu orðunum semdrengurinn lærði var „nei“.
Hann leggur sama skilning í orðið og
aðrir, það er svo sannarlega neitun í
hans munni – og þegar mikið liggur
við kemur einnig höfuðhreyfing sem
ekki er möguleiki á að misskilja.
x x x
Takk“ er vinsælt hjá litla kútnum.Það hefur margvíslega merk-
ingu í hans huga. „Takk“ þýðir ekki
einungis „þakka þér fyrir“ heldur
einnig „vertu svo góður að rétta mér“
og síðast en ekki síst „gerðu svo vel“.
x x x
Drengurinn lærði orðið „datt“fljótt og notar það í margvís-
legum tilgangi, ekki síst þegar hann
þarfnast athygli. Með þessu eina orði
getur barnið verið að segja „sjáðu, ég
henti [þessu] í gólfið“ eða „viltu vera
svo vænn að taka [þetta] upp fyrir
mig“ eða „æææ, [snuðið] datt“.
Drengurinn kann að segja
„mamma“ og faðir hans segist stund-
um heyra hann umla „pabbi“ og hef-
ur stuðning móðurinnar í þeirri frá-
sögn.
x x x
Þegar orðaforðinn þrýtur er ým-islegt hægt að gera. Gráturinn
er sígildur. Annað hljóð notar okkar
maður líka talsvert. Hann segir „uh“.
Það þýðir „ég vil fá [þetta]“ eða „vin-
samlegast réttu mér [þetta]“.
x x x
Eitt af nýrri orðunum er „kis“.Hann þekkir kisuna hjá ömmu
sinni og þetta nýfengna orð er óspart
á vörum þegar kettinum bregður fyr-
ir. En raunar virðist litli drengurinn
telja að það sé samheiti yfir öll dýr.
Hann fylgdist til dæmis af áhuga
með fræðslumynd um forystufé í
Sjónvarpinu og sá mörg „kis“ þar.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 öreiga, 8 guð,
9 kaðallinn, 10 kraftur,
11 dregur með erf-
iðismunum, 13 hagn-
aður, 15 fjöturs, 18 lygi,
21 verkur, 22 glæta, 23
kærleikurinn, 24 hús-
dýrinu.
Lóðrétt | 2 skoðunar, 3
kindurnar, 4 smáa, 5
kroppað, 6 pest, 7 pípur,
12 rödd, 14 stormur, 15
húsdýr, 16 ekki veik, 17
traðk, 18 ristu, 19 undir-
staðan, 20 þekkt.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 trúss, 4 gæfur, 7 erfið, 8 rómum, 9 arg, 11
tært, 13 hráa, 14 elfur, 15 háll, 17 ólar, 20 hræ, 22 lofar,
23 fögur, 24 raust, 25 rangi.
Lóðrétt: 1 tregt, 2 úlfur, 3 siða, 4 garg, 5 fimar, 6
rimma, 10 rófur, 12 tel, 13 hró, 15 hólar, 16 lyftu, 18 lyg-
in, 19 rýrði, 20 hret, 21 æfur.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Staðan kom upp í B-flokki Corus-
skákhátíðarinnar í Wijk aan Zee sem
lauk fyrir skömmu í Hollandi. Eini al-
þjóðlegi meistarinn á mótinu og skák-
konan Anna Muzychuk (2.523) frá
Slóveníu hafði hvítt gegn sigurvegara
mótsins, hinum 15 ára Anish Giri
(2.588) frá Hollandi. 55. Hxg6! og
svartur gafst upp enda fellur hrókur
hans eftir 55. … Kxg6 56. Re5+. Loka-
staða efstu manna í mótinu varð þessi:
1. Anish Giri (2.588) 9 vinninga af 13
mögulegum. 2. Arkadij Naiditsch
(2.687) 8 1/2 v. 3. Ni Hua (2.657) 8 v.
4.-5. Erwin L’Ami (2.615) og Wesley So
(2.657) 7 1/2 v. Tefldar verða tvær um-
ferðir í dag á opna Reykjavík-
urskákmótinu, önnur hefst kl. 9 og hin
kl. 15.30.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Raunir Ábótans.
Norður
♠ÁK97642
♥1053
♦8
♣42
Vestur Austur
♠G5 ♠D1083
♥G96 ♥742
♦9754 ♦63
♣DG106 ♣K973
Suður
♠ –
♥ÁKD8
♦ÁKDG102
♣Á85
Suður spilar 6♦.
Makker Ábótans er bróðir Xavier,
góður spilari, en gagnrýninn. Einkum
er hann næmur á yfirsjónir Ábótans.
Hér voru þeir félagar í AV og Ábótinn
út með ♣D.
Sagnhafi var bróðir Cameron, ungur
klaustursveinn, sem fór í fínustu
taugar Ábótans. „Sæll vinurinn,“ sagði
þessi unglingur við stjórnanda Klaust-
ursins: „Hvennig hefrð‘a?“ Ótalandi
hrokagikkur, að mati Ábótans, en hið
versta var hvað strákskrattinn var
góður spilari. Cameron var fljótur að
sjá út möguleika sína. Hann drap á
♣Á, tók ♥ÁKD og spilaði fjórða hjart-
anu! Við þessu átti Ábótinn ekkert svar
eins og lesandinn getur sannreynt.
„Tígulnían út hnekkir slemmunni,“
sagði bróðir Xavier.
Það tekur á að stjórna stóru klaustri.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Það lítur út fyrir að áætlanir þínar
um breytingar á heimilinu muni tefjast
eitthvað. Sinntu því sem augljóslega
þarfnast úrlausnar.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Samræður í dag kunna að snúast um
draumóra og óraunhæf markmið. Ekki
liggja á liði þínu, heldur kastaðu þínum
málum fram til umræðu.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Ástarsamband virðist komið á
endastöð. Eitthvað kemur þér í opna
skjöldu. Heppnin eltir þig á röndum.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú átt bágt með að einbeita þér að
starfinu þar sem áhyggjur af einkamálum
dreifa athyglinni. Vertu bara sjálfum þér
samkvæm/ur og gerðu ekkert vanhugsað
og þá mun allt fara vel.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Vinir og vandamenn leita gjarnan til
þín um ráðgjöf. Ef þú verður beðin/n um
álit á einhverju segðu þá satt. Gamall vin-
ur skýtur upp kollinum.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þér hefur vegnað vel og mátt því
svo sannarlega gleðjast yfir árangrinum.
Þú brennur í skinninu eftir að byrja á ein-
hverju nýju.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það er engum öðrum að kenna en
sjálfum þér að þér leiðist eitthvað þessa
dagana. Þú vilt fórna öllu fyrir ástina.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Föt ýmist bæla eða auðvelda
sjálfstjáningu. Samstarfsmenn hafa gam-
an af þér og sérstökum fatasmekk. Þú ert
með margt á prjónunum.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Jafnvel þótt þér líði best þegar
þú ert ein/n með sjálfri/sjálfum þér sækist
fólk eftir vináttu þinni. Ekki naga þig í
handarbökin fyrir gamlar syndir.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Hversdagsleikinn getur verið
þreytandi ef aldrei er breytt út af van-
anum, þú getur t.d. keyrt aðra leið í vinn-
una, farið í sund í matartímanum í stað
þess að sitja í matsalnum nú eða æft þig í
að taka eftir öllu gulu í umhverfinu.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú ert kannski eitthvað dapur/
döpur og kannt enga lausn við því. Bráða-
birgðaráðstafanir duga í stuttan tíma en
duga þó.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Gefðu þér tíma til þess að taka til
hendinni heima fyrir og kláraðu það sem
hefur setið á hakanum. Þú segir ein-
hverjum til syndanna sem á það skilið.
Stjörnuspá
27. febrúar 1953
Barnaskólahúsið í Hnífsdal
fauk af grunni og gjör-
eyðilagðist í stórviðri af suð-
vestri. Í húsinu voru tveir
kennarar og 36 börn og slös-
uðust sum þeirra.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Kristjana Jóns-
dóttir verður ní-
ræð á morgun,
sunnudaginn 28.
febrúar. Þeim
sem vilja gleðjast
með henni og
fjölskyldu henn-
ar er boðið í há-
tíðarsal Gróttu í
Íþróttahúsi Seltjarnarness á afmæl-
isdaginn milli kl. 15 og 18 og þiggja
veitingar.
90 ára
Hjördís Krist-
jánsdóttir, hús-
móðir og kenn-
ari, Lundar-
brekku í Bárðar-
dal, er áttræð á
morgun, 28.
febrúar. Eigin-
maður hennar er
Sigurgeir Sig-
urðsson, bóndi á Lundarbrekku.
Hjördís tekur á móti gestum í Hótel
Kiðagili í dag, laugardaginn 27.
febrúar, frá kl. 14.
80 ára
Arabella Eymundsdóttir frá
Seyðisfirði og Baldvin Róbert Þor-
steinsson frá Neskaupstað, nú bú-
sett í Þorláksgeisla 9, Reykjavík,
eiga fimmtíu ára brúðkaupsafmæli
í dag, 27. febrúar. Þau verða að
heiman á gullbrúðkaupsdaginn.
Gullbrúðkaup
JOHN Speight tónskáld er 65 ára í dag. Hann
flutti frá Englandi til Íslands árið 1972 og hefur
síðan þá kennt söng við Tónskóla Sigursveins.
„Mér finnst ég vera miklu meiri Íslendingur núna
en Breti,“ segir John, enda hefur hann búið lengur
hér en þar. Hann er kvæntur Sveinbjörgu Vil-
hjálmsdóttur, píanista og skólastjóra Tónlistar-
skóla Álftaness, og eiga þau tvo syni og sex barna-
börn.
John segist vera miklu meira afmælisbarn nú-
orðið en þegar hann var yngri. „Þegar ég var barn
var aldrei haldið upp á afmæli heima hjá mér, það
tíðkaðist bara ekki í fjölskyldunni þá.“ Hann er mikill útivistarmaður
og hefur unun af lax- og silungsveiði. „Ég er ægilega hrifinn af
Fnjóská, ég fer þangað á hverju sumri. Við fórum alltaf þegar strák-
arnir voru litlir en hættum því á tímabili. Svo fékk eldri sonurinn al-
gera veiðidellu og dregur mig með sér í veiðina, þannig að ég er byrj-
aður aftur núna.“
Hann ætlar að eyða kvöldinu með fjölskyldu sinni og nokkrum vin-
um. „Það er ekkert eins skemmtilegt og að vera með fjölskyldunni,“
segir afmælisbarnið John Speight.
John Speight tónskáld er 65 ára í dag
Hrifinn af Fnjóská
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is