Morgunblaðið - 27.02.2010, Side 27
Daglegt líf 27ÚR BÆJARLÍFINU
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2010
Þekkingarsetur Vestmannaeyja hef-
ur gert samning við Vestmanna-
eyjabæ um rekstur á Fiska- og nátt-
úrugripasafni Vestmannaeyja í eitt
ár. Samningurinn tók gildi 1. janúar,
en þá lét Kristján Egilsson, for-
stöðumaður safnsins, af störfum
vegna aldurs. Páll Marvin Jónsson,
forstöðumaður Þekkingarsetursins,
verður yfirmaður safnsins, en Mar-
grét Lilja Magnúsdóttir líffræðingur
annast daglegan rekstur og Georg
Skæringsson kemur að viðhaldi og
umönnun.
Segja má að Kristján Egilsson hafi
bundist órjúfanlegum böndum við
safnið. Aðeins tveimur árum eftir að
safnið var opnað, um miðjan sjöunda
áratuginn, var Kristján farinn að
leysa tengdaföður sinn, Friðrik Jes-
son, af í sumarfríum og á endanum
tók hann alfarið við. Kristján hefur
alla tíð haft mikinn áhuga á nátt-
úrunni og lífríkinu þar og segist hafa
verið í skemmtilegasta starfinu sem
hægt er að vinna í Vestmannaeyjum.
Og þótt Kristján hafi látið af störfum
sem forstöðumaður, þá er hann enn
með aðstöðu á safninu þar sem hann
stoppar upp fyrir sjálfan sig og aðra,
þannig að gestir mega enn eiga von
á því að rekast á hann, glaðbeittan
að vanda, innan veggja safnsins.
Bæjarstjórn Vestmannaeyja hefur
lagt til viðbótarframlag til reksturs
leikskóla í þeim tilgangi að fjölga
leikskólaplássum. Meginreglan
verður að öll börn á fimmta ári fari
yfir á fimm ára deild sem er í Ham-
arsskóla. Starf skólanna skal taka
mið af því. Leikskólinn Kirkjugerði
og Sóli skulu að jafnaði hafa 166 til
168 börn 18 mánaða til 4 ára. Ekki
verða tekin inn á leikskóladeildir
bæjarins yngri börn en 18 mánaða.
Lögð verður áhersla á sérstöðu
fimm ára deildarinnar og mikilvægi
samstarfs og samþættingar skóla-
stiga.
Nýlega var 61 útskrifaður af fisk-
vinnslunámskeiðum sem hófust 11.
janúar. Hafa þá í allt 1.109 útskrifast
í Vestmannaeyjum á þeim 23 árum
frá því námskeiðin hófust. Skiptast
þeir frá upphafi í 68 námshópa fisk-
vinnslufólks og níu námshópa starfs-
manna í fiskimjölsverksmiðjum.
Framkvæmdir eru hafnar við grunn
fjölnota íþróttahúss í Vestmanna-
eyjum og áætlanir gera ráð fyrir að
það verði komið í gagnið í haust.
Húsið verður 4.500 fermetrar að inn-
anmáli og hæðin fimmtán metrar við
mæni þar sem það er hæst. Draum-
urinn er að hefja inniæfingar hjá fót-
boltanum í haust, eftir fríin, í októ-
ber eða nóvember.
Kvikmyndatökufólk frá Danmarks
Radio (DR) var við tökur í Eyjum
fyrir skömmu, en danska sjónvarpið
vinnur nú að þáttagerð um hvíta
þræla og múslímska sjóræningja.
Ástæða þess að kvikmyndagerðar-
fólkið kom hingað er að sérstaklega
er fjallað um Guðríði Símonardóttur
sem var numin á brott í Tyrkjarán-
inu 1627. Lisbeth Jessen þátta-
stjórnandi og John Johansen kvik-
myndatökumaður höfðu samband
við Steinunni Jóhannesdóttur, höf-
und Reisubókar Guðríðar Símonar-
dóttur. „Við fjöllum um fimm þræla
sem voru hnepptir í þrældóm á mis-
jöfnum tíma, þrír á 16. öld, einn á
17. öld og einn á 18. öld. Þættirnir
eru þrír og tekur hver um 35 mín-
útur í sýningu,“ sagði Lisbeth
þáttastjórnandi þegar hún var
spurð út í þáttagerðina. Guðríður
Símonardóttir er ein þeirra sem
fjallað er sérstaklega um en aðrir
eru m.a. Cervantes, höfundur Don
Kíkóta, sem var þræll í Algeirsborg
í fimm ár og danskur þræll sem hét
Hark Olufs og einnig um Marcus
sem var frá Svíþjóð og að lokum er
fjallað um norskan mann sem hét
Scram.
VESTMANNAEYJAR
Ómar Garðarsson
Morgunblaðið/Ómar Garðarsson
Skemmtun Sólveig Unnur Ragnarsdóttir, Védís Guðmundsdóttir og Guð-
mundur Hafliði Guðjónsson héldu ánægjulega tónleika í Eyjum.
VITA er í eigu Icelandair Group.
VITA er lífið
VITA | Skútuvogi 13a | Sími 570 4444
Kanarí,
allra síðustu sætin í vetur!
GROUP
Skráðu þig í netklúbbinn - VITA.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
V
IT
49
49
7
02
/1
0
Verð frá 173.020 kr.*
og 15.000 Vildarpunktar
Los Ficus - 22 nætur
10. mars – 1. apríl
Verðdæmið er m.v. 2 í íbúð m/1 svefnh.
* Verð án Vildarpunkta: 183.020 kr.
Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting og íslensk fararstjórn.
Verð frá 153.950 kr.*
og 15.000 Vildarpunktar
Roque Nublo - 15 nætur
17. mars – 1. apríl
Verðdæmið er m.v. 2 í íbúð m/1 svefnh.
* Verð án Vildarpunkta: 163.950 kr.
Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting og íslensk fararstjórn.
uppselt
uppselt
örfá sæti laus
Hjá VITA eru veittir 2.500 Vildarpunktar fyrir allar keyptar ferðir í leiguflugi
með VITA. Þannig öðlast þú stöðugt fleiri tækifæri til þess að njóta lífsins.
Auk þess getur þú lækkað verðið á ferðinni þinni um allt að 10.000 kr.
með 15.000 Vildarpunktum.
Þú getur notað
Vildarpunktana
hjá okkur.
3. mars
10. mars
17. mars
28. mars
Flugáætlun
Mannfólkið hefur metnaðtil margvíslegra verka.Á hverju ári eru settsérkennileg heimsmet
sem óvíst er að nokkur reyni að slá.
Stærsta safn umferðarkeilna
David Morgan frá Burford í Oxford-
skíri hefur safnað 137 mismunandi
gerðum af umferðarkeilum. Það
mun vera um þriðjungur allra gerða
sem framleiddar hafa verið.
Flestar tær og fingur
Tvær konur í Bandaríkjunum,
Pranamya Menaria og Devendra
Harne hafa 12 fingur og 13 tær
hvor vegna fágæts erfðagalla.
Háværasti ropinn
Rophljóð Lundúnabúans
Paul Hunn mældist 104,9
desibil sem er svipað og
loftbor gefur frá sér á góð-
um degi. Þetta tókst honum
með því að borða mikið af karríi
og kebab og skola því niður með
gosdrykkjum.
Flestir lifandi skröltormar í munni
Jackie Bibby hélt tíu skröltormum á
halanum í munni sér, án utanaðkom-
andi aðstoðar, í New York á síðasta
ári. Hann á líka metið í að baða sig
með flestum snákum (var í kerinu
með 81 stykki).
Étið flesta kakkalakka
Ken Edwards frá England át 36
kakkalakka á einni mínútu árið 2001.
Stærsta safn ælupoka
Niek Vermeulen, hollenskur mark-
aðsráðgjafi, hefur safnað 5.180 ælu-
pokum frá rúmlega þúsund flug-
félögum. Hann hóf söfnunina á
áttunda áratugnum.
Lengstu hár á fótleggjum
Metið yfir lengstu hár á fótleggjum
á læknaneminn Wesley Pemberton
en lengsta hárið á leggjum hans er
12,7 sentimetrar. Hann notar hár-
næringu til að halda feldinum góð-
um.
Stærsta diskókúlan
Stærsta diskókúlan sem vitað
er um er hvorki meira
né minna en 7,35
metrar í þvermál.
Kúlan er saman
sett úr 80 þúsund
litlum speglum
þarf kraftmikinn
mótor til að snúast.
Hún var fyrst kynnt
í klúbbnum Studio 54
í Antwerpen í Belgíu ár-
ið 2007.
Sérkennileg
heimsmet
RÚSSNESKUR simpansi hefur
verið sendur í meðferð vegna
reykinga og bjórdrykkju. Zhora,
sem var í eina tíð í stóru hlutverki
í sirkussýningum, varð árásar-
gjarn og var í kjölfarið fluttur í
dýragarð í borginni Rostov. Þar
varð honum nokkurra afkvæma
auðið og lærði að teikna. En að
auki tók hann að reykja og
drekka ótæpilega. „Bjórinn og síg-
aretturnar voru að fara með
hann,“ segir dýrahirðirinn.
Api sendur í
áfengismeðferð